Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-186/2024 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um siglingavernd (áhættumat hafnaraðstöðu)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um siglingavernd sem er ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ófullnægjandi innleiðingar Evrópureglna.

Í maí 2023 framkvæmdi ESA úttekt á hafnaraðstöðu í tveimur höfnum á Íslandi. Í kjölfarið var gefin út skýrsla um úttektirnar þar sem innleiðing á efni tiltekinna ákvæða í viðaukum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004 frá 31. mars 2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu í lög um siglingavernd voru talin fela í sér frávik. Frávikið felst í því að í 6. gr. laga um siglingavernd er gert ráð fyrir því að verndarfulltrúi hafnarsvæðis geti framkvæmt áhættumat, en skv. reglugerð (EB) nr. 725/2004 skal áhættumat hafnaraðstöðu aðeins framkvæmt af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila. Með frumvarpinu er miðað að því að gera úrbætur á þeim hluta laganna sem ESA tilgreinir sem frávik. Breytingarnar eru í samræmi við þá framkvæmd sem Samgöngustofa viðhefur við gerð áhættumats og verndaráætlunar.

S-186/2024· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 23. sep. 2024 – 14. okt. 2024· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um siglingavernd (áhættumat hafnaraðstöðu)

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um siglingavernd sem er ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ófullnægjandi innleiðingar Evrópureglna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-186/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 7)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-186/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um siglingavernd (áhættumat hafnaraðstöðu) · Alviti