Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-17/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Almannatryggingar. Aldursviðbót og tenging við launavísitölu

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir áform um breytingar á ákvæðum laga um almannatryggingar um aldursviðbót og tengingu fjárhæða lífeyrisgreiðslna við launavísitölu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Fyrirhugað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um almannatryggingar um að aldursviðbót haldi sér en falli ekki niður á því tímamarki þegar örorkulífeyrisþegi nær ellilífeyrisaldri. Það þýðir að þau sem eiga engin eða mjög takmörkuð atvinnutengd réttindi til ellilífeyris vegna þess að þau voru ung metin með örorku muni áfram njóta stuðnings með viðbótargreiðslu. Jafnframt verður lögð til sú breyting að hækkanir á greiðslum almannatryggingalaga skuli taka mið af launavísitölu í stað viðmiðs um launaþróun sem notað er í dag. Nokkrar breytingar eru einnig fyrirhugaðar í tengslum við innleiðingu á nýju örorkulífeyriskerfi.

S-17/2025· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. feb. 2025 – 18. feb. 2025· 5 umsagnir

Almannatryggingar. Aldursviðbót og tenging við launavísitölu

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir áform um breytingar á ákvæðum laga um almannatryggingar um aldursviðbót og tengingu fjárhæða lífeyrisgreiðslna við launavísitölu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-17/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 155)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2026)

Áformin voru birt 4. febrúar 2025. Alls bárust 5 umsagnir um áformin. Drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt 24.febrúar 2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-17/2025: Almannatryggingar. Aldursviðbót og tenging við launavísitölu · Alviti