Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-213/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.)

Til umsagnar eru frumvarpsdrög þar sem lagðar eru til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum, m.a. á sviði skatta, lífeyris og vátrygginga auk annarra laga.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir breytingum á ákvæðum í lögum um gistináttaskatt, virðisaukaskatt, tekjuskatt, aukatekjur ríkissjóðs, innheimtu opinberra skatta og gjalda, gjald af áfengi og tóbaki, stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Jafnframt eru lagðar til breytingar á tollalögum og ákvæðum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða auk lagfæringar á löggjöf á vátryggingamarkaði o.fl.

S-213/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2024 – 20. okt. 2024· 27 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.)

Til umsagnar eru frumvarpsdrög þar sem lagðar eru til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum, m.a. á sviði skatta, lífeyris og vátrygginga auk annarra laga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-213/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 27 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 300)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2024)

27 umsagnir vegna málsins bárust í samráðsgáttina og hefur meðfylgjandi umfjöllun verið skipt í flokka samkvæmt þeim. Fyrirhugað er að frumvarp um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.) verði lagt fram á Alþingi á 155. löggjafarþingi 2024-2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (27)
  • #1Hjörtur Sveinsson
    Undirritaður gerir athugasemd við a) fyrirhugað gjald pr. gramm af heildarþyngd nikótínvara og b) krónutölu fyrirhugaðs gjalds á gramm af heildarþyngd nikótínvöru, sem er allt of hátt. Að auki þá furðar undirritaður sig á að eingöngu sé horft til gjaldtöku á nikótínvörum sem falla undir lög nr. 87/2018 en önnur neysluform nikótínvara eins og t.d. nikótíntyggjó, tungurótartöflur, munnúðar og plástrar eru undanskyld fyrirhugaðri gjaldtöku. Ef markmið laganna er að draga úr notkun á nikótíni þá ættu allar nikótínvörur að sjálfsögðu að falla undir sama hatt enda engin "hættulegri" aukaefni í t.d.… Lesa alla

    Undirritaður gerir athugasemd við a) fyrirhugað gjald pr. gramm af heildarþyngd nikótínvara og b) krónutölu fyrirhugaðs gjalds á gramm af heildarþyngd nikótínvöru, sem er allt of hátt. Að auki þá furðar undirritaður sig á að eingöngu sé horft til gjaldtöku á nikótínvörum sem falla undir lög nr. 87/2018 en önnur neysluform nikótínvara eins og t.d. nikótíntyggjó, tungurótartöflur, munnúðar og plástrar eru undanskyld fyrirhugaðri gjaldtöku. Ef markmið laganna er að draga úr notkun á nikótíni þá ættu allar nikótínvörur að sjálfsögðu að falla undir sama hatt enda engin "hættulegri" aukaefni í t.d. nikótínpúðum en í t.d. nikótíntyggjói- og töflum, sem er selt í lausasölu í flestum verslunum og bensínstöðvum landsins.

  • #2Egill Másson

    Athugasemd um breytingu á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995. Hækkun þessara vara er óhófleg og eykur hættu á að neytendur noti tóbaksvörur sem eru krabbameinsvaldandi. Það samræmist ekki lýðheilsusjónarmiði að taka gjald af heildarþyngd nikótínvöru heldur hvetur neytendur til að nota vörur sem innihalda sem hæstan þéttleika nikótíns. Eðlilegra væri að mða gkaldtöku við magn nikótíns.

  • #3Jón Frímann Jónsson
    "6. gr. Við 156. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er tollgæslu heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum ef það leiðir til óhóflegra tafa eða annarra erfiðleika að hann sé viðstaddur leitina. Upplýsa skal viðkomandi um að tollskoðun hafi farið fram ef hann hefur ekki verið viðstaddur leitina." Stjórnarskrá Íslands gildir einnig á svæðum sem eru þjónustuð af íslenska tollinum. Einnig sem að persónuverandarlög gilda á Íslandi. Stjórnarskráin og persónuverndarlög gilda einnig á þeim svæðum þar sem tollurinn starfa… Lesa alla

