Frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Frumvarpið felur í sér að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni hér á landi. Auðlesin útgáfa af frumvarpinu er birt í sérstöku skjali.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-208/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 187)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. febrúar 2026)
Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 11. október 2024 og var veittur frestur til og með 25. október til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-208/2024). Alls bárust þrjár umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar við gerð frumvarpsins. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi þann 12. nóvember 2025.
- Drög að frumvarpi um SRFF
- Frumvarpið á auðlesnu máli
- Nánari upplýsingar um SRFF
- SRFF á auðlesnu máli
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Viggó Einar Viðarsson
Hér vantar afleiðingar. Hver einstaklingur, hvort sem hann er fulltrúi sjálfs síns, fyrirtækis eða opinberar stofnunar skal hljóta tíu ára fangelsisdóm fyrir að mismuna einstaklingum vegna fötlunar þeirrar. Fyrirtæki sem verða uppvís að mismunum gagnvart fötluðum skulu verða gerð upptæk og skal ríkissjóður verða eigandi þeirra. Opinberar stofnanir sem mismuna einstaklingum vegna fötlunar skal vísað til ríkisendurskoðunar til að sjá hvaða aðgerða þarf að grípa til og sé stofnunin fundin sek skal það þýða tólf ára fangelsi fyrir þrjá æðstu yfirmenn þeirrar stofnunar og tvo æðstu yfirmenn þess rá… Lesa alla
Hér vantar afleiðingar. Hver einstaklingur, hvort sem hann er fulltrúi sjálfs síns, fyrirtækis eða opinberar stofnunar skal hljóta tíu ára fangelsisdóm fyrir að mismuna einstaklingum vegna fötlunar þeirrar. Fyrirtæki sem verða uppvís að mismunum gagnvart fötluðum skulu verða gerð upptæk og skal ríkissjóður verða eigandi þeirra. Opinberar stofnanir sem mismuna einstaklingum vegna fötlunar skal vísað til ríkisendurskoðunar til að sjá hvaða aðgerða þarf að grípa til og sé stofnunin fundin sek skal það þýða tólf ára fangelsi fyrir þrjá æðstu yfirmenn þeirrar stofnunar og tvo æðstu yfirmenn þess ráðuneytis sem stofnunin fellur undir.
- #2Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er í viðhengi
- #3ÖBÍ
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.