Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið leggur fram til samráðs stefnu til 15 ára og framkvæmdaáætlun til 4 ára í málefnum innflytjenda. Stefnan var áður birt í Hvítbók en framkvæmdaáætlun er fyrst birt nú.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-178/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 30. september 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (2. október 2024)
Umsagnir um tillögu til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda fyrir árin 2025-2039 ásamt fjögurra ára framkvæmdaáætlun fyrir árin 2025-2028 voru nýttar til að bæta útfærslu tillögunnar áður en endanleg tillaga verður lögð fyrir Alþingi í nóvember 2024 samkvæmt þingmálaskrá 155. þings. Hér er að finna skýrslu um samráð þar sem farið er yfir með hvaða hætti tekið var tillit til ábendinga umsagnaraðila.
- Samráð um drög að tillögu til þingsályktunar í málefnum innflytjenda
- Auðlesið mál framkvæmda·áætlun í málefnum innflytjenda 2025 til 2028
- Konsultacje w sprawie projektu uchwały w zakresie spraw dotyczących imigrantów
- Consultation on draft proposal_Parliamentary Resolution on Matters of Immigrants
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda er í viðhengi.
- #2Guðrún Elsa Tryggvadóttir
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
- #3Þórunn Pálína Sigurborgardóttir
Meðfylgjandi er Umsögn Íslandsdeildar Amnesty International um drög að þingsályktunartillögu um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
- #4Rauði krossinn á Íslandi
Meðfylgjandi er umsögn Rauða krossins á Íslandi um drög félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
- #5Fræðslumiðstöð atvinnulífs ehf.
Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.