Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-170/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheils (niðurlagning hæfnisnefnda)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, og lögum um landlækni og lýðheilsu (niðurlagning hæfnisnefnda).

Í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, er kveðið á um skipan og hlutverk þriggja nefnda sem falið hefur verið að meta faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og stjórnenda lækninga, framkvæmdastjóra hjúkrunar og forstjóra heilbrigðisstofnana. Annars vegar er um að ræða nefndir sem leggja mat á faglega hæfni millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum, þ.e. framkvæmdastjóra og stjórnenda lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar. Fáheyrt er að kveðið sé á um fastar ráðherraskipaðar hæfnisnefndir í lögum vegna umsókna um störf millistjórnenda stofnana ríkisins. Hins vegar er um að ræða nefnd sem leggur mat á faglega hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana og gildir það jafnframt um embætti landlæknis, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Í 5. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er kveðið á um að ráðherra skipi forstöðumann stofnunar og eftir atvikum aðra embættismenn er við hana starfa, en að forstöðumaður ráði í önnur störf hjá henni. Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum nr. 70/1996 segir að þetta hafi verið gert með það fyrir augum að auka sjálfstæði forstöðumanna eins og markvisst hafi verið stefnt að með frumvarpinu. Til að tryggja að forstöðumenn njóti sjálfræðis hvað varðar ráðningar millistjórnenda hjá þeirri stofnun sem þeir stýra og til að gæta samræmis við framkvæmd annarra ríkisstofnana er því lagt til í frumvarpinu að horfið verði frá því lögbundna fyrirkomulagi að ráðherraskipaðar hæfnisnefndir meti störf faglegra stjórnenda lækninga og hjúkrunar. Eftir sem áður getur forstjóri skipað slíka hæfisnefnd ad hoc ef talið er tilefni til. Með 8. gr. laga nr. 130/2016 var bætt við ákvæði við lög nr. 70/1996 ákvæði þess efnis að hlutaðeigandi ráðherra eða stjórn gæti falið sérstakri hæfnisnefnd þriggja manna að meta hæfni umsækjenda um starf forstöðumanns og væri niðurstaða hennar ráðgefandi, sbr. 39. gr. b laganna. Með umræddum lagabreytingum hefur því verið komið á fót almennu fyrirkomulagi hæfnisnefnda við skipun í embætti forstöðumanna ríkisstofnana og því ekki sama þörf fyrir hendi að sérstakt ákvæði sé í lögum varðandi forstjóra heilbrigðisstofnana. Þá hefur þótt skjóta skökku við að hæfnisnefnd skv. lögum um heilbrigðisþjónustu sé föst, þ.e. í henni sitja ætíð sömu nefndarmennirnir í fimm ár í senn en hæfnisnefndir fyrir aðra forstöðumenn, þ.m.t. undirstofnana heilbrigðisráðuneytisins, eru ad hoc, þ.e. skipaðar sérstaklega fyrir hvert mál. Með frumvarpinu er því lagt til að samræma ferli við skipun í embætti forstöðumanna ríkisins og ráðningar í önnur stjórnunarstörf, þannig að ekki gildi sérreglur varðandi heilbrigðisstofnanir. Jafnframt er stefnt að því að einfalda ferli við ráðningar í störf millistjórnenda heilbrigðisstofnana og veita forstjórum þeirra sama svigrúm við val á aðferðum við mat á hæfni og forstjórar annarra stofnana hafa. Við það mun lögbundnum föstum nefndum á málefnasviði ráðherra jafnframt fækka.

S-170/2024· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. sep. 2024 – 17. sep. 2024· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheils (niðurlagning hæfnisnefnda)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, og lögum um landlækni og lýðheilsu (niðurlagning hæfnisnefnda).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-170/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. september 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 296)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. október 2024)

Tvær umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 17. október 2024, sjá þingmál nr. 296/2024, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-170/2024: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheils (niðurlagning hæfnisnefnda) · Alviti