Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-200/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Framlenging á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 falla að óbreyttu úr gildi í lok árs. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja gildistímann um þrjú ár

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011, um stuðning við einkarekna fjölmiðla, falla að óbreyttu úr gildi í 1. janúar 2025 en stuðningskerfið hefur verið við lýði frá 1. ágúst 2021 og var síðar framlengt ásamt minniháttar breytingum 21. júní 2023. Menningar- og viðskiptaráðherra leggur til í drögum að frumvarpi til breytinga á fjölmiðlalögum að stuðningur til einkarekinna fjölmiðla verður framlengdur til þriggja ára.

S-200/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. okt. 2024 – 23. okt. 2024· 9 umsagnir

Framlenging á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 falla að óbreyttu úr gildi í lok árs. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja gildistímann um þrjú ár

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-200/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 256)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Skessuhorn ehf
    Til umsagnar er breyting á lögum um einkarekna fjölmiðla sem miða að framlengingu laganna um þrjú ár. Með samþykkt frumvarpsins er dregið mjög úr þeirri óvissu sem útgefendur einkarekinna fjölmiðla hafa mátt búa við á síðustu árum í ljósi skamms gildistíma laganna hverju sinni. Sem fyrr gegna fjölmiðlar veigamiklu hlutverki í samfélaginu, líkt og víðsvegar um heim þar sem lýðræðið er í hávegum haft. Hér á landi eru tvær blokkir fjölmiðla. Í annarri blokkinni er Ríkisútvarpið sem fær í krafti laga og fjárhagslegs forskots ægivald í samanburði við hina blokkina. Í síðarnefndu blokkinni eru á þr… Lesa alla

    Til umsagnar er breyting á lögum um einkarekna fjölmiðla sem miða að framlengingu laganna um þrjú ár. Með samþykkt frumvarpsins er dregið mjög úr þeirri óvissu sem útgefendur einkarekinna fjölmiðla hafa mátt búa við á síðustu árum í ljósi skamms gildistíma laganna hverju sinni. Sem fyrr gegna fjölmiðlar veigamiklu hlutverki í samfélaginu, líkt og víðsvegar um heim þar sem lýðræðið er í hávegum haft. Hér á landi eru tvær blokkir fjölmiðla. Í annarri blokkinni er Ríkisútvarpið sem fær í krafti laga og fjárhagslegs forskots ægivald í samanburði við hina blokkina. Í síðarnefndu blokkinni eru á þriðja tug ritstýrðra fjölmiðla sem flestir berjast í bökkum ef marka má ársreikninga þeirra. Fjölmiðlar á landsbyggðinni tilheyra síðari blokkinni og annast fréttaflutning á og af sínum svæðum - færa tíðindi sem ella væru flest ekki flutt. Nokkur landsvæði eru nú þegar án fjölmiðils og falla undir skilgreininguna fréttaeyðimörk. Landsbyggðarmiðlar hafa átt sérstaklega í vök að verjast, umfram stærri miðla og þá sem gefnir eru út á stór-höfuðborgarsvæðinu. Prentmiðlar eru í þrengstu stöðunni sökum m.a. hækkunar kostnaðar við prentun og dreifingu. Þar við bætist að fjölgun íslensku mælandi íbúa hefur ekki átt sér stað víða á landsbyggðinni, þar sem fólk af erlendu bergi brotið er frá fjórðungi og upp í þriðja hluta íbúa. Fæst af því ágæta fólki les íslenska miðla. Fyrst og síðast er þó helsta vandamál fjölmiðla breytt fjölmiðlalæsi yngra fólks og á það við á heimsvísu. Samfélagsmiðlar og ýmsar streymisveitur hafa tekið að hluta til yfir það hlutverk sem ritstýrðir fjölmiðlar gegndu alfarið áður og raka til sín tekjum sem áður runnu til framleiðslu frétta á ritstjórnum. Einkareknir fjölmiðlar þurfa því að aðlaga sig breyttu umhverfi, leita leiða til að efla tekjugrundvöll sinn - ella hætta starfsemi. Skessuhorn hefur einn fárra vefmiðla hér á landi reynt að bæta rekstrargrundvöll sinn með sölu áskrifta að vef. Hefur það verkefni gengið að vonum. Það er dæmi um hvernig fjölmiðlar geta, án aðkomu stjórnvalda, leitað nýrra leiða til tekjuöflunar og mætt hækkandi útgáfukostnaði og breyttri fjölmiðlanotkun yngra fólks. Undirritaður saknar þess að í öllum lögum og frumvörpum til stuðnings einkareknum fjölmiðlum til þessa, að ekki er hugað sérstaklega að stuðningi við þá fjölmiðla sem leita sér sjálfshjálpar með þessu móti. Þá hefur heldur ekki verið skattlögð auglýsingasala streymisveitna og samfélagsmiðla á sama hátt og íslenskir miðlar búa við. Á síðustu þremur árum hefur Skessuhorn ehf. notið stuðnings úr Ríkissjóði í gegnum styrkjakerfi til einkarekinna fjölmiðla. Undirritaður færir löggjafarvaldinu þakkir fyrir þennan skilning, en án þessara styrkja hefði rekstri þessa útgáfufyrirtækis verið hætt. Allur fyrirsjáanleiki er frumforsenda fyrir að hægt sé að taka stefnumarkandi ákvarðanir um áframhaldandi rekstur þessa fyrirtækis - og reyndar margra annarra sem stuðnings hafa notið. Þar af leiðandi fagna ég frumvarpinu svo langt sem það nær, fyrir hönd útgáfufélagsins Skessuhorns ehf. Magnús Magnússon, útgefandi

