Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-197/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið áformar að veita opinberum háskólum lagaheimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES svæðisins.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Markmið frumvarpsins verður að laga íslenska háskólakerfið að alþjóðlegri þróun, efla gæði háskólanáms og rannsókna og nýta betur það opinbera fé sem veitt er til fjármögnunar háskólastigsins. Í því skyni verður í frumvarpinu lagt til að veita opinberum háskólum heimild til að innheimta skólagjöld fyrir nemendur utan EES svæðisins, líkt og gert er í sjálfstætt starfandi háskólum hér á landi sem og í háskólum nágrannalandanna. Nemendur frá löndum utan ESS svæðisins, verði almennt teknir út úr fjármögnunarlíkani háskólanna, en þess í stað fái opinberir skólar heimild til að innheimta skólagjöld fyrir þá nemendur, sem svari að minnsta kosti áætluðum kostnaði við nám á tiltekinni námslínu. Samhliða þessu verði teknir upp námsstyrkir fyrir afburðanemendur frá löndum utan EES svæðisins í þeim tilgangi að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms hér á landi, óháð efnahag. Þessi breyting fæli ekki í sér skerðingu á heildarfjármögnun hins opinbera til háskólamála, heldur myndi sú fjármögnun nýtast betur í þá átt að auka gæði í háskólastarfi og veita góða þjónustu við nemendur.

S-197/2024· Áform um lagasetningu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. okt. 2024 – 15. okt. 2024· 14 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið áformar að veita opinberum háskólum lagaheimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES svæðisins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-197/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 309)
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2024)

Alls bárust umsagnir frá 14 umsagnaraðilum. Að umsagnarrfresti liðnum var unnið áfram með málið og útbúin drög að frumvarpi til laga um gjaldtökuheimildir opinberra háskóla sem birt voru í Samráðsgátt 8. nóvember 2024. Í drögunum er gert grein fyrir þeim umsögnum sem bárust og brugðist við.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1Muhammad Umar

    This will close the doors for underprivilege students to get higher studies in a good university (HÍ). Most of the student outside EU can not afford fee plus residential expenses. If you wants to promote quality education byound boundaries please keep it as it is now.

  • #2Muhammad Umar

    Please dont do that. This will make it difficult for students to get exposure to a worldclass university. Most of the students are from underprivileged background who come here outside of EU

  • #3Ármann Jakobsson
    Ekki er óvænt að ákveðinn vilji sé til að færa stöðuna í þessum efnum nær því sem er á öðrum Norðurlöndum og það er afar mikilvægt að styrkir fyrir efnilega námsmenn verði til í leiðinni (fleiri heldur en færri), en það ekki síður mikilvægt að huga að sérstöðu námsgreina sem Ísland ber ábyrgð á umfram aðrar og ég nefni þar sérstaklega til íslensk fræði og miðaldarannsóknir. Á seinustu árum og áratugum hafa fjölmargir nemendur frá löndum utan EES-svæðisins sótt hingað nám í miðaldafræði og eins sækja allnokkrir nemendur hingað í doktorsnám í norrænum fræðum. Sjálfur hef ég leiðbeint einum fjó… Lesa alla

