Drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, breytingar á henni o.fl.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).
Með frumvarpi til nýrra heildarlaga um verðbréfun er lagt til að STSR og tengdar gerðir verði innleiddar hér á landi. Lagðar eru til breytingar á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu sem varða verðbréfun og varfærniskröfur til aðila á fjármálamarkaði sem aðild eiga að slíkum viðskiptum, til samræmis við kröfur STSR, breytingar á henni, öðrum reglugerðum og tilskipunum.
Markmið frumvarpsins er að koma á styrkri lagaumgjörð og eftirliti með verðbréfun, draga úr áhættunni sem felst í henni og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða (e. simple, transparent and transparent, STS) frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Í STSR eru settar fram almennar kröfur sem gilda um alla verðbréfun og sértækar kröfur til STS-verðbréfunar.
STS-verðbréfun getur bæði verið hefðbundin og tilbúin. Hefðbundin verðbréfun á sér stað með raunverulegu framsali lánasafns til sérstaks verðbréfunaraðila, sem stofnsettur er í þeim tilgangi að framkvæma verðbréfanir. Skuldbindingar sérstaks verðbréfunaraðila eru aðskildar skuldbindingum upphafsaðila (sem eftir atvikum er upphaflegur lánveitandi). Í tilbúinni verðbréfun fer yfirfærsla áhættu fram með notkun lánaafleiðna eða trygginga, þ.e. samningi um útlánavörn í stað sölu á undirliggjandi eignum. Því á sér aðeins stað yfirfærsla greiðslufallsáhættu undirliggjandi kröfusafns. STSR kveður á um að einungis útlánavarnarsamningar af háum gæðum ættu að vera hæfir fyrir tilbúna STS-verðbréfun.
Verðbréfun getur verið tæki fyrir fjármagns-, lausafjár- og áhættustýringu aðila á fjármálamarkaði enda sé hún byggð á traustu skipulagi. STSR gerir ríkar kröfur til aðila að verðbréfun um stöðlun, gagnsæi, tilkynningaskyldu og eftirlit með áhættu.
Verðbréfunarskrá er nýr skráningarskyldur aðili á fjármálamarkaði, hjá Eftirlitsstofnun EFTA í tilviki EFTA-ríkjanna innan EES. Upphafsaðili, upphaflegur lánveitandi og sérstakur verðbréfunaraðili eiga að gera upplýsingar um verðbréfun aðgengilegar fjárfestum svo framkvæma megi áreiðanleikakönnun vegna áformaðra kaupa í verðbréfaðri afurð. Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) birtir jafnframt staðlaðar STS-tilkynningar af öllu EES-svæðinu á opinberu vefsvæði sínu. Fjármálaeftirlitið getur veitt þriðju aðilum starfsleyfi sem sannprófa að STS-kröfur séu uppfylltar.
Hér á landi er búist við að helstu aðilar að verðbréfun verði aðilar sem þegar eru eftirlitsskyldir, einkum fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög, rekstraraðilar sérhæfðra sjóða, rekstrarfélög verðbréfasjóða og mögulega lífeyrissjóðir. Aðrir þeir sem talist geta upphaflegir lánveitendur eða upphafsaðilar í skilningi STSR verða háðir eftirliti Fjármálaeftirlitsins samkvæmt fyrirhuguðum lögum.
Ekki er svigrúm til að víkja frá efnisákvæðum reglugerðanna sem tilheyra verðbréfunarpakkanum, en með frumvarpinu er lagt til að komi til fjárfestinga í verðbréfuðum stöðum af hálfu innlendra lífeyrissjóða, sem starfa á grundvelli laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, skuli 5. gr. STSR gilda um lífeyrissjóði líkt og þeir væru stofnanafjárfestar í skilningi reglugerðarinnar. Ákvæðið lýtur að framkvæmd áreiðanleikakönnunar. Sú tillaga er gerð með hagsmuni sjóðfélaga í huga og að því gefnu að fjárfestingar í verðbréfuðum afurðum teljist rúmast innan lögbundinna fjárfestingarheimilda þeirra. Í ljósi þess að um landsbundna tilhögun ræðir þykir best fara á að koma ákvæðinu fyrir í lögum um lífeyrissjóði.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012 (STSR) var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024, ásamt reglugerð (ESB) 2021/557 um breytingar á henni, reglugerðum (ESB) 2017/2401 og 2021/558 um breytingar á CRR-reglugerðinni nr. 575/2013 og framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBS) 2018/1221 um breytingu á afleiddri gerð Gjaldþolsáætlunar II eða Solvency II.
S-3/2025· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2025 – 31. jan. 2025· 0 umsagnir
Verðbréfun
Drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, breytingar á henni o.fl.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)