Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-36/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eru liður í því að styrkja enn frekar fæðingarorlofskerfið hér á landi, meðal annars í því skyni að stuðla að betra jafnvægi milli atvinnuþátttöku foreldra og fjölskyldulífs. Lagt er til að aukinn réttur til fæðingarorlofs sem og aukinn réttur til fæðingarstyrks vegna fjölburafæðinga verði aukinn enn frekar þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Einnig er lagt til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt. Þá er lagt til að heimilt verði að lengja fæðingarorlof foreldris sem fætt hefur barn um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við meðgönguna, enda verði veikindin rakin til meðgöngunnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Gert er ráð fyrir að hið sama eigi við hvað varðar rétt foreldra sem fætt hafa barn til fæðingarstyrks samkvæmt lögunum.

S-36/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2025 – 5. mar. 2025· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-36/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 215)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. apríl 2025)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025). Alls bárust fjórar umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á efni frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 24. mars. 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Helena Sveinborg Jónsdóttir

    Hæhæ, frábært að sjá þessar breytingar. Mig langaði að hvetja ykkur til að láta lögin gilda einnig um þau sem eru enn í fæðingarorlofi þegar lögin taka gildi. Svo 5. gr. yrði breytt þannig að hún ætti líka við um þá foreldra sem eru í orlofi nú þegar. Það eru ekki margir fjölburaforeldrar í orlofi sem stendur og því ætti þetta ekki að muna um mjög fyrir ríkissjóð en getur haft gríðarlega góð áhrif á þær fjölskyldur sem rétt missa af lögunum.

  • #2BSRB

    Meðfylgjandi er umsögn BSRB.

  • #3Bandalag háskólamanna

    Góðan dag. Sjá meðfylgjandi umsögn Bandalags háskólamanna (BHM). Með kveðju, Ingvar Sverrisson

  • #4W.O.M.E.N - Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-36/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu) · Alviti