    Ekki er óvænt að ákveðinn vilji sé til að færa stöðuna í þessum efnum nær því sem er á öðrum Norðurlöndum og það er afar mikilvægt að styrkir fyrir efnilega námsmenn verði til í leiðinni (fleiri heldur en færri), en það ekki síður mikilvægt að huga að sérstöðu námsgreina sem Ísland ber ábyrgð á umfram aðrar og ég nefni þar sérstaklega til íslensk fræði og miðaldarannsóknir. Á seinustu árum og áratugum hafa fjölmargir nemendur frá löndum utan EES-svæðisins sótt hingað nám í miðaldafræði og eins sækja allnokkrir nemendur hingað í doktorsnám í norrænum fræðum. Sjálfur hef ég leiðbeint einum fjórum doktorsnemum utan svæðisins sem allir hafa síðan verið ódeigir sendiherrar íslenskra ræða og íslenskrar menningar og hafa notið þess að geta stundað nám hér á Íslandi, og af þeirri reynslu tel ég óhætt að fullyrða að meistara- og doktorsnám í norrænum miðaldafræðum hefur verið lyftistöng fyrir Háskóla Íslands, rannsóknir á íslensku og sérstaklega íslenskar bókmenntir fyrri alda. Ég gæti bætt sjálfu Íslandi við þessa upptalningu. Þetta nám þarf á stuðningi stjórnvalda að halda og núverandi lág skólagjöld hafa í raun verið slíkur stuðningur. Þess vegna er mikilvægt að tryggja stöðu þessarar fræða ef þessi breyting yrði að veruleika, t.d. með því að inntöku í allt íslenskunám og nám í íslenskri menningu, a.m.k. meistara- og doktorsnám, fylgi niðurfelling skólagjalda. Nú þegar er enginn tekinn inn í námið nema nemendur sem hafa sýnt sig og sannað þannig að vitað er fyrir að undanþágan myndi einkum nýtast fólki sem Háskóla Íslands er mikill akkur í að fá. Slíkir nemendur búa ekki einungis á EES-svæðinu. Eins er ljóst að vegna tiltölulega fárra styrkja fyrir framhaldsnema hafa lág skólagjöld verið eitt helsta aðdráttarafl fyrir fólk úr löndum þar sem skólagjöld eru há sem hefur áhuga á að stunda nám í íslenskum fræðum á Íslandi og það er varla vilji stjórnvalda að Ísland hætti að vera samkeppnishæft þegar kemur að því að laða til sín nemendur með mikinn áhuga á íslenskri menningu og íslenskum fræðum. Það þjónar ekki íslenskum hagsmunum að takmarka aðgang að íslenskunámi (og sérstaklega ekki á framhaldsstigi) við Háskóla Íslands. Háskólinn verður að geta boðið slíkt nám án hárra skólagjalda. Undanfarin ár hafa íslensk stjórnvöld sýnt mikinn vilja til að standa vörð um íslenska tungu og íslenska menningu og einn liður í því er að standa vörð um þessar námsgreinar í Háskólanum. Þess vegna legg ég til að bætt verði í heimildina ákvæði um að greinar sem eru hvergi kenndar nema á Íslandi eða eru sérstaklega mikilvægar fyrir Ísland, íslenska tungu og menningu verði sérstaklega undanskildar þessu heimildarákvæði, að minnsta kosti á framhaldsstigi þar sem gerðar eru strangar kröfur til nemenda sem fá aðgang. Það væri æði slysalegt ef helstu Íslandsvinum og boðberum menningarinnar fækkaði vegna þessarar kerfisbreytingar.

  • #4Marcello Milanezi
    This Bill falls in disaccord with HÍ26, which aims for equality amongst students. The bill, proposed by Áslaug Arna, or at least she pointed it out in RÚV two months ago, goes directly against goal number 2 of HÍ26: "A Diverse University Community" - The University will be an even better workplace, ensuring equality and attracting students and staff from diverse backgrounds. Students with immigrant backgrounds will receive special support, and an emphasis will be placed on diversity in the student body. Well, clearly this goes against the achievement of such goal. 1. This will affect exactl… Lesa alla

    This Bill falls in disaccord with HÍ26, which aims for equality amongst students. The bill, proposed by Áslaug Arna, or at least she pointed it out in RÚV two months ago, goes directly against goal number 2 of HÍ26: "A Diverse University Community" - The University will be an even better workplace, ensuring equality and attracting students and staff from diverse backgrounds. Students with immigrant backgrounds will receive special support, and an emphasis will be placed on diversity in the student body. Well, clearly this goes against the achievement of such goal. 1. This will affect exactly the lower-income foreigners; 2. Non-EEA is not allowed more than 50% work rate, meaning a group that earns less will have to spend more; 3. It might increase problems of "brain-drain", as Iceland already loses experts that graduate, and now will risk choking the arrival of new experts migrating into the country; 4. all those points affect the knowledge and cultural flow that is expected within international-level universities. Lastly, there's research that shows negative effects of those policies in such countries: https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/23322969.2022.2105255#abstract

  • #5Torfi Tulinius

    Sjá meðfylgjandi umsögn í viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-197/2024: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 · Alviti