Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-219/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um opinbera samkeppnissjóði á sviði vísinda og nýsköpunar sem heyra undir ráðuneytið ásamt því að hlutverk Rannsóknamiðstöðvar Íslands í stuðningsumhverfi þekkingarsamfélagsins verði skilgreint. Meginmarkmið lagasetningarinnar er fjórþætt: Í fyrsta lagi að einfalda núverandi sjóðaumhverfi vísinda og nýsköpunar, fækka sjóðum og minnka umsýslukostnað með því að færa sjóði undir sömu lög og samræma stjórnsýslu eins og unnt er. Í öðru lagi að aðgreina sjóði til grunnrannsókna og grunnnýsköpunar með skýrari hætti frá þeim sjóði sem tekur áherslum stjórnvalda og miðar að því að leysa skilgreindar áskoranir. Í þriðja lagi að lögfesta árangurs- og áhrifamat á sjóðunum til að tryggja að þeir skili þeim árangri sem ætlað er og efli íslenskt þekkingarsamfélag og samkeppnishæfni. Í fjórða lagi að uppfæra lagalegt hlutverk Rannsóknamiðstöðvar Íslands í samræmi við núverandi verkefni stofnunarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að þeir átta sjóðir sem ráðuneytið hefur starfrækt; Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður, Innviðasjóður, Markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar, Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna, Nýsköpunarsjóður námsmanna, Lóa nýsköpunarstyrkir og Fléttan nýsköpunarstyrkir verði að Vísindasjóði, Nýsköpunarsjóði og Áherslusjóði. Sjóðirnir verða allir tengdir við áherslur og stefnu ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun en útfærsla er að öðru leyti sett í hendur stjórn sjóðanna. Gert er ráð fyrir að tveir sjóðanna, Vísindasjóður og Nýsköpunarsjóður, verði opnir en sá þriðji, Áherslusjóður, verði háður áherslum. Vísindasjóði er ætlað að styðja við grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Um er að ræða opinn sjóð sem felur í sér sameiningu Rannsóknarsjóðs, Innviðasjóðs og Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna. Einnig tekur sjóðurinn við fjármögnun hagnýtra rannsóknaverkefna sem hafa verið styrkt í gegnum Tækniþróunarsjóð undanfarin ár. Mælst er til að stjórn sjóðsins hafi stefnu ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun að leiðarljósi við útfærslu auglýsinga og sýni frumkvæði að breytingu áherslna eftir þörfum íslensks vísindasamfélags. Nýsköpunarsjóði er ætlað að styðja við nýsköpun á öllum sviðum. Sjóðurinn byggir á sameiningu Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna þar sem áherslan er á hvers kyns nýsköpun og hagnýtingu þekkingar með því markmiði að styðja við verkefni sem hafa langtímaávinning fyrir íslenskt atvinnulíf. Stefnt er að því að sjóðurinn hafi breiðari skírskotun en Tækniþróunarsjóður hefur gert og höfði til stærri markhóps. Nýsköpunarsjóði verður falið að fjármagna nýsköpunarverkefni fyrirtækja og einstaklinga og leggja áherslu á verkefni sprotafyrirtækja sem eru á upphafsreit. Sjóðurinn mun einnig fjármagna nýsköpunarverkefni námsmanna og skapa þar vettvang fyrir minni verkefni sem þó geta skilað miklu til lengri tíma þar sem námsmenn fá tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd undir leiðsögn reyndari aðila. Áherslusjóður miðar að því að leysa samfélagslegar áskoranir með aðferðum vísinda og nýsköpunar og í samstarfi við fjölbreytta aðila. Sjóðurinn leysir þar af hólmi Markáætlun á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni, Lóu nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina og Fléttuna sem hefur stutt við nýsköpun í heilbrigðiskerfinu. Sjóðurinn verður samstarfsvettvangur stjórnvalda þvert á málefnasvið til að, með reglubundnum hætti, skapa nýja hagnýta þekkingu samfélaginu til góðs. Mikil áhersla er lögð á samstarf háskóla, rannsóknastofnana, fyrirtækja og fleiri aðila til að efla þekkingu og skapa nýjar lausnir. Sjóðurinn styður þannig við áhersluverkefni á sviði vísinda og nýsköpunar óháð málefnasviðum. Sjóðurinn mun einnig fjármagna þátttöku Íslands í alþjóðlegum samfjármögnunaráætlunum. Samhliða breytingum á samkeppnissjóðum verður hlutverki og nafni Rannsóknamiðstöðvar Íslands breytt þannig að þau endurspegli raunveruleg verkefni stofnunarinnar. Engar breytingar hafa verið gerðar á hlutverki stofnunarinnar frá setningu laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Frá þeim tíma hafa aftur á móti umfangsmiklar breytingar átt sér stað á starfsemi stofnunarinnar og endurspeglar gildandi löggjöf ekki hin víðfeðmu og fjölbreyttu verkefni sem stofnunin sinnir í dag. Lagt er til að stofnunin fái nafnið Rannís – Þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins og að hlutverk stofnunarinnar verði skilgreint á breiðari grundvelli en áður sem þjónustu- og umsýslustofnun opinberra samkeppnis- og réttindasjóða. Það endurspeglar stærsta hlutverk hennar í dag og eykur möguleika á að stofnunin sinni faglegri þjónustu við fleiri sjóði og alþjóðlegar áætlanir óháð málefnasviðum ásamt öflugri miðlun á tækifærum, á viðeigandi hátt. Tengt því hlutverki safnar stofnunin mikilvægum gögnum sem nýta má til greiningar og áhrifamats ásamt eftirfylgni með opinberum fjárveitingum.

