Áform um breytingu á lögum menningarminjar (Umsagnarskylda)
Lagt er til að endurskoðað verði ákvæði um umsagnarskyldu húsa í lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-13/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. febrúar 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 226)
Niðurstöður samráðs (18. mars 2025)
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsvirkjunar var lýst yfir stuðningi við breytingarnar. Í umsögn Minjastofnunar Íslands kom fram að ganga mætti lengra og afnema umsagnarskylduna. Fjarlægja aldursviðmið og kröfu, en opna formlega heimild sveitarfélaga og eigenda húsa og mannvirkja sem ekki falli undir aldursfriðun, en séu varðveisluverð og hluti af byggingararfi þjóðarinnar, að leita álits Minjastofnunar Íslands. Ráðuneytið taldi ábendingar Minjastofnunar málefnalegar og var tekin sú ákvörðun að fara þá leið í frumvarpinu sem stofnunin lagði til.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Samband íslenskra sveitarfélaga
Góðan daginn, Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- #2Minjastofnun Íslands
Góðan dag. Viðfest er umsögn Minjastofnunar Íslands. Með kveðju, Gísli Óskarsson Sviðsstjóri lögfræðisviðs
- #3Landsvirkjun
Meðfylgjandi í viðhengi er umsögn Landsvirkjunar.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.