Breyting á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög
Breytingarnar fela m.a. í sér skýrari feril kostnaðarmats auk þess sem lögð verður til ný almenn leið til að leysa úr ágreiningsmálum milli ríkis og sveitarfélaga um matið.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-23/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 272)
Niðurstöður samráðs (19. febrúar 2025)
Ráðuneytinu bárust tíu umsagnir frá sveitarfélögum, landshlutasamtökum og hagsmunaaðilum. Í öllum umsögnum var tekið undir markmið frumvarpsins og fyrirhuguðum breytingum fagnað. Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga (mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög) verða birt í samráðsgátt í febrúar.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Skagafjörður
Á 133. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var tekið fyrir mál 23/2025 til samráðs og þannig bókað. Kynnt áform um fyrirhuguðarar breytingar á 129. grein sveitarstjórnarlaga, sem fjallar um endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Breytingunum er ætlað að koma til móts við gagnrýni sveitarfélaga, m.a. um að dæmi séu um að kostnaðarmat af þessu tagi séu ekki framkvæmd, matið sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær leita eigi umsag… Lesa alla
Á 133. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var tekið fyrir mál 23/2025 til samráðs og þannig bókað. Kynnt áform um fyrirhuguðarar breytingar á 129. grein sveitarstjórnarlaga, sem fjallar um endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Breytingunum er ætlað að koma til móts við gagnrýni sveitarfélaga, m.a. um að dæmi séu um að kostnaðarmat af þessu tagi séu ekki framkvæmd, matið sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær leita eigi umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig leyst skuli úr ágreiningi. Byggðarráð Skagafjarðar hefur ítrekað bent á skort á kostnaðarmati eða að það sé framkvæmt á ófullnægjandi hátt og fagnar því fyrirhuguðum áformum. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #2ÖBÍ réttindasamtök
Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um breytingar á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög, mál nr S-23/2025.
- #3Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um mál nr. S-23/2025.
- #4Dalabyggð
Meðfylgjandi er umsögn sveitarfélagsins Dalabyggðar um mál nr. S-23/2025
- #5Akureyrarbær
Góðan daginn. Meðfylgjandi er umsögn frá Akureyrarbæ.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.