Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-20/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar)

Lögð er til breyting á heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Nýtt heiti verði Sjónstöðin.

Frumvarp þetta er samið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Í frumvarpinu er lagt til að heiti þeirrar stofnunar sem sinnir þjónustu við blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu verði breytt. Stofnunin beri nú hið óþjála heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Heiti stofnunarinnar er því þrettán orð sem innihalda rúmlega 90 bókstafi. Í daglegu máli notast stofnunin sjálf við Sjónstöðina sem eigið heiti, auk notenda hennar og augnlækna sem vísa skjólstæðingum sínum þangað. Er því lagt til að nýtt heiti stofnunarinnar verði Sjónstöðin en sú breyting er lögð fram til einföldunar og til samræmis við almenna málnotkun.

S-20/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 6. feb. 2025 – 20. feb. 2025· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar)

Lögð er til breyting á heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Nýtt heiti verði Sjónstöðin.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-20/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 148)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Elínborg Guðmundsdóttir

    Fyrir hönd stjórnar Augnlænafélags Íslands lýsum við yfir ánægju með fyrirhugaðri nafnabreytingu Elínborg Guðmundsdóttir gjaldkeri Aðrir stjórnarmenn Sigríður Þórisdóttir formaður Sigríður Másdóttir ritari

  • #2Elva Dögg Jóhannesdóttir

    Undirrituð lýsir yfir ánægju og stuðningi við fyrirhugaða nafnabreytingu. Elva Dögg Jóhannesdóttir, yfirlæknir, Sjónstöðinni.

  • #3ÖBÍ réttindasamtök

    Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka (ÖBÍ) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar).

  • #4Blindrafélagið

    Blindrafélagið lýsir yfir stuðningi við tillögu um nafnabreytingu á Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og að nýtt heiti verði Sjónstöðin.

  • #5Elfa Svanhildur Hermannsdóttir
    Stjórnendur og starfsmenn Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu taka heilshugar undir tillögu um breytingu á heiti stofnunarinnar í Sjónstöðin og telja hana mikið fagnaðarefni. Stofnunin hefur frá upphafi þurft að burðast með langt nafn. Til að vinna með þetta langa nafn var lögð til stytting á nafni stofnunarinnar m.a. í reglugerð um úthlutun hjálpartækja á vegum stofnunarinnar og notað heitið “Miðstöð“ sem er ekki heppilegt þar sem sú stytting gefur ekki til kynna um hvaða Miðstöð ræðir. Sjónstöðin, eins og lagt er fr… Lesa alla

    Stjórnendur og starfsmenn Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu taka heilshugar undir tillögu um breytingu á heiti stofnunarinnar í Sjónstöðin og telja hana mikið fagnaðarefni. Stofnunin hefur frá upphafi þurft að burðast með langt nafn. Til að vinna með þetta langa nafn var lögð til stytting á nafni stofnunarinnar m.a. í reglugerð um úthlutun hjálpartækja á vegum stofnunarinnar og notað heitið “Miðstöð“ sem er ekki heppilegt þar sem sú stytting gefur ekki til kynna um hvaða Miðstöð ræðir. Sjónstöðin, eins og lagt er fram í frumvarpinu, er notendavænt og lýsandi heiti á meðan núverandi heiti er mjög langt, afskaplega óþjált í síma og getur að auki valdið ruglingi við aðrar þjónustumiðstöðvar. Stofnanir á Íslandi hafa almennt ekki alla þjónustulýsingu né upptalningu allra markhópa í heitinu og okkur finnst ekki ástæða til að Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu hafi það heldur. Þá þekkja augnlæknar sem vísa fólki í þjónustu til stofnunarinnar sem og fjölmargir aðrir heitið Sjónstöðin frá þeim tíma þegar stofnunin hét Sjónstöð Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-20/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar) · Alviti