Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-220/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025-2029

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025–2029.

Þingsályktunartillaga þessi er samin í heilbrigðisráðuneytinu og er unnin upp úr skýrslu starfshóps um krabbameinsmál sem skilaði heilbrigðisráðherra tillögu að aðgerðaáætlun til fimm ára í krabbameinsmálum hinn 20. júní 2024. Hérlendis greinast að meðaltali 1.700–1.800 manns með krabbamein á hverju ári og er krabbamein algengasta orsök dauðsfalla á Íslandi. Krabbamein snertir okkur öll, þar sem einn af hverjum þremur Íslendingum getur vænst þess að greinast með krabbamein á lífsleiðinni. Spáð er mikilli aukningu á nýgreiningum krabbameina á heimsvísu vegna mannfjöldabreytinga, hækkandi meðalaldurs og hækkandi krabbameinsáhættu. Í nýlegri spá fyrir Ísland er áætlað að fjöldi nýrra krabbameinstilfella frá árinu 2022 muni aukast um 53–57% til ársins 2040 og að lifendum, þ.e. fólki sem er á lífi og hefur fengið krabbamein, fjölgi um 54% til ársins 2040. Þessi fyrirséða fjölgun krabbameinssjúklinga og bætt lifun munu auka álag á heilbrigðiskerfið sem brýnt er að bregðast við. Stærstu áskoranirnar í krabbameinsþjónustu á Íslandi eru þar að leiðandi fjölgun nýrra krabbameinstilfella ásamt fjölgun þeirra sem eru í meðferð á hverjum tíma og þeirra sem lokið hafa meðferð en glíma við langvinna fylgikvilla. Ályktunin nær til áranna 2025–2029 og er skipt í sex kafla sem innihalda 16 aðgerðir. Sameiginleg markmið þeirra aðgerða sem lagðar eru til lúta að því að árangur hér á landi verði eins og best gerist á hinum Norðurlöndunum. Því markmiði verði m.a. náð með því að leggja áherslu á markvissar forvarnir gegn helstu áhættuþáttum krabbameina, skimun og snemmgreiningu meina, veita heildstæða krabbameinsþjónustu samkvæmt stöðluðum greiningar- og meðferðarferlum, tryggja jöfnuð í aðgengi að krabbameinsþjónustu óháð búsetu, uppruna og samfélagsstöðu og tryggja gæðastýrða krabbameinsþjónustu með notkun gæða- og árangursvísa.

S-220/2024· Drög að stefnu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2024 – 12. nóv. 2024· 3 umsagnir

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025-2029

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025–2029.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-220/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 88)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. maí 2025)

Þrjár umsagnir bárust um drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025-2029. Tekin var afstaða til umsagnanna í samráðskafla tillögunnar. Þingsályktunartillagan var lögð fram á 156. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-220/2024: Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025-2029 · Alviti