S-219/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2024 – 12. nóv. 2024· 11 umsagnir

Opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-219/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 320)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. júní 2026)

Ellefu umsagnir bárust um frumvarpsdrögin. Við frágang á frumvarpinu og greinargerðar með því til framlagningar á Alþingi var tekið tilli til umsagnanna. Nánar vísast til 5. kafla í tilvísuðu þingskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Hagþenkir,félag höfunda fræðirita og kennslugagna
    Umsögn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Sameining sjóða - áform um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Í tillögum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins felst að Rannsóknarsjóður, Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna (SSSF) og Innviðasjóður verði sameinaðir í einn sjóð sem styrki grunnrannsóknir. Hagþenkir telur það vera mjög misráðið að sameina SSSF og hina sjóðina tvo. Varðandi Rannsóknarsjóð þá er hann allt annars konar sjóður en SSSF og er skilgreindur sem „opinn samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja vísi… Lesa alla

    Umsögn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Sameining sjóða - áform um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Í tillögum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins felst að Rannsóknarsjóður, Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna (SSSF) og Innviðasjóður verði sameinaðir í einn sjóð sem styrki grunnrannsóknir. Hagþenkir telur það vera mjög misráðið að sameina SSSF og hina sjóðina tvo. Varðandi Rannsóknarsjóð þá er hann allt annars konar sjóður en SSSF og er skilgreindur sem „opinn samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám“. Allar umsóknir í Rannsóknarsjóð eiga undantekningarlaust að vera á ensku. Styrkir úr SSSF eru veittir til ritunar „fræðirita og –greina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi“. Langflestir þeir sem sækja um styrki í Rannsóknarsjóð starfa í háskólum og njóta þar styrks og skjóls til að miðla fræðum sínum. En margt af því mikilvægasta og fróðlegasta sem gefið er út hérlendis er unnið af sjálfstætt starfandi fræðimönnum utan háskólanna. Á sama tíma eru ófáar þeirra fræðibóka sem mestrar hylli hafa notið meðal almennings eftir höfunda sem starfa sjálfstætt og eiga litla sem enga möguleika á styrkjum úr Rannsóknarsjóði. Rétt er að geta þess að þessar sömu bækur rata einnig mjög oft á lista yfir rit sem hafa verið tilnefnd til ýmissa verðlauna, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Viðurkenningar Hagþenkis sem veitt hefur verið árlega allt frá árinu 1987. Auk þess að lúta í raun allt öðrum lögmálum en SSSF er Rannsóknarsjóður margfalt stærri sjóður en SSSF sem þó er langmikilvægasti sjóðurinn sem styrkir sjálfstætt starfandi fræðimenn. Helsta baráttumál Hagþenkis á undanförnum árum hefur verið að stórefla SSSF og hækka umtalsvert framlög í sjóðinn enda er ekki um það deilt að hann er verulega vanfjármagnaður. Fulltrúar félagsins hafa í þessu skyni átt fundi með starfsfólki ráðuneyta og minnt á þetta baráttumál við ýmis tækifæri, til dæmis í umsögn á síðasta ári um nýja bókmenntastefnu menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Þá skrifuðu Gunnar Þór Bjarnason, formaður Hagþenkis, og Henry Alexander Henrysson, stjórnarmaður í félaginu, grein á visir.is í nóvember 2023 þar sem vakin var athygli á nauðsyn þess að efla SSSF. Greinin bar yfirskriftina „Þungur róður“ og hana má finna hér: https://www.visir.is/g/20232482786d/thungur-rodur. Hagþenkir telur að með sameiningu sjóðanna þriggja sé veruleg hætta á að hlutur sjálfstætt starfandi fræðimanna, þeirra sem einkum hafa sótt um styrki úr SSSF, verði fyrir borð borinn og varar þess vegna eindregið við því að það verði gert. Fyrir hönd Hagþenkis, Gunnar Þór Bjarnason formaður.

