Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-148/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytinga á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES reglur)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga sem felur í sér innleiðingu á EES reglum.

Frumvarpsdrögin fela í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki í því skyni að uppfylla þá skyldu sem er lögð á Ísland að innleiða regluverk Evrópusambandsins sem tekin hafa verið upp í EES-samninginn, sbr. 7. gr. Evrópureglugerðin setur kröfur um skil á upplýsingum, m.a. um framboð og eftirspurn lyfja og lækningatækja. Settar eru kröfur á aðildarríkin sem og aðila að skila upplýsingum til Lyfjastofnunar Evrópu um lyf sem eru á skrá yfir mikilvæg lækningatæki sem stýrihópar á vegum Lyfjastofnunar Evrópu skilgreina hverju sinni. Aðildarríki þurfa einnig að tilkynna Lyfjastofnun Evrópu um sérhvern atburð sem er líklegur til að leiða til bráðrar ógnar við lýðheilsu eða meiriháttar atburðar, þ.m.t. raunverulegan eða mögulegan lyfjaskort í tilteknu aðildarríki, en slík upplýsingaskylda er einnig lögð á markaðsleyfishafa lyfja. Meiri hluti ákvæða Evrópureglugerðarinnar fjallar um hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu og hlutverk stýrihópa sem settir eru á fót með henni og er ekki þörf á að umrita þau ákvæði í íslenskan rétt. Frumvarpsdrögin fela í sér ákvæði sem tilgreina þá aðila sem bera skyldur samkvæmt Evrópureglugerðinni og gagnvart hvaða stofnun. Einnig innihalda drögin ákvæði til leiðréttingar á gildandi lagaákvæðum, ákvæði um hlutverk Lyfjastofnunar sem eru í tengslum við efni Evrópureglugerðarinnar og að lokum viðurlagaákvæði til að tryggja framfylgd upplýsingaskyldu sem frumvarpið felur í sér.

S-148/2024· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2024 – 23. ágú. 2024· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytinga á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES reglur)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga sem felur í sér innleiðingu á EES reglum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-148/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 271)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. október 2024)

Drög að frumvarpi var útbýtt á Alþingi 8. október 2024, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð, undir kafla um samráð, er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-148/2024: Drög að frumvarpi til laga um breytinga á lyfjalögum og lögum um lækningatæki (EES reglur) · Alviti