Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-176/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp)

Áformað er að fella brott ákvæði um sjúkrahjálp sem veitt eru í kjölfar slyss sem veldur óvinnufærni. Heilbrigðiskostnaður yrði greiddur skv. almennri greiðsluþátttöku.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Ráðuneytið áformar að fella brott 10. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp). Valdi bótaskylt slys sjúkleika og vinnutjóni í minnist 10 daga skal, samkvæmt ákvæðinu, greiða nauðsynlegan kostnað vegna lækningar hins slasaða og tjóns á gervilimum eða hjálpartækjum. Eru lyf, gervilimir eða svipuð hjálpartæki og sjúkraþjálfun t.a.m. greidd að fullu. Með frumvarpinu er leitast við að draga úr tímafrekri vinnu við umsýslu Sjúkratrygginga vegna umsókna um tiltölulega lágar bótafjárhæðir. Þá hefur greiðsluþátttaka hins opinbera tekið miklum breytingum frá því sjúkrahjálp tók gildi og stæði hið opinbera straum af verulegum hluta þess kostnaðar sem um ræðir í gegnum almenna greiðsluþátttöku. Upplýsingar sem ráðuneytið aflaði bera með sér að flestir sjúkratryggðir hafi snertingu fyrir greiðsluþátttökukerfið og myndu þannig greiða lægri fjárhæð fyrir heilbrigðisþjónustu en sem nemur hámarksgjald (um 35 þús. kr. á mánuði) þann mánuð sem slys á sér stað. Ferðakostnaður yrði t.d. greiddur að fullu og styrkir vegna ýmissa hjálpartækja nema 70% af kostnaði. Frekari upplýsingar eru í áformaskjali.

S-176/2024· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. sep. 2024 – 1. okt. 2024· 0 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp)

Áformað er að fella brott ákvæði um sjúkrahjálp sem veitt eru í kjölfar slyss sem veldur óvinnufærni. Heilbrigðiskostnaður yrði greiddur skv. almennri greiðsluþátttöku.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-176/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. október 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 174)
Niðurstöður samráðs (22. október 2024)

Engar athugasemdir bárust við áform. Drög að frumvarpi til laganna hafa verið birt í samráðsgátt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-176/2024: Áform um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp) · Alviti