  • #2Persónuvernd

    Meðfylgjandi er erindi frá Persónuvernd.

  • #3Valdimar Össurarson
    Umsögn Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna um frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun; lagt fram á 155. löggjafarþingi 2024-25: Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna; SFH, gera eftirfarandi athugasemdir við frumvarsdrögin: 1.gr. Markmið og gildissvið. Gerð er athugasemd við að heiti Rannís verði „Rannís – Þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins“. Svo víðtæk skilgreining á alls ekki við um starfsemi Rannís; hvorki nú né með fyrirhuguðum breytingum. Rannís stundar sjóðaumsýslu og það sem henni tilheyrir, en fæst t.d. ekki við almenna ráðgjöf til frumkvöðla og hugvitsfólks.… Lesa alla

    Umsögn Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna um frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun; lagt fram á 155. löggjafarþingi 2024-25: Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna; SFH, gera eftirfarandi athugasemdir við frumvarsdrögin: 1.gr. Markmið og gildissvið. Gerð er athugasemd við að heiti Rannís verði „Rannís – Þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins“. Svo víðtæk skilgreining á alls ekki við um starfsemi Rannís; hvorki nú né með fyrirhuguðum breytingum. Rannís stundar sjóðaumsýslu og það sem henni tilheyrir, en fæst t.d. ekki við almenna ráðgjöf til frumkvöðla og hugvitsfólks. Það hlutverk hefur nær alfarið hvílt á Samtökum frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN, eftir niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Gríðarlegar fjárveitingar hafa runnið til Rannís en stjórnvöld hafa í engu sinnt stuðningi við þetta mikilvæga hlutverk félaganna; þrátt fyrir fyrirheit stjórnvalda þar um. Ráðherra háskóla og nýsköpunar, ásamt Alþingi öllu, hafa daufheyrst við ákalli félaganna um lítilsháttar stuðning til að sinna þessu mikilvæga hlutverki sínu. 2.gr. Samkeppnissjóðir. Gerð er athugasemd um óvandað og ófullnægjandi orðalag um veigamestu þættina í starfsemi samkeppnissjóðanna; og þar með í starfsemi Rannís, en þeir eru gegnsæi, fagmennska, trúverðugleiki og óhlutdrægni. Þetta eru þeir þættir sem traust til stofnunarinnar byggist á. Frumvarpið getur þessara mikilvægu þátta í engu; heldur er fámennri yfirstjórn, með einni setningu, falið að klambra saman svonefndu „matsviðmiði“. Það er lágmarkskrafa; í fyrsta lagi að í þessum lögum verði tilgreind þau framangreind atriði sem þetta „matsviðmið“ skuli byggja á; og hvernig þeim markmiðum verði náð við meðhöndlun styrkumsókna. Í öðru lagi að gagnsæi ríki um faglega meðhöndlun styrkumsókna, t.d. um nafnbirtingu þeirra sem yfirfara og meðhöndla umsóknir. Og í þriðja lagi að fyrir liggi skýrt ferli um meðhöndlun kvartana vegna meðferðar umsókna. Gerð er krafa um að „matsviðmið“ Rannís verði samin í samráði við hagaðila, svo sem Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN – Félag kvenna í nýsköpun. Og að slíkt samráð verði áskilið í lögum þessum. Þessi athugasemd er hér sett fram af gefnu tilefni: Dæmi eru um það í tilfelli félagsmanna SFH að umsóknum i styrkjasjóði Rannís hafi verið hafnað án málefnalegra ástæðna. Ekkert gegnsæi ríkir um mat umsókna; ekki fást upplýsingar um matsmenn; hæfi þeirra eða hlulægni, og kvörtunum um slíkt er ekki svarað málefnalega. Með óbreyttum lagatexta verður áfram ríkjandi leyndarhyggja og pukur um meðferð styrkumsókna og mat á samkeppnishæfi þeirra. Slíkt pukur á ekkert skylt við sanngirni; heldur býður heim spillingu. 