Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-11/2025 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun (lagfæring, framlenging gildistíma)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um svæðisbundna flutningajöfnun til að færa 3. mgr. 6. gr. í rétt horf og framlengja gildistíma laganna.

Við undirbúning á framlagningu frumvarps til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun fyrir 154. löggjafarþing þar sem lagðar voru til breytingar á 6. gr. laganna, voru gerðar athugasemdir við að í 3. mgr. 6. gr. laganna væri að finna tilvísun til 200.000 evra. Bent var á að íslenskar krónur væru lögeyrir hérlendis og það ætti að endurspeglast í íslenskri löggjöf nema veigamikil rök mæltu gegn því. Með frumvarpi þessu er m.a. ætlunin að bæta úr þessu. Við vinnslu frumvarpsins kom svo í ljós að ekki er lengur miðað við gengi sem ESA gefur út og birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins og á vef stofnunarinnar við umreikning yfir í íslenskar krónur eins og getið er í 2. málslið 3. mgr. 6. gr. laganna. Við nánari eftirgrennslan hefur verið frá 1. janúar 2020 stuðst við annað verklag skv. fyrirmælum frá Evrópu og hefur því verklagi verið fylgt við útreikninga frá 1. janúar 2020. Lagt er til að lagatextanum verði breytt. Þá liggur fyrir að löggjöfin muni renna sitt skeið á enda þann 31. desember 2025. Fyrir liggur vilji til að viðhalda þeirri styrkvæðingu sem lögin kveða á um enda er gert ráð fyrir fjármögnun laganna í fjármálaáætlun til næstu fimm ára.

S-11/2025· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. feb. 2025 – 18. feb. 2025· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun (lagfæring, framlenging gildistíma)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um svæðisbundna flutningajöfnun til að færa 3. mgr. 6. gr. í rétt horf og framlengja gildistíma laganna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-11/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 176)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2025)

Frumvarp til laga um svæðisbundna flutningsjöfnun , 176. mál á 156. löggjafarþingi, varð að lögum þann 22. maí 2025. Enginn ágreiningur var um málið á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-11/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun (lagfæring, framlenging gildistíma) · Alviti