Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-184/2024 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi.

Rík ástæða þykir til að styðja enn frekar við foreldra á innlendum vinnumarkaði í kjölfar áfalla og er þeim breytingum á lögum um sorgarleyfi sem mælt er fyrir um í frumvarpi þessu þannig ætlað að tryggja foreldrum, í skilningi laganna, sem missa maka sinn rétt til sorgarleyfis. Ljóst þykir að foreldri sem styður við syrgjandi barn á sama tíma og það syrgir sjálft maka sinn upplifir mikið álag og þykir því mikilvægt að veittur sé stuðningur og aukið svigrúm til sorgarúrvinnslu við slíkar aðstæður. Með frumvarpinu er þannig lagt til að foreldri, í skilningi laga um sorgarleyfi, sem verður fyrir því að hjúskapar- eða sambúðarmaki andast geti átt rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði en samkvæmt gildandi lögum getur foreldri átt rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts. Jafnframt er lagt til að foreldri, í skilningi laga um sorgarleyfi, sem hefur verið í samfelldu starfi í skilningi laganna skuli eiga sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði frá þeim degi er andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu, en samkvæmt gildandi lögum á foreldri rétt á þriggja mánaða sorgarleyfi eða sorgarstyrk við slíkar aðstæður. Enn fremur er lagt til foreldri geti átt sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði frá þeim degi sem fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á sér stað en samkvæmt gildandi lögum er miðað við tveggja mánaða sorgarleyfi við slíkar aðstæður. Þá er lagt til að verði foreldri fyrir andvanafæðingu eða barnsmissi, þar sem viðkomandi barn er yngra en 24 mánaða, verði foreldrinu heimilt að óska eftir að við útreikning Vinnumálastofnunar á mánaðarlegri greiðslu á grundvelli laganna verði tekið mið af tekjum viðkomandi á viðmiðunartímabili skv. 1.-3. mgr. 23. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, eftir því sem við á. Enn fremur er lagt til að skýrt verði kveðið á um að réttur til greiðslna á grundvelli laganna stofnist ekki vegna barnsmissis eða makamissis hafi foreldri, að mati dómstóls, framið brot á ákvæðum almennra hegningarlaga sem valdið hefur fyrrnefndum missi. Þá eru í frumvarpi þessu lagðar til aðrar breytingar sem þykja nauðsynlegar í ljósi reynslunnar af framkvæmd gildandi laga um sorgarleyfi.

S-184/2024· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2024 – 2. okt. 2024· 8 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra)

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-184/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 146)
Niðurstöður samráðs (10. desember 2024)

Alls bárust átta umsagnir um frumvarpið. Ráðuneytið þakkar fyrir veittar umsagnir. Frumvarpið verður ekki lagt fram á 155. löggjafarþingi þar sem þingfundum hefur verið frestað og þinginu lokið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Björg Maggý Pétursdóttir
    Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið… Lesa alla

    Kópavogur, 20.9.2024 Varðar: umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi Undirrituð er þakklát fyrir endurskoðun þessara mikilvægu laga með það að leiðarljósi að verið sé að bæta stöðu foreldra og maka á erfiðum tímum. Mikilvægar breytingar liggja í þessum drögum, t.d. lengin sorgarleyfis þeirra sem missa barn á meðgöngu. Samkvæmt lögunum um Sorgarleyfi er vísað í að greiðslur í sorgarleyfi sé til að koma til móts við tekjutap foreldra og markmiðið er að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis (samkv. 1. og 2.gr.). Einnig er tiltekið í lögum um sorgarleyfi að lögin séu ætluð til að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Í lögum um fæðingarorlof kemur fram að greiðslur fæðingarorlofs falli niður sama dag barn fellur frá. Mikið ósamræmi er á útreikningum milli sorgarleyfis og fæðingarorlofs og getur fólk lent í því að töluverð lækkun verði á greiðslum ef fólk missir barn meðan á fæðingarorlofi stendur þar sem tekið er mið á útreikningi úr frá 80% meðaltekna samkvæmt skrám skattayfirvalda miðað við 6 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveim mánuðum fyrir dánardag barns. En við útreikning vegna fæðingarorlofs samkvæmt vinnumálastofnun er tekið mið af 80% af meðaltekjum miðavið 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Því lækka foreldrar umtalsvert í greiðslum við það eitt að færast úr fæðingarorlofi yfir í sorgarleyfi. Foreldrar ættu í raun að halda sömu greiðslum án þess að þurfa að óska eftir því sérstaklega þar sem fólk í þessari stöðu hefur oft ekki burði í sorginni til að vinna í umsóknum. Einnig mætti bæta inn í lögin rétt til greiðslna vegna sálfræðiviðtala eða annarskonar aðstoðar til að vinna sig úr sorginni með það að leiðarljósi eins og sagt er í lögunum að fólki eigi farsæla endurkomu á vinnumarkaðinn og til að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Virðingafyllst, Björg Maggý Pétursdóttir

  • #2Starfsgreinasamband Íslands
    Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda e… Lesa alla

    Þann 1. janúar 2023 var stigið mikilvægt skref þegar lög um sorgarleyfi tóku gildi og foreldrum tryggðar greiðslur til að koma til móts við tekjutap í kjölfar barnsmissis. Með þeim breytingum sem þetta frumvarp felur í sér er betur komið til móts við þá foreldra sem missa maka og þurfa svigrúm til sorgarúrvinnslu, bæði sinnar eigin og barna sinna. Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við umrætt frumvarp sem mun, nái það fram að ganga, styðja betur við foreldra sem upplifa makamissi og þurfa að hverfa tímabundið af vinnumarkaði, draga úr áhyggjum þeirra af framfærslu og auðvelda endurkomu þeirra á vinnumarkað þegar að því kemur.

  • #3Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

  • #4Birta Sif Arnardóttir

    Umsögn Félags atvinnurekenda er í viðhengi.

  • #5Sorgarmiðstöð, félagasamtök

    Umsögn Sorgarmiðstöðvar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-184/2024: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukin réttindi foreldra) · Alviti