Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-191/2024 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Fyrirhugað er að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var samþykkur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 13. desember 2006. Samningurinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd árið 2016. Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mannréttinda og grundvallafrelsis og að efla virðingu fyrir eðlislægri reisn þeirra. Tilvist sjálfstæðrar mannréttindastofnunar hefur verið talin forsenda þess að hægt sé að lögfesta SRFF, þar sem samningurinn leggur þá skyldu á aðildarríki að slík stofnun sé til staðar. Í ljósi þess að lög um Mannréttindastofnun Íslands voru samþykkt á Alþingi í júní sl. er fyrirhugað lögfesta samninginn í heild sinni. Með fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur íslenska ríkið þegar skuldbundið sig til þess að koma öllum þeim réttindum sem fram koma í samningnum í framkvæmd. Þá hafa þegar verið gerðar ýmsar breytingar á lögum til að aðlaga þau að samningnum. Samningurinn í heild sinni hefur þó ekki lagagildi hér á landi. Með lögfestingu samningsins í heild sinni er tryggt að hægt verði að beita samningnum sem fullgildri réttarheimild hér á landi. Samhliða lögfestingu mun einnig koma til skoðunar hvort gera þurfi breytingar á öðrum lögum til að tryggja betur samræmi við samninginn.

S-191/2024· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. sep. 2024 – 7. okt. 2024· 5 umsagnir

Áform um lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Fyrirhugað er að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-191/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 187)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. febrúar 2026)

Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 25. september 2024 og var veittur frestur til og með 7. október sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust fimm umsagnir um áformin. Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 11.-25. október 2024 (mál nr. S-208/2024).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. Sambandsins, Valgerður Rún

  • #2NPA miðstöðin svf.

    Umsögn NPA miðstöðvarinnar er í viðhengi.

  • #3ÖBÍ
  • #4Byggðarráð Skagafjarðar
    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að fyrirhugað sé að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni. Byggðarráð vekur þó athygli á að í mati á áhrifum fyrirhugaðrar lagasetningar kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag sveitarfélaga, umfram það sem nú þegar leiðir af skyldum sveitarfélaga til að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Staðreyndin er sú að sveitarfélög landsins greiða nú þegar milljarða króna árlega til málaflokksins umfram tekjustofna og framlaga frá ríkissjóði vegna hans og því afar brýnt að tryggja tafarlausa leiðrétting… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að fyrirhugað sé að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni. Byggðarráð vekur þó athygli á að í mati á áhrifum fyrirhugaðrar lagasetningar kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag sveitarfélaga, umfram það sem nú þegar leiðir af skyldum sveitarfélaga til að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Staðreyndin er sú að sveitarfélög landsins greiða nú þegar milljarða króna árlega til málaflokksins umfram tekjustofna og framlaga frá ríkissjóði vegna hans og því afar brýnt að tryggja tafarlausa leiðréttingu á rekstri málaflokksins samhliða lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

  • #5Landssamtökin Þroskahjálp

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-191/2024: Áform um lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks · Alviti