3.gr. Vísindasjóður. Af gefnu tilefni er nauðsynlegt að hnykkja á því í þessari grein, að Vísindasjóður skuli opinn öllum sem stunda vísindarannsóknir; ekki einungis þeim sem eru háskólamenntaðir eða starfa á vegum háskóla. Nauðsynlegt er að afnema það „menntasnobb“ sem einkennir starfsemi slíkra sjóða Rannís nú í dag, og er skaðlegt hverju samfélagi. Ekki þarf háskólamenntun til að stunda rannsóknir, þó hún kunni að vera kostur. Rannsóknir annarra kunna að vera jafn gagnlegar þróun og samfélagi. 4.gr. Stjórn Vísindasjóðs. Kveða þarf á um það í þessari grein að a.m.k. einn stjórnarmaður Vísindasjóðs komi úr samfélaginu utan háskólaumhverfisins. 5.gr. Fagráð Vísindasjóðs. Hér er sagt að meðlimir fagráðs skuli koma úr „vísindasamfélaginu“ án þess að það samfélag sé á nokkurn hátt skilgreint; hvorki í þessum lögum né öðrum. Nauðsynlegt er að hluti fagráðs komi úr samfélaginu utan háskóla; t.d. frá hagaðilum s.s. Samtökum frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN – Félagi kvenna í nýsköpun. Ótækt er að háskólasamfélagið úthluti sjálft skattfé almennings til eigin verkefna, án aðkomu utanaðkomandi aðila. 9.gr. Nýsköpunarsjóður. Orðalag um hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að mörgu leyti ásættanlegt. Þó skýtur skökku við að aðeins einn frumkvöðlahópur er nefndur öðrum fremur, sem eru háskólanemar. Ekki verður séð nein ástæða fyrir slíku, í ljósi hinna almennu ákvæða sem annars koma fram. Hér virðist enn vera á ferð sú tilhneyging frumvarpshöfunda að hlaða undir háskólasamfélagið á kostnað þeirra frumkvöðla sem standa utan þess. Hér segir að styrkveitingar skuli byggjast á faglegu mati og samrýmast stefnu stjórnvalda. Ekkert kemur fram um það hvaða meginþætti skuli hafa til viðmiðunar í því mati, eða hverjir framkvæma það. Þetta er augljós galli á lagasmíðinni og til þess fallinn að stuðla að leyndarhyggju og spillingu. Vísast um það til athugasemda hér að framan við 2. gr. 10.gr. Stjórn Nýsköpunarsjóðs. Gerð er alvarleg athugasemd við það að með þessari lagagrein er algerlega gengið framhjá einu hagsmunaaðilum hugvitsmanna og frumkvöðla hérlendis, sem eru Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN – Félag kvenna í nýsköpun. Þessi félög vinna umfangsmikið grasrótarstarf í nýsköpun, t.d. með einu gjaldfrjálsu ráðgjafaþjónustu á þessu sviði; reglulegum fræðslufundum og þekkingamiðlun til frumkvöðla á frumstigum; kynningu á frumkvöðlum og verkum þeirra; hagsmunabaráttu fyrir rétti þeirra; söfnun menningararfs á sviði nýsköpunar og sérstöku ráðgjafaverkefni fyrir fatlað fólk í nýsköpun. Öllu þessu er kastað fyrir róða í þessu frumvarpi, með því að þessum félögum er ekki gert kleift að hafa áhrif á stjórnun sjóða sem eiga að þjóna hinum breiða hópi skjólstæðinga félaganna. Að óbreyttu virðist hér eiga að lögfesta ægivald háskólasamfélagsins yfir stjórnun alls skattfjár almennings sem til nýsköpunar fer. Þeirri valdbeitingu er hér með harðlega mótmælt. Gerð er krafa um aðild félaganna að stjórnun Nýsköpunarsjóðs. 11.gr. Fagráð Nýsköpunarsjóðs. Sömu athugasemdir eru gerðar við þessa lagagrein og áður getur við 5. gr þessa frumvarps. Tryggja þarf aukið gegnsæi og aðild SFH og KVENN að fagráðum. 