  • #2Gunnar Gunnarsson
    Útgáfufélag Austurlands, sem gefur út Austurgluggann og Austurfrétt, fagnar frumvarpinu. Opinberir styrkir hafa skipt miklu máli fyrir tilvist útgáfunnar frá 2020. Á sama tíma hefur félagið verið að vinna í fleiri tekjuleiðum til að styrkja rekstrargrundvöllinn til framtíðar. Styrkirnir hafa veitt hvatningu og skjól til að vinna að þeim. Mikilvægt er að styrkirnir séu tryggðir til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika. Þriggja ára gildistími frumvarpsins er þar skref í rétta átt. Eins og bent er á í greinargerð eru fjölmiðlastyrkir við lýði á hinum Norðurlöndunum og þar hefur vaxandi á… Lesa alla

    Útgáfufélag Austurlands, sem gefur út Austurgluggann og Austurfrétt, fagnar frumvarpinu. Opinberir styrkir hafa skipt miklu máli fyrir tilvist útgáfunnar frá 2020. Á sama tíma hefur félagið verið að vinna í fleiri tekjuleiðum til að styrkja rekstrargrundvöllinn til framtíðar. Styrkirnir hafa veitt hvatningu og skjól til að vinna að þeim. Mikilvægt er að styrkirnir séu tryggðir til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika. Þriggja ára gildistími frumvarpsins er þar skref í rétta átt. Eins og bent er á í greinargerð eru fjölmiðlastyrkir við lýði á hinum Norðurlöndunum og þar hefur vaxandi áhersla verið á að styðja við staðarmiðla. Útgáfufélagið hefur í fyrri umsögnum sínum, svo sem um fjölmiðlastefnu, komið á framfæri frekari athugasemdum og ábendingum um umgjörð staðbundinna fjölmiðla. F.h. Útgáfufélags Austurlands Gunnar Gunnarsson, ritstjóri fyrirsjáanleika Verið að vinna í fleiri leiðum til að styrkja tekjugrundvöll félagsins til framtíðar

  • #3Viggó Einar Viðarsson

    Fella allan stuðning til einkafyrirtækja niður samstundis. Eigendur þessara fyrirtækja völdu sér að fara út í þennan rekstur og það er ekki hlutverk ríkissjóðs að úthluta af skattfé styrki til fyrirtækja. Það er óeðlilegt að ríkisfé sé veitt í valin einkafyrirtæki og er mismunun gagnvart öðrum fyrirtækjum í landinu. Ef fyrirtækið telst nauðsynlegt eða það sé þörf fyrir slíkt fyrirtæki en ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir hendi á slíkt fyrirtæki að vera allfarið í eigu og rekið af ríkissjóði.

  • #4Elísa Guðrún ehf

    Sæl verið þið og þakkir fyrir stuðninginn við útgáfufélag Lifandi vísinda/Lifandi sögu í gegn um vefinn okkar, visindi.is. Það voru samt mikil vonbrigði á sínum tíma þegar ákveðið var að halda flestum, ef ekki öllum tímaritum fyrir utan þennan stuðning en lágmarki fyrir stuðningi er 20 prentútgáfur á ári. Flest, ef ekki öll tímarit koma sjaldnar út. Væri ekki lag að bæta tímaritum (eins og hugmyndin er í Danmörku) við í hugsanlegum stuðningi við einkarekinna fjölmiðla?

