Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi í leigubifreiðaþjónustu og starfsumhverfi leigubifreiðastjóra)
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi sem um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi í leigubifreiðaþjónustu og starfsumhverfi leigubifreiðastjóra).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-31/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 32 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 388)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (32)
- #1Karl Gunnarsson
Að fella út frelsisákvæði einstaklingsins finnst mér slæmt. Sé bara ekkert athugavert við einyrkja og þarna er verið að taka í burtu það eina sem jók réttindi manna og frelsi. Auðvitað eiga einstaklingarnir að vera undir ströngum reglum en stöðvarskylda setur frelsinu óþarfa hömlur. Margir gætu séð hag sinn í akstursleyfi í helgarakstri þegar þörfin er mest í bænum.
- #2Árni Arnar Óskarsson
Góðan daginn, ég tel mjög mikilvægt að koma á fjöldatakmörkunum leigubíla á aftur sem var afnumin með leigubílafrumvarpinu. Ég varð að hætta að keyra leigubíl í haust vegna minnkandi vinnu vegna stórfjölgunar leigubíla og hefur ógnaði starfsafkomu okkar leigubílstjóra og ég er ekki einn um það. Spurningin er þessi: viljum við hafa góða leigubílaþjónustu hér á landi og ef svo er þá er nauðsynlegt að koma á fjöldatakmörkunum leigubíla á aftur
- #3Bjarni Bergmann Vilhjálmsson
Daginn. Ég hef starfað við leigu akstur yfir 30 ár og verð að segja að þingið hefur því miður klúðrað þessum lögum og nánast eyðilagt mína starfsgrein. Þegar ég fékk leyfi þurfti ég að starfa fyrir aðra í sex ár ,sem er kannski full langur tími, en nauðsynlegt er að nýir leyfishafar hafi lágmarks reynslu af leigu akstri amk tvö ár ,að keyra fyrir aðra svo hægt sé meta þeirra fagmennsku, það er ekki lengur staðan né krafan... Í drögum af breytingu á lögunum kemur fram "Að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiða þjónustu fyrir neytendur" Í dag eru starfandi í st… Lesa alla
Daginn. Ég hef starfað við leigu akstur yfir 30 ár og verð að segja að þingið hefur því miður klúðrað þessum lögum og nánast eyðilagt mína starfsgrein. Þegar ég fékk leyfi þurfti ég að starfa fyrir aðra í sex ár ,sem er kannski full langur tími, en nauðsynlegt er að nýir leyfishafar hafi lágmarks reynslu af leigu akstri amk tvö ár ,að keyra fyrir aðra svo hægt sé meta þeirra fagmennsku, það er ekki lengur staðan né krafan... Í drögum af breytingu á lögunum kemur fram "Að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiða þjónustu fyrir neytendur" Í dag eru starfandi í stéttinni nýir leyfishafar sem koma í veg fyrir örugga leigubifreiða þjónustu leyfishafar sem komust inn í stéttina vegna lélegrar lagasetningar , fljótfærni í lagasetningu. Úrræðaleysi virðist vera í að koma þessum aðilum sem þegar búnir að eyðileggja fyrir stéttinni úr stéttinni. Þetta verður að laga Öryggi er ekki til staðar og verður ekki fyrr en þingið tryggir kúnnum leigubifreiða örugga þjónustu.
- #4Gísli Birgir Sigurðarson
Það er LÁGMARK að ökumenn í þessu þjónustustarfi tali íslensku. Hvergi í öðru landi er eftirgjöf með þá skyldu. Gerið betur !!!!
- #5Bjarni Bergmann Vilhjálmsson
Vil bæta við Samgöngustofa er stofnun Stofnanir hafa ekki valdheimildir ,þar kristallast vandamálið ,þingið verður að finna lausnir þar sem lögregla eða löggæsla kemur að málum stofnana,annars gerist ekki neitt, Það verður að endurskipuleggja löggæslu umhverfið , Þetta ætti þingheimur að vita.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.