Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um greiðslur yfir landamæri í evrum

Frumvarpið varðar Innleiðingu á reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu.

Með reglugerð (ESB) 2021/1230 eru sameinuð með kerfisbindingu (e. codification) ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 frá 16. september 2009 um greiðslur yfir landamæri í Bandalaginu og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2560/2001, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/518 frá 19. mars 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 að því er varðar tiltekin gjöld á greiðslur milli landa innan Sambandsins og gjaldskrárbreytingar. Reglugerð (ESB) 2019/518 hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn þegar ákveðið var að endurútgefa reglugerð (EB) 924/2009 með kerfisbindingu. Reglugerðir (EB) nr. 924/2009 og (ESB) nr. 260/2012 voru innleiddar í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að markmið reglugerðanna sé að veita borgurum og fyrirtækjum samræmda, örugga, notendavæna og áreiðanlega greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan EES, jafnframt því að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri ríkja innan EES séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands. Með reglugerð (ESB) 2019/518 voru gerðar breytingar á reglugerð (EB) nr. 924/2009 þar sem talið var nauðsynlegt að grípa til frekari ráðstafana og rýmka meginregluna um jöfn gjöld á greiðslum í evrum yfir landamæri þannig að hún væri hliðstæð því sem gerðist í innlendum greiðslum í gjaldmiðlum aðildarríkja utan evrusvæðisins. Með breytingargerðinni var einnig aukið gagnsæi vegna umreiknings gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar greiðslur og millifærslu fjármuna. Tilgangur með framlagningu þessa frumvarps er að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2021/1230 og tryggja ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 áframhaldandi lagagildi. Lagt er til að reglugerð (ESB) 2021/1230 verði tekin upp í íslenskan rétt með svokallaðri tilvísunaraðferð og þá að fullu innleidd sem slík samkvæmt orðanna hljóðan í samræmi við a-lið 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993.

S-182/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2024 – 1. okt. 2024· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi um greiðslur yfir landamæri í evrum

Frumvarpið varðar Innleiðingu á reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 111)
Niðurstöður samráðs (2. október 2024)

Engar umsagnir bárust

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2024: Drög að frumvarpi um greiðslur yfir landamæri í evrum · Alviti