Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-189/2024 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (gagnsæi og tengdir aðilar)

Í frumvarpinu er mælt fyrir um skilgreiningu tengdra aðila, eftirlitsúrræði Fiskistofu vegna ákvæða um hámarksaflahlutdeild, aukið gagnsæi, upplýsingagjöf um eignarhald útgerða og tengsl milli þeirra.

Í 1. gr. eru ákvæði um skyldu til að veita Fiskistofu upplýsingar um tilgreind atriði þegar aðilaskipti verða að aflahlutdeild. Nánar tiltekið verði skylt að láta Fiskistofu í té upplýsingar um viðskipti eða annan grundvöll aðilaskipta, þ.m.t. hlutaðeigandi aðila og verð sem greitt er fyrir aflahlutdeild, án tillits til þess í hvaða formi greiðslan er. Þá verði upplýsingar um þessi atriði birtar opinberlega að ákveðnu marki, á líkan hátt og viðskipti í kauphöll o.þ.h. Í 2. gr. eru lagðar til breytingar á skilgreiningu tengdra aðila til að gera skilgreininguna skýrari og nútímavæða hana, sbr. 4. mgr. 13. gr. gildandi laga. Meðal annars er lagt til að hugtakið yfirráð verði skilgreint með sama hætti og í samkeppnislögum. Einnig eru lagðar til afmarkaðar efnis¬breytingar á ákvæðinu sem felast í því að fleiri tegundir fjölskyldutengsla gera einstaklinga að tengdum aðilum en nú gildir, þ.m.t. tengsl systkina og sambúðarfólks. Jafnframt er lagt til nýmæli um að eignarhlutdeild að 20% eða meira sem ein útgerð fer með í annarri hafi þau réttaráhrif að aflahlutdeild hinnar síðarnefndu skuli að hluta lögð saman við aflahlutdeild hinnar fyrrnefndu þegar hámarksaflahlutdeild hennar er reiknuð út. Þótt ekki sé um verulegar breytingar að ræða er engu að síður lagt til með tilliti til meðalhófs að veittur verði rúmur aðlögunarfrestur. Því taki ákvæðið ekki gildi fyrr en 1. janúar 2027 verði það samþykkt. Í 3. gr. eru lögð til ákvæði um skýrari eftirlitsúrræði Fiskistofu vegna framkvæmdar ákvæða um hámarksaflahlutdeild, þ.m.t. ríkari upplýsingaskyldu útgerða varðandi eignarhald sem og eigna- og stjórnunartengsl milli útgerða. Auknar kröfur verði gerðar í þeim efnum til stórra útgerðarfyrirtækja samkvæmt nánari skilgreiningu. Þá mun Fiskistofa birta afmarkaðar upplýsingar um þessi atriði í þágu gagnsæis. Í 4.–6. gr. eru ákvæði um málskot til dómstóla, refsiheimild og gildistöku.

S-189/2024· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2024 – 8. okt. 2024· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (gagnsæi og tengdir aðilar)

Í frumvarpinu er mælt fyrir um skilgreiningu tengdra aðila, eftirlitsúrræði Fiskistofu vegna ákvæða um hámarksaflahlutdeild, aukið gagnsæi, upplýsingagjöf um eignarhald útgerða og tengsl milli þeirra.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-189/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 159)
Niðurstöður samráðs (22. nóvember 2024)

Fimm umsagnir bárust í samráðsgátt um drög að frumvarpi. Þakkað er fyrir veittar umsagnir. Ekki verður að framlagningu frumvarpsins þar sem fundum 155. löggjafarþings hefur verið frestað og þinginu lokið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-189/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (gagnsæi og tengdir aðilar) · Alviti