Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-6/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði (reglusetningarheimildir)

Áformað er að leggja til nokkrar breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða með stjórnvaldsfyrirmælum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Áformað er að leggja til breytingar á 117. gr laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til breytingar á núgildandi reglusetningarheimild Seðlabanka Íslands. Þá er áformað að leggja til breytingar á reglusetningarheimildum 26., 100., 127.-129. og 134. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021. Settar hafa verið reglugerðir framkvæmdastjórnar (ESB) 2024/910, (ESB) 2014/912 og (ESB) 2024/913 sem fyrirhugað er að verði innleiddar í íslenskan rétt með stjórnvaldsfyrirmælum.

S-6/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2025 – 11. feb. 2025· 0 umsagnir

Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði (reglusetningarheimildir)

Áformað er að leggja til nokkrar breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða með stjórnvaldsfyrirmælum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-6/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. febrúar 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 172)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. mars 2025)

Engin umsögn barst. Frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi (172. mál).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-6/2025: Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði (reglusetningarheimildir) · Alviti