    "6. gr. Við 156. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er tollgæslu heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum ef það leiðir til óhóflegra tafa eða annarra erfiðleika að hann sé viðstaddur leitina. Upplýsa skal viðkomandi um að tollskoðun hafi farið fram ef hann hefur ekki verið viðstaddur leitina." Stjórnarskrá Íslands gildir einnig á svæðum sem eru þjónustuð af íslenska tollinum. Einnig sem að persónuverandarlög gilda á Íslandi. Stjórnarskráin og persónuverndarlög gilda einnig á þeim svæðum þar sem tollurinn starfar og hefur umsjón með. Þetta ákvæði gæti verið í andstöðu við 67. gr íslenskrar stjórnarskrár, ásamt ákvæðum 71. gr. íslenskar stjórnarskrár. Það er réttur hvers manns að vera viðstaddur og samþykkja tollskoðun þegar um er að ræða ferðir sem eiga sér stað í farþegaflutningum. Hvort sem er með flugi eða skipi. Hérna er einnig ekki tekið fram hvort um er að ræða tollskoðun á farangri fólks sem er að fara frá Íslandi, frekar en fólks sem er að koma til Íslands. Þessi skortur á nákvæmi í lögunum gerir þau opin fyrir túlkun og misnotkun af hálfu yfirvalda sem er stórhættulegt réttindum íslenskra borgara. Við innritun á farangri, þá er hann alltaf athugaður með gegnumlýsingarbúnaði nú þegar vegna öryggisatriða. Þessi lagagrein er því mesta lagi óþörf eða í annan stað, verið að auka völd tollsins óhóflega til þess að skoða farangur fólks án grunsemda. Þessi breyting gæti einnig verið í andstöðu við meðalhófsreglu og réttindi almennings um að sitja ekki undir óhóflegu eftirliti yfirvalda og án ástæðu eða grunsemda.

  • #4Benedikt Páll Jónsson
    Góðan dag, Varðandi tollaleit í farangri án samþykkis og án eiganda á staðnum getur ekki staðist persónuverndarlög og er hreinlega brot á einkalífi einstaklings. Í öðru lagi skattar af nikotín vörum og áfengi, er forræðishyggjan ekki komin of langt? Það er engin leið að fólk sem vill nota t.d íslenskt neftóbak sem er okkar eigin framleiðsla eigi efni á því… Tóbak og nikótín er löglegt á íslandi og ríkið á ekki að takmarka notkun með sköttum á þessum vörum þar sem hver og einn ákveður fyrir sig hvort hann vilji nota, skattlagningin á þessum vörum er klikkun fyrir og hefur hækkað í gegnum árin… Lesa alla

    Góðan dag, Varðandi tollaleit í farangri án samþykkis og án eiganda á staðnum getur ekki staðist persónuverndarlög og er hreinlega brot á einkalífi einstaklings. Í öðru lagi skattar af nikotín vörum og áfengi, er forræðishyggjan ekki komin of langt? Það er engin leið að fólk sem vill nota t.d íslenskt neftóbak sem er okkar eigin framleiðsla eigi efni á því… Tóbak og nikótín er löglegt á íslandi og ríkið á ekki að takmarka notkun með sköttum á þessum vörum þar sem hver og einn ákveður fyrir sig hvort hann vilji nota, skattlagningin á þessum vörum er klikkun fyrir og hefur hækkað í gegnum árin bara til að fólk eigi ekki að hafa val. Nikótínpúðar og vape vökvi ætti að haldast óbreytt þar sem þetta er eina sem fólk á efni á þessa dagana ( þökk sé skattlagningu). Að skattleggja það sem maður kaupir í útlöndum til einkanota er komið út í kjaftæði. Fólk hefur snúið sér að miklu leyti í nikótínpúða þar sem þeir hafa örlítið minna högg á fjárhagin. Eins með áfengi, ef eitthvað ætti að gera væri að lækka skatta. Almennt eru skattar á áfengi og tóbak/nikótín vörum allt of hátt. Varðandi lýðheilsu ætti frekar að setja meira eftirlit á sölustaði áfengis og tóbaks/nikótínvara.

  • #5Hallgrímur Andri Ingvarsson
    Efni: Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.)að frumvarpi til laga um breytingu á áfengislögum (vefverslun með áfengi) Hinn 15. október 2024 birti fjármálaráðuneytið, á samráðsgátt stjórnvalda, drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.) SH Import ehf. rekur verslanir með nikótínvörur og vill því koma eftirfarandi sjónarmiðum á framfæri, er varða fyrirhugaðar breytingar á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995 sem kynntar eru í f… Lesa alla

