Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa)
Lögð er til breyting á lögum til að bregðast við alvarlegri rekstrarstöðu á mikilvægum innviðum svo kirkjugörðum verði gert heimilt að innheimta gjald til að standa undir kostnaði af rekstri líkhúsa.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-33/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 253)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Birgitta Jeanne Sigursteinsdóttir
Fyrst þið ætlið að breyta lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Í fyrsta lagi: "25. gr. Kirkjugarðsstjórn er heimilt að úthluta allt að þremur grafarstæðum til sömu fjölskyldu, enda sé eftir því leitað við greftrun þess er fyrst fellur frá. Réttur til grafarstæðanna helst í 50 ár." - hér er ekki gert ráð fyrir foreldum sem missa ung börn. Ég er sjálf með frátekið leiði við hlið dóttur minnar sem lést 2022 tæplega tveggja ára gömul. Þá var ég 32 ára. Þetta þýðir að þegar/ef ég verð 82 ára missi ég réttinn á stæðinu. Réttinn til að fá að hvíla við h… Lesa alla
Fyrst þið ætlið að breyta lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Í fyrsta lagi: "25. gr. Kirkjugarðsstjórn er heimilt að úthluta allt að þremur grafarstæðum til sömu fjölskyldu, enda sé eftir því leitað við greftrun þess er fyrst fellur frá. Réttur til grafarstæðanna helst í 50 ár." - hér er ekki gert ráð fyrir foreldum sem missa ung börn. Ég er sjálf með frátekið leiði við hlið dóttur minnar sem lést 2022 tæplega tveggja ára gömul. Þá var ég 32 ára. Þetta þýðir að þegar/ef ég verð 82 ára missi ég réttinn á stæðinu. Réttinn til að fá að hvíla við hlið dóttur minnar. Fyrir mér er þetta mjög mikilvægt og þýðir í raun að ég má ekki verða yfir 81 árs gömul. Það er samfélagslegt tabú að tala um andlát barna og aldrei gert ráð fyrir okkur syrgjandi foreldrum í kerfinu. Hér mætti setja einhversskonar undanþágu til að tryggja að foreldrar haldi réttinum til grafarstæða við hlið barna sinna. Í öðru lagi: "7.gr Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum sem skylt er að varðveita í kirkjugarði eða löggiltum grafreit... ...Sýslumaður getur heimilað] 1) að ösku verði dreift yfir öræfi eða sjó, enda liggi fyrir ótvíræð ósk hins látna þar að lútandi. Óheimilt er að dreifa ösku á fleiri en einn stað sem og að merkja dreifingarstað. Sömuleiðis er óheimilt að geyma duftker fram að ráðstöfun þess annars staðar en í líkhúsi." - nú tíðkast það í flestum öðrum löndum að fólk geti fengið amk hluta af öskunni með sér heim. Slíkt fyrirkomulag veitir mörgum syrgjendum ró. Einnig er algengt í dag í öðrum löndum að aska ástvina sé notuð í persónulega muni eins og hring, hálsmen eða jafnvel blandað við blek til að gera húðflúr. Það er ekki okkar að dæma hvað syrgjendur kjósa að gera við ösku til að finna nálægð við látinn ástvin. En eftirspurnin eftir slíkum persónulegum munum er þó slík að það er augljóst að þetta er mörgum mikilvægur hluti af sorgarferli. Ég hef einnig heyrt af því að á Íslandi sé fólk í laumi að opna kerin, taka ösku og líma svo kerin aftur saman áður en þau fara í jörð. Þetta gerir fólk því þörfin fyrir að hafa ösku ástvinar hjá sér er til staðar sama hvað lögin segja. Lögin eiga að þjóna fólkinu en ekki öfugt og því vil ég biðla til ykkar að endurskoða þetta bann við því að aska (þó ekki nema væri örlítill hluti) sé afhent fjölskyldumeðlimum.