  • #5Tunnan prentþjónusta ehf.
    Umsögn og tillögur um breytingar á lögum nr. 38/2011 1. mgr. 62. gr. e. að lengja tímabil skipaðrar úthlutunarnefndar úr tveimur árum í þrjú! UMSÖGN: Sennilega er þetta talið praktíst atriði! Hreinlega erfitt að finna hæfa einstaklinga til að starfa í þessari úthlutunarnefnd. Set mig svo sem ekki beint upp á móti því, en mundi vilja að nöfn þessara einstaklinga verði birt á vef fjölmiðlanefndar. 2. Breyta ártali gildistíma til 2028 UMSÖGN: Set mig ekki upp á móti því, en það þarf að skilgreina þessi lög betur og ræða hvernig þessum málum er háttað! Hef fengið úthlutað frá því þetta byrjað… Lesa alla

    Umsögn og tillögur um breytingar á lögum nr. 38/2011 1. mgr. 62. gr. e. að lengja tímabil skipaðrar úthlutunarnefndar úr tveimur árum í þrjú! UMSÖGN: Sennilega er þetta talið praktíst atriði! Hreinlega erfitt að finna hæfa einstaklinga til að starfa í þessari úthlutunarnefnd. Set mig svo sem ekki beint upp á móti því, en mundi vilja að nöfn þessara einstaklinga verði birt á vef fjölmiðlanefndar. 2. Breyta ártali gildistíma til 2028 UMSÖGN: Set mig ekki upp á móti því, en það þarf að skilgreina þessi lög betur og ræða hvernig þessum málum er háttað! Hef fengið úthlutað frá því þetta byrjaði en verið með hálgert blóðbragð á tungunni! „Þá hefur heldur ekki verið skattlögð auglýsingasala streymisveitna og samfélagsmiðla á sama hátt og íslenskir miðlar búa við.“ Þessu þarf að taka á! Við prentmiðlar og aðrir sem eru að selja áskriftir og auglýsingar í pappírsfjölmiðlum er gert að greiða 11% vsk. af áskriftum og 24% vsk. af auglýsingum. Fólk hefur komist upp með að auglýsa á samfélagsmiðlum FRÍTT og ekkert hægt að fá fyrirtækin sem eru að reka þessa miðla til að innheimta VSK. til íslenska ríkisins. Nú er tæknin (símar) orðin það góð að hægt er að framkvæma þetta auðveldlega. Einfaldlega gæti fólk (atvinnulausir, öryrkjar og eldri borgarar) skráð sig sem tilkynnendur á auglýsingum á samfélagsmiðlum búðargluggum (eigandi verslunar væri ábyrgur fyrir auglýsingu þriðja aðila) og stöðum þriðja aðila, sent inn tilkynningu gegnum App í síma um auglýsingu sem ríkið ætti að fá vask af. Gullgæs fyrir tekjuöflun ríkisins og ef fólk færi í fýlu, þá mundum við bara losna við allan þennan ruslpappír í búðargluggum sem hangir oft langt fram yfir auglýstan viðburð og enginn nennir að taka niður! Þetta er óþolandi samkeppni og ég hef sefað samviskuna um að sækja um þessa styrki sem einskonar sárabót og kannski endurgreiðsla á þeim gjöldum sem við erum skyldug að skila til ríkisins. Tillaga að breytingu á. [62. gr. g. Skilyrði fyrir rekstrarstuðningi. Þar í lið 4 er eftirfarandi: „ 4. Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 sinnum á ári en staðbundnir fjölmiðlar 12 sinnum. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.“ Vil breita þessari grein og hafa þannig: Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 tölublöð á ári og að lámarki 160 blaðsíður A4 stærð eða sambærilegt með aðrar stærðir. Með staðbundna fjölmiðla kæmu 12 tölublöð með lámark 144 blaðsíður A4 stærð eða sambærilegt í öðrum stærðum. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni á virkum dögum í 26 vikur á ári. Styð hugmynd frá Elísa Guðrún ehf. Um að styðja við blöð eins og Lifandi vísindi sem þau gefa út. (þarf þá að bæta við grein um tímarit) Við sem erum að reyna að koma út efni á pappír þurfum stuðning, en ekki að það séu gerðar reglur til að reyna að bíta okkur af sér. Margir fá á tilfinninguna að það sé verið að sníða reglurnar að fáum útvöldum og þá upplifa þeir slík sem spillingu! Virðingarfyllst fyrir hönd Tunnunnar prentþjónustu ehf: Albert Gunnlaugsson ritstjóri Tunnan gefur út DB blaðið www.dbl.is

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-200/2024: Framlenging á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla · Alviti