Einföldun málsmeðferðar laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum
Frumvarpinu er ætlað að einfalda málsmeðferð, gera lögin skilvirkari og samræma orðalag við önnur lög, auk þess að endurspegla þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna alþjóðlegrar réttaraðstoðar
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-207/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. október 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 131)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. ágúst 2026)
Ein umsögn barst í gegnum gáttina frá einstaklingi sem taldi rétt að gera breytingar á 2. gr. frumvarpsins til að heimila þjóðaratkvæðagreiðslur um framsal íslenskra ríkisborgara. Öllum lögregluembættum landsins var boðið að senda inn umsagnir um frumvarpsdrögin. Umsagnir bárust frá lögreglunni á Norðurlandi eystra, héraðssaksóknara og ríkissaksóknara. Fundað var með ríkissaksóknara og sendisaksóknara Íslands hjá Eurojust í kjölfar umsagnar frá embættinu auk þess sem fundað var með lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Viggó Einar Viðarsson
a. (2. gr.) Íslenskir ríkisborgarar. Ekki má framselja íslenska ríkisborgara. Hér þarf að gera breytingu og opna fyrir að þingmenn,ráðherra sé hægt að framselja hafi þau með gjörðum sínum eða lagasetningu valdið erlendu ríki tjóni. Slíkt framsal á að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu svo þjóðin eigi tækifæri á að losna undan því tjóni og ábyrgðum sem viðkomandi hefur skapað og myndu annars lenda á þjóðinni. Jafnframt þarf að vera valmöguleiki á að þjóðin geti óskað eftir atkvæðagreiðslu um framsal íslenskra ríkisborgara hafi þeir valdið landi og þjóð skaða á erlendri grundu eins og hinir alræmdu… Lesa alla
a. (2. gr.) Íslenskir ríkisborgarar. Ekki má framselja íslenska ríkisborgara. Hér þarf að gera breytingu og opna fyrir að þingmenn,ráðherra sé hægt að framselja hafi þau með gjörðum sínum eða lagasetningu valdið erlendu ríki tjóni. Slíkt framsal á að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu svo þjóðin eigi tækifæri á að losna undan því tjóni og ábyrgðum sem viðkomandi hefur skapað og myndu annars lenda á þjóðinni. Jafnframt þarf að vera valmöguleiki á að þjóðin geti óskað eftir atkvæðagreiðslu um framsal íslenskra ríkisborgara hafi þeir valdið landi og þjóð skaða á erlendri grundu eins og hinir alræmdu útrásavíkingar gerðu.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.