- #2Kirkjugarðasjóður
Meðfylgjandi er umsögn kirkjugarðaráðs vegna breytinga á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 (líkhús)
- #3Sorgarmiðstöð, félagasamtök
Í samþykktum Sorgarmiðstöðvar segir m.a. að Sorgarmiðstöð skuli standa vörð um hagsmuni syrgjenda og beita sér fyrir úrbótum í réttindamálum þeirra. Á þeim grunni tekur Sorgarmiðstöð afstöðu til frumvarpsins. Í umræddu frumvarpi er „Lagt til að þeim kirkjugörðum sem komið hafa sér upp líkhúsi verði heimilt að innheimta gjald sem leggst á dánarbú eða aðstandendur látinna fyrir geymslu líka til að standa undir kostnaði sem hlýst af geymslu þeirra.Eðlilega þurfa þeir kirkjugarðar sem koma sér upp líkhúsi að hafa eftirlit og umsjón með rekstrinum. Ákveðin aðstaða, tæki og áhöld þurfa jafnframt að… Lesa alla
Í samþykktum Sorgarmiðstöðvar segir m.a. að Sorgarmiðstöð skuli standa vörð um hagsmuni syrgjenda og beita sér fyrir úrbótum í réttindamálum þeirra. Á þeim grunni tekur Sorgarmiðstöð afstöðu til frumvarpsins. Í umræddu frumvarpi er „Lagt til að þeim kirkjugörðum sem komið hafa sér upp líkhúsi verði heimilt að innheimta gjald sem leggst á dánarbú eða aðstandendur látinna fyrir geymslu líka til að standa undir kostnaði sem hlýst af geymslu þeirra.Eðlilega þurfa þeir kirkjugarðar sem koma sér upp líkhúsi að hafa eftirlit og umsjón með rekstrinum. Ákveðin aðstaða, tæki og áhöld þurfa jafnframt að vera til staðar. Þykir rétt að kirkjugörðum sé heimilt að taka gjald fyrir þann kostnað sem hlýst af rekstri líkhúsa og umsjón og eftirliti með þeim. Það gjald sem kirkjugarður innheimtir fyrir geymslu líka rennur óskipt til reksturs líkhússins.“ Við lestur greinargerðarinnar sem fylgir frumvarpinu verður ekki annað séð en að kirkjugarðar sem reka líkhús fái lagalega heimild til að reikna inn í væntanlegt líkhúsgjald allan kostnað sem hlýst af rekstri líkhússins og því muni gjaldinu í raun ætlað að standa alfarið undir rekstri viðkomandi líkhúss. Hér er því opnað fyrir möguleika á víðtækari gjaldtöku en sem nemur þjónustu við geymslu líka. Verður ekki annað ráðið af orðalaginu en að í raun sé um skattlagningu á dánarbúum að ræða til reksturs líkhúsa, en ekki þjónustugjald fyrir að geyma lík um tiltekinn tíma. Sorgarmiðstöð skorar á dómsmálaráðherra að falla frá umræddu frumvarpi en tryggja þess í stað tímabundið framlag úr ríkissjóði til þeirra kirkjugarða sem reka fullbúin líkhús. Jafnframt verði flýtt heildarendurskoðun laga nr. 36/1993 og endurskoðun samkomulags ríkis og kirkjugarðaráðs frá 2005 um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða m.a. til líkgeymslu og reksturs líkhúsa. Sorgarmiðstöð vill líka árétta að kostnaður vegna útfarar reynist mörgum aðstandendum afar þungur, svo ekki er á bætandi og skattlagning þar á ofan vegna reksturs líkhúsa kemur ekki til greina. Sorgarmiðstöð leggur til að frumvarpið verði dregið til baka. Virðingarfyllst Kristín Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar
- #4Minjastofnun Íslands
Góðan dag. Viðfest er umsögn Minjastofnunar Íslands. Með kveðju, Gísli Óskarsson Sviðsstjóri lögfræðisviðs
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.