Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-8/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025-2029

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára, þ.e. skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi ákveður að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er lögð fram sem þingsályktun. Um er að ræða fyrstu áætlunina sem unnin er frá gildistöku endurskoðaðra laga um náttúruvernd árið 2013 og nær til fimm ára tímabils frá 2025-2029. Framkvæmdaáætlun skal, í samræmi við 2. tölulið 2. mgr. 33. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 vera skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi hefur ákveðið að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum. Tilgangurinn með vinnslu framkvæmdaáætlunar er að koma upp neti friðlýstra svæða til að stuðla að verndun lífríkis og jarðminja. Í apríl 2018 lagði Náttúrufræðistofnun Íslands (nú Náttúrufræðistofnun) fram tillögur að svæðum á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár út frá verndun vistgerða, fuglategunda og jarðminja, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Alls voru svæðin 112 talsins. Í þingsályktunardrögunum er lagt til að sex af þessum 112 svæðum fari á framkvæmdaáætlun. Rétt er að benda á að rúmlega 50 svæði af þeim 112 svæðum sem Náttúrfræðistofnun Íslands lagði til eru þegar innan friðlýstra svæða. Með því að gera tillögu að svæðum sem eru innan þegar friðlýstra svæða var stofnunin að benda á sérstöðu svæðanna innan stærri heildar sem taka þyrfti tillit til t.d. í stjórnunar- og verndaráætlun fyrir viðkomandi svæði. Töluvert samráð hefur átt sér stað til þessa við kynningu á þeim svæðum sem lagt er til að fari á framkvæmdaáætlun. Áður en lögbundið kynningarferli fór fram kynnti Náttúruverndarstofnun (þá Umhverfisstofnun) ferli framkvæmdaáætlunar sérstaklega fyrir viðeigandi sveitarfélögum og landeigendum til að upplýsa um verkefnið, hvað það fæli í sér og um fyrirhugað lögbundið kynningarferli. Í kjölfarið var farið í lögbundið kynningarferli þar sem tillaga að 10 svæðum á framkvæmdaáætlun var auglýst í Lögbirtingarblaðinu. Eftir að kynningartíma lauk lagði stofnunin til að grundvöllur væri fyrir því að svæðin Goðdalur, Hengladalir, Húsey-Eyjasel, Lauffellsmýrar, Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettur og Reykjanes – Þorlákshver við Brúará færu á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025-2029. Svæðin hafa öll hátt verndargildi. Þar er til dæmis að finna fágæta jarðhitalæki, víðáttumiklar mýrar sem gegna hlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar, staðbundnar fisktegundir, og einnig leita fuglategundir á válista þar athvarfs.

S-8/2025· Annað· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2025 – 20. feb. 2025· 19 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025-2029

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára, þ.e. skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi ákveður að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-8/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 267)
Niðurstöður samráðs (19. mars 2025)

Alls bárust 17 umsagnir um þingsályktunina. Umsögnum er svarað í greinargerð þingsályktunarinnar, en þingsályktunin og greinargerð hennar verða lögð fyrir 156. löggjafarþing Alþingis.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
  • #1Múlaþing

    Umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs, Múlaþingi.

  • #2Laufey Ólafsdóttir

    Sem ábúandi í Húsey vil ég ítreka mikilvægi þess að allt það sem talið er nauðsynlegt að framkvæma við ós Jökulsár og Lagarfljóts verði ekki settar skorður eða e.t.v. stoppað með friðlýsingu. Reynsla eftir vatnaflutninga vegna Kárahnjúkavirkjunnar sýndi að það að vatn Lagarfljóts ætti greiðan aðgang út í sjó kom í veg fyrir mikil flóð í landi og breytingar á landi Húseyjar. Að fylgst sé með ósnum og brugðist við eftir því sem þurfa þykir er allri ábúð og vernd á landi Húseyjar nauðsynlegt.

  • #3Hallur Þorsteinsson

    Sem eigandi jarðarinnar Skinnalóns á Melrakkasléttu mótmæli ég því harðlega að jarðarinnar Skinnalóns skuli ekki vera minnst á þeim lista jarða sem settu sig alfarið á móti að norður Melrakkaslétta yrði sett á framkvæmdaáætlun fyrir friðlýsingar. Bréf frá okkur eigendum Skinnalóns var sent á sama tíma og jarðirnar Harðbakur, Sigurðarstaðir, Brúnir og Núpskatla sendu inn sín mótmæli.

  • #4Helga Björk Jónsdóttir

    8. apríl 2024 var sendur tölvupóstur um að meirihluti landeiganda Oddsstaða á Melrakkasléttu landnúmer F2166467 hafi ákveðið að taka ekki þátt í framkvæmdaáætlun Náttúruminjaskrár Norður-Melrakkasléttu að svo stöddu en það kemur hvergi fram í skýrslunni. Vinsamlegast lagfærið þessi mistök!

  • #5Margrét Rögnvaldsdóttir
    Ég undirrituð þinglýstur fyrirsvarsmaður Harðbaks á Melrakkasléttu sendi bréf í tölvupóstu til Umhverfsistofunar dagsett 26.01.2024 sem var undirritað af öllum eigendum Harðbaks. Undirritaðir eigendur af Harðbakur I og II á Melrakkasléttu vilja ekki að jörðin sé á framkvæmdaráætlun um náttúruminjaskrá hjá Umhverfisstofnun eða að jörðin verði friðlýst í framhaldi af skráningu á slíkri náttúruminjaskrá. Eigendur vilja að Umhverfisstofnun taki strax jarðirnar Harðbakur I og II úr kynningarefni sínu um framkvæmdaráætlun náttúruminjaskrá fyrir Melrakkasléttu. Landnúmer 154161 og 154162. Harðbak.… Lesa alla

    Ég undirrituð þinglýstur fyrirsvarsmaður Harðbaks á Melrakkasléttu sendi bréf í tölvupóstu til Umhverfsistofunar dagsett 26.01.2024 sem var undirritað af öllum eigendum Harðbaks. Undirritaðir eigendur af Harðbakur I og II á Melrakkasléttu vilja ekki að jörðin sé á framkvæmdaráætlun um náttúruminjaskrá hjá Umhverfisstofnun eða að jörðin verði friðlýst í framhaldi af skráningu á slíkri náttúruminjaskrá. Eigendur vilja að Umhverfisstofnun taki strax jarðirnar Harðbakur I og II úr kynningarefni sínu um framkvæmdaráætlun náttúruminjaskrá fyrir Melrakkasléttu. Landnúmer 154161 og 154162. Harðbak. Eigendur Harðbak skilja alveg hvað felst í því að jörðin verði sett á náttúruminjaskrá og í framhaldi friðlýst af stjórnvöldum. Það er ótrúlegt að sjá að Ráðgjafanefndin geti ályktað að aðeins þurfi meiri samráð við eigendur til þess að þeir skilji hvað felst í þessarri framkvæmd. Eigendur Harðbaks hafa engan áhuga á að þeirra einkaland fari í þetta ferli stjórnvalda. Því var strax lýst skýrt í bréfi sem sent var 26.01.2024. Hér með er það ítrekað að ekki þurfi frekari samráð um málið við eigendur. Þeir skilja alveg hvað felst í því að jörðin sé sett á náttúruminjaskrá og í framhaldi verði hún friðlýst af stjórnvöldum. Á því er enginn áhugi hjá eigendum eins og þeir nú hafa þegar lýst yfir. F.h. eigenda Harðbaks I og Harðbaks II Margrét Rögnvaldsdóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-8/2025: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025-2029 · Alviti