    Efni: Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.)að frumvarpi til laga um breytingu á áfengislögum (vefverslun með áfengi) Hinn 15. október 2024 birti fjármálaráðuneytið, á samráðsgátt stjórnvalda, drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.) SH Import ehf. rekur verslanir með nikótínvörur og vill því koma eftirfarandi sjónarmiðum á framfæri, er varða fyrirhugaðar breytingar á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995 sem kynntar eru í frumvarpinu. Í fyrirhuguðum breytingum felst m.a. eftirfarandi gjaldtaka 1. Nikótínvörur: 30 kr. fyrir hvert gramm af heildarþyngd vörunnar. 2. Vökvi í einnota rafrettum: 60 kr. á hvern millilítra af vökva. 3. Vökvi til áfyllingar á rafrettum: 60 kr. á hvern millilítra af vökva Að mati SH Import er þessi álagning óhófleg og ekki til þess fallin að ná fram markmiði sem aðgerðinni er ætlað að stefna að. Samkvæmt áhrifamati er gert ráð fyrir að tekjuaukningu ríkissjóðs sem nemur milljörðum króna, með eftirfarandi orðum. „Verði tillögur frumvarpsins um 60 kr. gjaldtöku á hvern millilítra af vökva í einnota rafrettum og áfyllingarvökva fyrir rafrettur að lögum, má vænta þess að tekjur ríkissjóðs af gjaldinu gætu numið 2 milljörðum kr. á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að tekjur ríkissjóðs af gjaldtöku á nikótínvörur að fjárhæð 30 kr. á hvert gramm gætu numið 4 milljörðum kr. Að auki má búast við hliðaráhrifum á VSK sem gætu numið 1,5 milljörðum kr.“ Í frumvarpinu er í kafla 3.18 fjallað um markmið lagasetningarnar og þar kemur fram: „[…]notkun á nikótínpúðum hefur aukist hröðum skrefum hér á landi undanfarin ár og mældist dagleg notkun ungra karlmanna í aldurshópnum 18-34 ára 32% á árinu 2023 en áður var hún nær 20% árið 2020. Á Íslandi hefur notkun á rafrettum einnig verið algengust á meðal ungs fólks þó dagleg notkun hér á landi hafi verið stöðug undanfarin ár, eða um 7% í aldurshópnum 18-34 ára. […] þörf sé á að grípa til frekari aðgerða til að sporna við frekari nýliðun meðal barna og ungmenna.“ Af þessu má ráða að tilgangur lagabreytinganna sé að sporna við því að börn og ungmenni hefji notkun á nikótínvörum. SH Import tekur undir þetta sjónarmið og leggur mikið upp úr því í sínum rekstri að það sé í hávegum haft. Hins vegar er ekki að sjá að samhengi sé milli þessara auknu álaga og framangreinds markmiðs. Vísað er í rannsóknir á notkun 18-34 ára einstaklinga á nikótíni. 18 ára einstaklingar eru ekki börn og fólk á fertugsaldri getur ekki talist ungmenni. Af því leiðir að ekkert kemur fram í athugasemdum frumvarpsins sem bendir til þess að notkun sé útbreidd hjá börnum. Þá er heldur ekki að sjá að útbreidd notkun einstaklinga á fertugsaldri geti með góðu móti talist réttlætingarástæða fyrir athöfnum hins opinbera til að vernda ungmenni. Ef markmiðið er hins vegar einvörðungu að auka tekjur ríkissjóðs, væri heiðarlegra að viðurkenna það í stað þess að bera fyrir sig vernd barna, sem ekki virðast þó vera útsett fyrir neinni hættu. Hagsmunamatið sem kemur fram í frumvarpinu ætti því að vera hagsmunir gjaldþolanda gegnt væntum tekjum ríkissjóðs, ekki hagsmunum barna. Þegar það hagsmunamat fer fram er ekki hægt að horfa fram hjá því að þessi aukna gjaldtaka er ekki án afleiðinga. Nikótínvörur hjálpa fólki að láta af tóbaksnotkun. Því er ekki hægt að líta fram hjá þessu mikilvæga hlutverki þeirra. Breytir þar engu um að dæmi kunni að þekkjast að fullorðið fólk neyti nikótínvara án þess að hafa glímt áður við tóbaksfíkn. Enn fremur ber að hafa í huga að fjöldi fólks atvinnu af sölu nikótínvara. Báðum þessum hagsmunum er stefnt í hættu með því að hækka álögur svo fram úr hófi sem áætlað er. Miðað við fyrirliggjandi forsendur, verður tóbak orðið hugsanlegra orðinn ákjósanlegri kostur en aðrar nikótínvörur og því hætt við að eftirsóknarverður árangur íslands í tóbaksvörnum tapist. Afleiðingar þessa væru ekki aðeins fyrirsjáanlega slæm lýðheilsuáhrifum, heldur einnig þær að lífsviðurværi fjölda fólks væri sett í hættu. Af frumvarpinu að dæma og áhrifamati sem liggur einnig til hliðsjónar á samráðsgátt hefur þetta mat ekki farið fram með fullnægjandi hætti. Af þeirri ástæðu mótmælir SH Import fyrirhugaða gjaldtöku, enda er hún ekki studd málefnalegum rökum eða fullnægjandi greiningu, kann að hafa neikvæð lýðheilsuáhrif og stefnir lífsviðurværi fjölda fólks í hættu. Fyrir hönd SH Import ehf, Hallgrímur A. Ingvarsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-213/2024: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.) · Alviti