Áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-18/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 215)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. apríl 2025)
Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 4. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 18. febrúar til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust fjórar umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025).
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Birta Sif Arnardóttir
Meðfylgjandi er umsögn Félags atvinnurekenda.
- #2Samband íslenskra sveitarfélaga
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. Sambandsins, Valgerður Rún
- #3Alþýðusamband Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands vegna áforma um breytingar á fæðingarorlofslögum.
- #4Andrea Sigurðardóttir
Hjálögð er umsögn mín um áform um lagasetningu en ég sakna þess að ekki sé á dagskrá að rétta hlut barna einstæðra mæðra. Inngangur umsagnarinnar er svo hljóðandi: Í þeim tilfellum er barn fæðist utan sambúðar eða hjónabands er það enn svo, hvort sem fólki líkar betur eða verr, að það er einkum móðir sem tekur mesta eða alla ábyrgð á umönnun barns í frumbernsku. Orlofsréttur einstæðra mæðra takmarkast við 6 mánuði og þær geta ekki fengið nema 6 vikur af rétti föður þrátt fyrir að faðir ákveði að taka ekki þátt í umönnun barns á fyrsta ári lífs þess. Börn einstæðra mæðra njóta ekki forgangs… Lesa alla
Hjálögð er umsögn mín um áform um lagasetningu en ég sakna þess að ekki sé á dagskrá að rétta hlut barna einstæðra mæðra. Inngangur umsagnarinnar er svo hljóðandi: Í þeim tilfellum er barn fæðist utan sambúðar eða hjónabands er það enn svo, hvort sem fólki líkar betur eða verr, að það er einkum móðir sem tekur mesta eða alla ábyrgð á umönnun barns í frumbernsku. Orlofsréttur einstæðra mæðra takmarkast við 6 mánuði og þær geta ekki fengið nema 6 vikur af rétti föður þrátt fyrir að faðir ákveði að taka ekki þátt í umönnun barns á fyrsta ári lífs þess. Börn einstæðra mæðra njóta ekki forgangs til dagvistunarpláss þrátt fyrir að brúa þurfi lengra bil milli dagvistunar og loka orlofs en meðal sambýlinga og hjóna. Líkt og nánar verður rakið í umsögn þessari bitnar þessi takmörkun á orlofsrétti einstæðs foreldris á samvistum barns við foreldra á fyrsta ári lífs þess, auk þess að setja atvinnu og fjárhag móður í svo mikið uppnám að kalla mætti fátæktrargildru. Allt kemur þetta að endingu niður á hagsmunum barna einstæðra mæðra og er til þess fallið að skekkja stöðu þeirra enn frekar við börn sambýlisfólks og hjóna. 2 gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna tryggir réttindi allra barna án mismununar og 3. gr. sáttmálans kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar ráðstafanir eru gerðar varðandi börn. Ljóst er því að núverandi fyrirkomulag stangast á við Barnasáttmálann sem hefur verið innleiddur í íslensk lög. Í Danmörku og Noregi fá einstæðar mæður sem fara einar með forsjá barns allan orlofsréttinn, þar með talið allan rétt sem faðir hefði annars átt. Þá féll nýverið dómur á æðsta dómsstigi á Spáni sem lagði bann við mismunun barna sem fæðast í fjölskyldu einstæðs foreldris. Í kjölfarið féll dómur á lægra dómsstigi sem úrskurðaði að einstæðir foreldrar ættu rétt á orlofi til jafns við sambúðarfólk og hjón, því annað væri mismunun á börnum einstæðra.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.