Drög að tillögu til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2025–2030.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-230/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. desember 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 566)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2026)
Alls bárust þrjár umsagnir um drög að tillögu til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma. Tekin var afstaða til umsagnanna í samráðskafla tillögunnar. Þingsályktunartillagan var lögð fram á 157. löggjafarþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Steinunn Perla Daníelsdóttir
Styð þetta málefni heilshugar.
- #2Hákon Björn Högnason
Sem erfðaráðgjafi er það stór hluti starfs míns að sinna einstaklingum með ýmsa sjaldgæfa sjúkdóma. Því er það mikið gleðiefni að styðja eigi við bakið á þessum hópi með þessari þingsáætlunartillögu. Styð hana alveg heilshugar.
- #3HD-Samtökin á Íslandi
HD-Samökin á Íslandi lýsa yfir fullum stuðningi við tillögu til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2025–2030. Samtökin vilja undirstrika mikilvægi samstarfs við sjúklinga- og aðstandendafélög í þessum flokki sjúkdóma vegna þekkingar sem slík félög hafa yfir að búa. Við fögnum viðleitninni að skapa miðlægan stuðning í gegnum Miðstöð Sjaldgæfra Sjúkdóma, bæði við sjúklinga og fjölskyldur. Við erum fullviss um að langtímáætlunin muni leiða til umstalsverðra umbóta fyrir sjúklinga og fjölskyldur þeirra.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.