Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-218/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029.

Þverfaglegur starfshópur heilbrigðisráðuneytis, matvælaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis var skipaður í desember 2022 og var falið að koma með tillögur að aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi. Starfshópurinn skilaði tillögum að fimm ára aðgerðaáætlun í janúar 2024. Tillögurnar hafa verið samþykktar sem aðgerðaáætlun stjórnvalda en áætlað er að leggja fyrir Alþingi að samþykkja aðgerðaráætlunina einnig. Sýklalyfjaónæmi er vaxandi alþjóðlegt vandamál og ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir. Sú hætta er raunveruleg að í náinni framtíð verði ekki hægt að meðhöndla einfaldar og alvarlegar sýkingar með sýklalyfjum. Slík staða myndi hafa gríðarlega alvarlegar heilsufars- og efnahagslegar afleiðingar fyrir þjóðir heims. Þótt sýklalyfjaónæmi sé ekki eins stórt vandamál hér á landi og í mörgum öðrum löndum, fer vandinn vaxandi hér sem annars staðar. Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi krefst alþjóðlegrar samvinnu, því ónæmar bakteríur dreifast milli landa og virða engin landamæri. Alþjóðlegar stofnanir hafa undanfarið bent á hættuna af völdum sýklalyfjaónæmra baktería og hvatt til aðgerða til að sporna gegn útbreiðslu þeirra áður en það verður of seint. Þar sem orsakir sýklalyfjaónæmis eru margar og samverkandi, hvetja alþjóðlegar stofnanir til þess að aðgerðaáætlanir þjóða byggi á nálgun „einnar heilsu“ (e. One Health) sem þýðir að aðgerðir þurfa að beinast að mönnum, dýrum, matvælum og umhverfi þar sem rætur vandans liggja. Aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda er unnin á þeim grunni og hefur því snertifleti við málaflokka á valdsviði ráðherranna þriggja sem hafa staðfest hana. Áætlunin nær til áranna 2025-2029 og inniheldur sex aðgerðir sem fela í sér 24 markmið og 75 verkefni sem nauðsynlegt er að hrinda í framkvæmd. Verkefnunum er forgangsraðað og kostnaður af framkvæmd þeirra metinn. Aðgerðunum sem um ræðir er ætlað að stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum. Þungamiðja áætlunarinnar felur í sér verkefni sem miða að því að minnka og bæta notkun sýklalyfja, auka hreinlæti og koma í veg fyrir sýkingar með öðrum ráðum eins og bólusetningum. Nauðsynlegur þáttur í því er að upplýsa og um mikilvægi skynsamlegrar sýklalyfjanotkunar og mikilvægi sóttvarna.

S-218/2024· Drög að stefnu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. okt. 2024 – 1. nóv. 2024· 1 umsögn

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-218/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. nóvember 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 87)
Niðurstöður samráðs (17. janúar 2025)

Ein umsögn barst um drög að tillögu um þingsályktun sem á ekki við um efni tillögunnar. Ráðgert er að tillaga til þingsályktunar verður lögð fram á 156. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Kittý Guðmundsdóttir

    Þetta frumvarp er meingallað. Það er ekki hægt að rökstyðja það að mótorhjól sem vanalega erum um ca 300kg og léttar greiði sama og bifreið sem er um ca 1500kg og hvað þá trukkar sem eru um 3000kg. Það hlýtur að vera hægt að setja ökutæki í flokka. Mótorhjól slíta vegum alls ekki eins mikið og önnur ökutæki. Minni hjól, léttari ökutæki og mun takmarkaðara á vegum landsins en önnur ökutæki.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-218/2024: Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025-2029 · Alviti