Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.)
Áformað er að leggja fram frumvarp þar sem lagðar verða til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum m.a. á sviði skatta, lífeyris og vátrygginga auk annarra laga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-192/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. október 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 300)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2024)
Sex umsagnir vegna málsins bárust í samráðsgáttina og hefur meðfylgjandi umfjöllun verið skipt í flokka samkvæmt þeim.
- Áform um lagasetningu - Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld í samráðsgátt.pdf
- Mat á áhrifum - Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld í samráðsgátt.pdf
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Sæunn Þóra Þórarinsdóttir
íslenski hesturinn - er einsakur á heimsvísu, lítið hrossakyn og lítill stofn hrossa, sem að varðveita verður með öllum ráðum - aðallega vegna þess að sérstaða hans í heiminum - sem fjölskyldueignar og sporthests í keppnisgreinum sem engar aðrar hestategundir státa sig af í sambærilegri keppni og eykur árlega verðmæti hrossana í alþjóðlegri sölu og markaðsvæðingu - að eiga þennan einstaka hest sem landkynningu, sem vinar í nærri hverri fjölskyldu - erlendis og hérlendis spyr fólk um ágæti hans - litafegur og 5 gangtegundir og allar sérstöku leiðirnar sem eigendur hafa valið að fara sér til ynd… Lesa alla
íslenski hesturinn - er einsakur á heimsvísu, lítið hrossakyn og lítill stofn hrossa, sem að varðveita verður með öllum ráðum - aðallega vegna þess að sérstaða hans í heiminum - sem fjölskyldueignar og sporthests í keppnisgreinum sem engar aðrar hestategundir státa sig af í sambærilegri keppni og eykur árlega verðmæti hrossana í alþjóðlegri sölu og markaðsvæðingu - að eiga þennan einstaka hest sem landkynningu, sem vinar í nærri hverri fjölskyldu - erlendis og hérlendis spyr fólk um ágæti hans - litafegur og 5 gangtegundir og allar sérstöku leiðirnar sem eigendur hafa valið að fara sér til yndisauka, við að brúka hestinn - um allan heim - hann er taugasterkur og lipur, sterkur og þolir vinda og veður, fóður og uppihald er fólki léttara á buddu en stærri hestakyn leyfa og hreysti hans er rómað, enda er hesturinn hérlendis nær alveg laus við alla sjúkdóma og þessar sérmeðferði sem að nær öll önnur hestakyn þurfa árlega vegna allavega veikinda sem á þau herja og finnast ekki hérlendis - ... það er grimmt að - halda því fram að ekki þurfi lengur stuðning við íslenska hrossarækt - hún er mögulega eina kosnaðarlausa búgreinin hérlendis, sem að þrífst án þess að ýtt sé undir bændur og hrossaeigendur - með ríkisstyrkjum - áhugi manna og kvenna á dýrunum hefur gert það að verki að það er núna framför mælanleg árlega - varðandi keppnisgreinar og mælanlegar kynbætur -... það er svívirða að halda því fram að núna sé ekki lengur þörf á þróunnar og rannsóknarvinnu, - í kringum hrossin okkar, því þau þurfa jú enn á allavega uppbyggingu að halda - og upplýsingar að liggja fyrir sambærilegar þeim sem finna má um önnur hrossakyn og eykur á verðmæti þeirra að byggja upp vísindalegan þekkingargrunn, - þar sem að heilsufar, bygging og brúkun - er í bókum - rannsökuð og haldið um upplýsingarnar á viðurkenndum þekkingargrunni ... - það er það sem að málið snýst um - að við tryggjum að hérlendis sé öll vitneskja um hver staðan á íslenskri hrossarækt er og möguleiki á að sú vitneskja nýtist öðrum eigendum íslenskra hrossa á heimsvísu - ... enda hlýtur öryggi að eiga allar upplýsingar um þennan einstaka hest að liggja á íslenskri grundu og hjá landsmönnum sannarlega og landsmenn að gera kröfur um að ráðamenn hérlendis - haldi úti öllum öngum að tryggja framtíð íslenskrar hrossaræktar með öllu þekktum og tiltækum leiðum - ... þrónunar og rannsóknarstarf hefur farið fram í fjölda ár og íslenski hesturinn sannarlega varðveitist vel og framfarir hafa orðið í ræktun hans - við megum ekki gleyma því og alls ekki að setjast aftur fyrir hnakk, og lenda á lendinni - ... með að viðhalda því ræktunarstarfi sem að fram hefur komið hingað til - ... þetta er mín skoðun og deili henni hér... sparið í einherju öðru en þessum lið fjárlaga kæru embættismenn - kv frá lágafelli - sæunn
- #2Landssamtök lífeyrissjóða
Umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða í viðhengi.
- #3Birta Sif Arnardóttir
Meðfylgjandi er umsögn Félags atvinnurekenda um áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl)
- #4Gyða Guðmundsdóttir
Góðan dag Varðandi breytingar á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, vegna óskiptrar ábyrgðar umboðsmanna og annarra sem eru í fyrirsvari fyrir erlenda aðila sem reka hér á landi skattskyld viðskipti. Þar sem er til skoðunar að gera breytingar á j. lið 2. tölul. 1. mgr. 12. gr. laganna með það að markmiði að gera ákvæðið skýrara. Ef þetta ákvæði á við ábyrgð umboðsmenn skemmtiferðaskipa vilja AECO - Samtök leiðangursskipa á Norðurslóðum, vísa í fyrri umsagnir. Bent er á að ekkert samráð hefur verið haft við hagaðila. Virðingarfyllst
- #5Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka atvinnulífsins.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.