Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-214/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Með lögum nr. 101/2023, um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða var fyrsta skrefið stigið í lögfestingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti með upptöku á kílómetragjaldi frá og með 1. janúar 2024 vegna notkunar rafmagns- og vetnisbifreiða annars vegar og tengiltvinnbifreiða hins vegar á vegakerfinu. Með frumvarpinu er lagt til að næsta skref verði stigið í lögfestingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti með upptöku á kílómetragjaldi frá og með 1. janúar 2025 vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu, þ.m.t. vegna notkunar ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Kílómetragjaldið mun taka mið af þyngd ökutækja og þar með af vegsliti sem þau valda. Með því verður gjaldtaka af ökutækjum í betra samræmi við áhrif þeirra á viðhaldskostnað vegakerfisins. Breytingarnar skjóta ekki aðeins styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkisins heldur koma þær einnig á skilvirkara og sanngjarnara gjaldakerfi fyrir eigendur og umráðamenn ökutækja. Samhliða innleiðingu á kílómetragjaldi fyrir ökutæki eru lagðar til breytingar á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. þar sem lagt er til að vörugjöld af eldsneyti falli niður. Auk þess er lögð til breyting á lögum nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta þar sem lagt er til að kolefnisgjald á kolefni af jarðefnauppruna verði u.þ.b. tvöfaldað. Jafnframt er lagt til að lög nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald og lög nr. 101/2023, um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða falli brott.

S-214/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2024 – 20. okt. 2024· 194 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-214/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 194 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 301)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2024)

Sjá niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (194)
  • #1Engilbert Ágúst Óskarsson

    Jafnframt er lagt til að lög nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald og lög nr. 101/2023, um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða falli brott. Mest mengun af bifreiðum óháð orkugjafa er svifryksmengun sem kemur frá dekkja/gatnasliti og finnst mér fráleitt að ökutæki sem nota dekk fái undanþáu á kílómetragjaldi.

  • #2Unnsteinn Lár Oddsson

    "Kílómetragjaldið mun taka mið af þyngd ökutækja og þar með af vegsliti sem þau valda. Með því verður gjaldtaka af ökutækjum í betra samræmi við áhrif þeirra á viðhaldskostnað vegakerfisins." Hafa skal í huga að bifhjól með 2 stk dekk fellur í 0-3500kg flokk en er yðulega léttara en 500kg og með minna slit á vegakerfi en bifreiðar með 4 stk dekk og eru yfir 1000kg og því ætti að bæta við sér flokki fyrir bifhjól og önnur farartæki sem eru léttari en 1000kg.

  • #3Ingimagn Eiríksson

    Þetta er svo vitlaust að þetta nær engri átt. Mótorhjól til að byrja með slíta vegum nánast ekkert miðað við 3.5tonn af bifreið. Afnemið þá líka bifreiðagjöldinn takk

  • #4Björn Anton Jóhannsson

    Góðan daginn, það er ekki tekið tillit til þess að mótorhjól eru að slíta vegum mun minna en bifreiðar og er því ekki réttlátt að greiða skuli sama km gjald, mótorhjól er jú bara með 2 dekk. Mótorhjól getur vigtað mest að 400kg eða 11,43% af 3.500kg hámarks þyngd í fyrsta verðflokki. Þessar staðreyndir ætti að taka tillits til við ákvörðunartöku um km gjaldið. Með vinsemd og virðingu. Björn Anton Jóhannsson

  • #5Halldór Örn Guðmundsson

    Hvers vegna er kílómetrateljari í mælaborðum nú orðin löggildur til að rukka skatta og gjöld eftir? Þarf ekki að setja teljara á hjólnöf eins og var á diesel bifreiðum síðast þegar þessi hugmynd gekk ekki og innsigla hann til þess að hægt sé að fá nákvæma niðurstöðu?

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-214/2024: Drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja, eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.) · Alviti