Áform um breytingu á lögum um náttúruvernd og lögum um Vatnajökulsþjóðgarð (leyfisveitingar, gjaldtaka o.fl. vegna Náttúruverndarstofnunar)
Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um lagasetningu til að samræma reglur um leyfisveitingar, gjaldtöku, eftirlit o.fl. sem ný Náttúruverndarstofnun mun fara með.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-188/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 214)
Niðurstöður samráðs (28. nóvember 2024)
Ein umsögn barst um áformin, frá Landvernd. Laut hún að því tekið var undir að færa nýrri stofnun nauðsynlegar samræmdar heimildir. Leggi félagið áherslu allt það sem ný stofnun muni hafa af verkefnum varði náttúruna sjálfa og verndun hennar. Mikilvægt sé að viðhafa vandað samráð við hagaðila til að styrkja sjálfstæðan rétt náttúrunnar og efla samræmt eftirlit, styrkja landvörslu, bæta regluverk og veita stofnuninni nauðsynlegar heimildir til að taka á málum sem kunna koma upp á verksviði hennar.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Landverndar. Bestu kveðjur, Þorgerður M Þorbjarnardóttir, formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.