Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Markmiðið er að stuðla að markvissari og réttlátari úthlutun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, einfalda skipulag sjóðsins og stuðla að því að hann fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-32/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 38 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 270)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2025)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í mars 2025. Umfjöllun um niðurstöður samráðsins um frumvarpið og þær breytingar sem gerðar voru að samráði loknu er að finna í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu, sjá hlekk. Einnig var unnin skýrsla um samráð sem er birt hér.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (38)
- #1Persónuvernd
Sjá meðfylgjandi umsögn Persónuverndar.
- #2Múlaþing
Umsögn byggðaráðs Múlaþings.
- #3Skagafjörður
Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál til samráðs, 32/2025 og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins sé komið fram frumvarp til laga um breytingu á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það er löngu tímabært að endurskoða reglurnar og uppfæra þær til samræmis við þarfir og raunveruleika sveitarstjórnarstigsins í dag en sveitarfélögum landsins hefur fækkað umtalsvert á liðnum áratugum á sama tíma og verkefnum þeirra hefur fjölgað verulega. Byggðarráð fagnar því jafnframt að í frumvarpinu er lögð áhersla á að… Lesa alla
Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál til samráðs, 32/2025 og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins sé komið fram frumvarp til laga um breytingu á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það er löngu tímabært að endurskoða reglurnar og uppfæra þær til samræmis við þarfir og raunveruleika sveitarstjórnarstigsins í dag en sveitarfélögum landsins hefur fækkað umtalsvert á liðnum áratugum á sama tíma og verkefnum þeirra hefur fjölgað verulega. Byggðarráð fagnar því jafnframt að í frumvarpinu er lögð áhersla á að Jöfnunarsjóður styðji í auknum mæli við landstór, fjölkjarna sveitarfélög sem hafa stór þjónustusvæði, fjölbreytt byggðarmynstur og af þeim sökum miklar og flóknar útgjaldaþarfir. Breytingarnar eru til þess fallnar að styðja við þróun sveitarstjórnarstigsins og sjálfbærni þess og er mikilvægur þáttur í jöfnun búsetuskilyrða í dreifðum byggðum. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #4Sveitarfélagið Árborg
Á 119. fundi bæjarráðs sem haldinn var 27. febrúar 2025 var tekið fyrir frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, í samráðsgátt nr. S-32/2025, auk erindis frá innviðaráðuneytinu, dags. 21. febrúar, um frest til umsagnar til 5. mars. Eftirfarandi bókun bæjarráðs tilkynnist hér með: Bæjarráð Árborgar tekur í meginefnum undir þær breytingar sem koma fram í frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í lagafrumvarpinu eru löngu tímabærar breytingar á regluverki jöfnunarsjóðs sem tekur betur mið af stöðu og gerð sveitarfélaga í dag. Má þar sem dæmi nefna að árið 1990 voru sveitarfélö… Lesa alla
Á 119. fundi bæjarráðs sem haldinn var 27. febrúar 2025 var tekið fyrir frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, í samráðsgátt nr. S-32/2025, auk erindis frá innviðaráðuneytinu, dags. 21. febrúar, um frest til umsagnar til 5. mars. Eftirfarandi bókun bæjarráðs tilkynnist hér með: Bæjarráð Árborgar tekur í meginefnum undir þær breytingar sem koma fram í frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í lagafrumvarpinu eru löngu tímabærar breytingar á regluverki jöfnunarsjóðs sem tekur betur mið af stöðu og gerð sveitarfélaga í dag. Má þar sem dæmi nefna að árið 1990 voru sveitarfélög landsins 204 en eru í dag 62 talsins. Á umræddu tímabili hafa litlar breytingar verið gerðar á grunnreglum úthlutunar hjá sjóðnum. Greiðslur jöfnunarsjóðs hafa umtalsvert vægi í tekjum sveitarfélaga og mikilvægt að sambærileg sveitarfélög fái sambærileg framlög með tilliti til tekna. Bæjarráð Árborgar tekur undir þá tillögu að vannýting skattstofna leiði til lækkunar framlaga úr Jöfnunarsjóði, enda sé það í anda tilgangs Jöfnunarsjóðs. Að öðru leyti telur bæjarráð Árborgar að tillögur frumvarpsins séu vandaðar og til þess fallnar að styrkja stöðu sveitarfélaga landsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar.
- #5ÖBÍ réttindasamtök
Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, mál nr S-32/2025.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.