13.gr. Áherslusjóður. Hér er um nýjan sjóð að ræða, sem virðist eingöngu stofnaður til að þjóna pólitískum gæluverkefnum stjórnvalda hverju sinni. Með þessum sjóði er hlutverk Rannís fært frá því yfirlýsta markmiði að vera sjálfstæð stofnun sem metur verkefni á grunni þeirra eigin ágætis; í það að vera stofnun sem þjónar pólitískum hugðarefnum ráðherra á hverjum tíma. Sjóðurinn virðist þannig ekki eiga að taka neitt mið af langtíma stefnumótun í nýsköpun og vísindum, líkt og er yfirlýst meginstef í starfi Rannsís; heldur skal hann skipta um áherslur styrkveitinga eftir því hvaða persónur sitja hverju sinni í ráðherrastóli. Hér er með öðrum orðum verið að mynda nýja leið fyrir ríkisstjórn og ráðherra nýsköpunar til að sniðganga fjárlög Alþingis til að fjármagna eigin gæluverkefni. Hér er verið að sniðganga ákvæði 41. greinar Stjórnarskrár Íslands, þar sem segir að Alþingi skuli ákveða til hvaða verkefna skuli greitt úr ríkissjóði. Ráðstöfun þess fjár sem lagt er til þessa sjóðs verður ekki á nokkurn hátt háð samþykki Alþingis, heldur skal það lúta ákvörðun framkvæmdavaldsins á hverjum tíma. Hér er því um stjórnarskrárbrot að ræða. Ekki verður séð hvaða málefnaleg þörf er fyrir stofnun Áherslusjóðs. Vísindasjóður og Nýsköpunarsjóður ættu að vera fullfærir um að sinna öllum verkefnum á sviði nýsköpunar. Eini hvatinn að stofnun Áherslusjóðs virðist því vera löngun ráðherra til að ráðstafa almannafé framhjá þeim reglum sem gilda um fjárveitingar úr ríkissjóði. 14.gr. Stjórn Áherslusjóðs. Hér er gert ráð fyrir því að ráðherrar ríkisstjórnar hverju sinni skipi stjórnarmenn. Ljóst er að með þessu er verið að tryggja að enginn sitji í stjórn sjóðsins nema að hann sé tilbúinn að greiða fyrir gæluverkefnum ráðherranna með þeim fjárveitingum sem Áherslusjóður fær af skattfé almennings. Allt yfirbragð þessarar leikfléttu ber einkenni spillingar. 15.gr. Fagráð Áherslusjóðs. Fagráðið skal, samkvæmt þessu, vera skipað af þeim pólitísku fulltrúum sem ráðherrar skipa í stjórn. Fagráðið er því einnig skipað pólitískum fulltrúum ráðherranna hverju sinni. Þessi pólitíski hráskinnaleikur er staðfestur með því að gert er ráð fyrir nýju fagráði með nýrri ríkisstjórn. 18.gr. Hlutverk Rannís. Hér er ekki minnst einu orði á meginhlutverk Rannís, sem er að veita styrki til nýsköpunarverkefna og umsýsla tengd þeim styrkveitingum. Þó slíkt komi e.t.v. fram að einhverju leyti í fyrri greinum er nauðsynlegt að það komi einnig fram í þessu yfirliti. 19. Forstöðumaður. Engin málefnaleg rök eru fyrir því að forstöðumaður Rannís þurfi að hafa háskólapróf. Með því ákvæði er hlaðið undir mismunun í veitingu starfa og fordómum í starfaveitingum á vegum ríkisins. Slíkt er ekki í samræmi við ákvæði 65. gr Stjórnarskrár Íslands. Almennt um þetta lagafrumvarp: Mikið vantar á, varðandi ofangreindar reglur um skipanir í stjórnir og fagráð, að tryggt sé hlutleysi og hæfni umsækjenda. Í ljósi þess að þeir fulltrúar höndla með mikla fjármuni af almannafé og ráða örlögum manna og verkefna sem til sjóðanna leita, ætti það að vera sjálfsögð regla að sérstök hæfisnefnd fjalli um hæfi þeirra til starfanna. Þá skortir hér algerlega úrræði til handa þeim sem leita þurfa réttar síns vegna ákvarðana sjóða Rannís. Hvergi eru neinar áfrýjunar- eða kvörtunarleiðir. Þetta er sérlega alvarlegur ágalli í ljósi þess að í lögum um umboðsmann Alþingis er honum meinað að fjalla um mál sem varða ákvarðanir sjóðanna. Verði ekki tekið á þessum atriðum í þessari lagasetningu er verið að lögfesta alræðisvald þeirra sem fyrir hönd sjóðanna sjá um meðferð umsókna og úthlutun af almannafé; og gera umsækjanda réttlausan. Slíkt samræmist ekki á nokkurn hátt íslensku réttarfari. 11.11.2024 ___________________________________ Valdimar Össurarson, formaður SFH

  • #4Guðríður Erna Magnúsdóttir

    Umsögnin er send inn fyrir hönd Lífvísindaseturs Háskóla Íslands.

  • #5Ólafur Eysteinn Sigurjónsson

    Prófessor Ólafur Eysteinn Sigurjónsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-219/2024: Opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun · Alviti