Drög að frumvarpi til laga um markaði fyrir sýndareignir
Um er að ræða drög að frumvarpi sem felur í sér innleiðingu reglugerðar (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-28/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 26. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 262)
Niðurstöður samráðs (27. febrúar 2025)
Ein umsögn barst frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Í umsögninni kom fram að SFF væri almennt jákvætt gagnvart frumvarpinu og mikilvægt væri að til staðar séu skýrar leikreglur fyrir þennan hluta fjármálamarkaðarins sem hefur lengst af staðið nánast utan laga og reglna. SFF fjallaði almennt um áhættusemi fjárfestinga í sýndareignum og hvatti til aukins fjármálalæsis almennings. Umsögnin gaf ekki tilefni til sérstakra viðbragða varðandi vinnslu frumvarpsins.
- Drög að frumvarpi til laga um markaði fyrir sýndareignir
- Mat á áhrifum - frummat - Lög um markaði með sýndareignir (MiCA).pdf
- Þýðing á reglugerð (ESB) 20231114.pdf
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Gústaf Steingrímsson
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.