Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-215/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stuðningslán til rekstraraðila í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga

Lagt er til að ríkissjóður ábyrgist 90% af fjárhæð stuðningslána til minni rekstraraðila í Grindavík sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Með frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður ábyrgist 90% stuðningslána sem fjármálastofnanir veiti rekstraraðilum sem stundað hafa atvinnustarfsemi í Grindavík og orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa jarðhræringa á Reykjanesskaga. Lánið má rekstraraðili einungis nýta til að standa undir rekstrarkostnaði eða til að byggja upp starfsemi á nýjum stað. Ráðherra mun gera samning við lánastofnanir um lánveitinguna og hvernig staðið verður að greiðslu ábyrgðar ríkissjóðs, ef til kemur. Úrræðið á sér samsvörun í stuðningslánum sem voru veitt rekstraraðilum vegna heimsfaraldurs kórónaveiru. Umfang þessa úrræðis er hins vegar líklegt til að vera talsvert minna og því er ráðgert að öll umsýsla og yfirbygging vegna þess verði einfaldari. Í frumvarpinu er einnig fjallað um þau skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla til að fá stuðningslán með ríkisábyrgð. Þau eru eftirfarandi: • Rekstraraðili hafi verið með fasta starfsstöð í Grindavík 10. nóvember 2023. • Tekjur á rekstrarárinu 2022 hafi verið að lágmarki 15 millj. kr. og að hámarki 1.500 millj. kr. og að þær tekjur hafi dregist saman um 40% á einhverju 60 daga samfelldu tímabili eftir 10. nóvember 2023 til 10. október 2024. • Rekstraraðili hafi ekki greitt út arð eða kaupauka, keypt eigin hlutabréf eða gert aðra sambærilega gerninga frá 10. nóvember 2023 út þann tíma sem ábyrgðar ríkissjóðs nýtur við. • Rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinber gjöld eða skatta sem komin voru á eindaga fyrir 10. nóvember 2023. Einnig er í frumvarpinu fjallað um fjárhæð stuðningsláns, sem getur numið allt að fimmtungi af tekjum rekstraraðila á rekstrarárinu 2022. Fjárhæð lánsins getur þó að hámarki numið 50 millj. kr. Vextir lánanna skuli jafnháir vöxtum af sjö daga bundnum innlánum hjá Seðlabanka Íslands hverju sinni og lánið skal endurgreiða með jöfnum greiðslum síðustu 36 mánuði lánstímans, en lánstíminn er að hámarki 72 mánuðir.

S-215/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. okt. 2024 – 21. okt. 2024· 2 umsagnir

Stuðningslán til rekstraraðila í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga

Lagt er til að ríkissjóður ábyrgist 90% af fjárhæð stuðningslána til minni rekstraraðila í Grindavík sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-215/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 298)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. desember 2024)

Ábendingar sem bárust í samráði voru ekki þess efnis að gerðar yrðu breytingar. Óverulegar breytingar voru gerðar á frumvarpinu fyrir framlagningu á Alþingi, en m.a. var hámarksfjárhæð láns lækkuð í 49 milljónir kr.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Viggó Einar Viðarsson

    Einkafyrirtæki eiga ekki að fá fjárstyrki/lán úr ríkissjóði. Ríkissjóður á að bjóða eigendum að kaupa upp fyrirtækin miðið við virði þeirra á söludegi, ekkert annað, fyrirtækin hafa valmöguleika á að tryggja sig fyrir tjónum og það er ekki hlutverk ríkissjóðs að bjarga þeim sem ekki gerðu slíkt. Ef við ætlum að reka þjóðfélagið eftir kapítaliskum reglum þá eru styrkir og ríkistryggð lán til einkarekina fyrirtækja ekkert annað en þjónaður af hendi alþingismanna úr almannasjóðum.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-215/2024: Stuðningslán til rekstraraðila í Grindavík vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga · Alviti