Frumvarp um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld)
Breytingar á lögum er varða móttöku og vinnslu upplýsinga um farþega og áhöfn af hálfu lögreglu og tollyfirvalda í löggæslutilgangi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-24/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 132)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Jón Frímann Jónsson
Lögregluyfirvöld ýkja hættuna á glæpum til þess að afla sér aukinna valdheimilda. Þetta er þekkt og ekki eingöngu bundið við Íslands. Það er einnig ljóst að íslensk lögregluyfirvöld munu nota þetta í rasískum tilgangi til þess að neita fólki inngöngu inn í Ísland, þó svo að það hafi rétt á því vegna þess að viðkomandi er ríkisborgari ESB ríkis. Það eru dæmi um slíkt nú þegar (https://www.visir.is/g/20232479349d/rumenskri-konu-visad-ur-landi-i-annad-sinn-a-rumum-manudi). Þetta mál sem frétt vísir.is fjallar um og er frá árinu 2023 sýnir hvernig brotið er á rétti borgara frá EES/ESB ríkjum ef lö… Lesa alla
Lögregluyfirvöld ýkja hættuna á glæpum til þess að afla sér aukinna valdheimilda. Þetta er þekkt og ekki eingöngu bundið við Íslands. Það er einnig ljóst að íslensk lögregluyfirvöld munu nota þetta í rasískum tilgangi til þess að neita fólki inngöngu inn í Ísland, þó svo að það hafi rétt á því vegna þess að viðkomandi er ríkisborgari ESB ríkis. Það eru dæmi um slíkt nú þegar (https://www.visir.is/g/20232479349d/rumenskri-konu-visad-ur-landi-i-annad-sinn-a-rumum-manudi). Þetta mál sem frétt vísir.is fjallar um og er frá árinu 2023 sýnir hvernig brotið er á rétti borgara frá EES/ESB ríkjum ef lögreglan hefur uppi alvarlegar ranghugmyndir um þetta fólk. Að veita lögreglunni frekari heimildir í þessu er því gjörsamlega ástæðulaust og án tilefnis. Það hefur einnig sýnt sig að svona aðgerðir einfaldlega stöðva ekki það sem lögreglan segir að þetta muni stöðva. Glæpamenn finna alltaf leiðir og þeir eru ekkert alltaf í kerfum Schengen eða lögregluyfirvalda í Evrópu. Lögreglan á Íslandi hefur einnig í dag aðgang að gagnagrunnum Schengen um glæpamenn og það ætti að duga til þess að koma í veg fyrir glæpi á Íslandi.
- #2Karl Alvarsson
Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt stjórnvalda Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld) Vil koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025. Það formlega orð eða hugtak sem í daglegu tali er notað um flugvél skv. ákvæðum laga nr. 80/2022 um loftferðir er loftfar. Það orð er skýrt þannig í 23. tl. 3. gr. laganna sem, Loftfar: Sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins, anna… Lesa alla
Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt stjórnvalda Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum (farþegaupplýsingar fyrir lögreglu og tollyfirvöld) Vil koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025. Það formlega orð eða hugtak sem í daglegu tali er notað um flugvél skv. ákvæðum laga nr. 80/2022 um loftferðir er loftfar. Það orð er skýrt þannig í 23. tl. 3. gr. laganna sem, Loftfar: Sérhvert tæki sem haldist getur á flugi vegna verkana loftsins, annarra en loftpúðaáhrifa við yfirborð jarðar. Loftfar er það orð sem notað í loftferðalögum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Flugfar er hinsvegar ferð með loftfari milli áfangastaða. Í frumvarpsdrögunum er í I. kafla og greinargerð vísað réttilega til „loftfars“ á 11 stöðum í textanum en í 7. gr. III. kafla er vísað til „einkaflugfars“ sem er ambögulet orð sem samræmist ekki réttri hugtakanotkun. Hugsanlega mætti nota orðið „einkaloftfar“ en réttara væri að vísa til loftfars í almannaflugi sem skýrt er svo í 1. tl. 3. greinar laga um loftferðir, Almannaflug: Borgaralegt flug loftfars annað en flutningaflug, og sérstök starfræksla í ábataskyni, hvort sem er reglubundið eða óreglubundið. Til frekari skýringa er Flutningaflug: Starfræksla loftfars sem felur í sér flutninga á farþegum, vörum eða pósti gegn greiðslu eða annars konar gjaldi, skv. 15. tl. sömu greinar. Þannig er loftfar í almannaflugi ekki starfrækt í ábataskyni. Af tollalögum nr. 88/2005 má sjá að flugfar er víða notað í lagatextanum eða á 16 stöðum. Lagt er til að frumvarpstextanum í samráðsgáttinni verði breytt til samræmis við rétta orðanotkun. Jafnframt er lagt til að bætt verði við III. kafla lagfæringu á orðanotkuninni í tollalögum þannig að í stað flugfars í komi loftfar í réttri mynd í 5. tl. 1.gr., 8. tl. 1.gr., 9. tl. 1. mgr. 7. gr., 2. og 4. mgr. 51. gr., 2.tl.1. mgr. 98. gr., 1. mgr. 155. gr., 1. og 2. tl. 1. mgr. og 2. mgr. 195. gr., og í XVI. ákvæði til bráðabirgða. Jafnframt verði herflugfari í 1. mgr. 68. gr. og fyrirsögn og í 2. mgr. 195. gr. breytt í herloftfar í réttri mynd. Þá verði tekin upp orðskýring á hugtakinu loftfar í stað flugfars í 10. tl. 1. gr. tollalaga Mikilvægt er að stjórnvöld samræmi orða- eða hugtakanotkun í lögum og reglum sér í lagi þar sem reynir á beitingu viðurlaga við brot á þeim.
- #3Karl Alvarsson
Undirritaður vill koma á framfæri eftirfarandi ábendingu við annars ágætt frumvarp sem birt er í Samráðsgátt stjórnvalda 7. febrúar sl. Tilv. Mál nr. S-24/2025.
- #4Persónuvernd
Með fylgir umsögn Persónuverndar.
- #5Hjálmtýr Guðmundsson
Mætti kannski standa "er skylt" í stað "heimilt". Löngu tímabært.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.