Áform um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat)
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-140/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. ágúst 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 272)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. október 2026)
Alls bárust 12 umsagnir. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskóla (námsmat) voru kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda, sbr. mál nr. S-156/2024, þar sem gerð er nánari grein fyrir niðurstöðum samráðs í 5. kafla frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka menntatæknifyrirtækja
- #2Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (námsmat)
- #3Nói Kristinsson
Meðfylgjandi er umsögn er umsögn Nóa Kristinsson
- #4Öryrkjabandalag Íslands
Umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka
- #5Björg Pétursdóttir
Samkvæmt tilkynningu frá mennta og barnamálaráðuneytinu þann 22. febrúar 2022 (Stjórnarráðið | Samræmd könnunarpróf ekki lögð fyrir (stjornarradid.is) mun svokallaður Matsferill innihalda fjölbreytt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni fyrir grunnskólanemendur og kennara til að fylgjast með námsframvindu nemenda og bæta nám þeirra og námsárangur. Þar kemur einnig fram að markmið Matsferils er að færa námsmat nær nemendum og kennurum og að Matsferillinn þjóni sem skólaþróunarverkfæri, aðgengilegt fyrir nemendur, kennara og skóla að nota eftir þörfum. Rökin sem sett eru fram um að fella niður… Lesa alla
Samkvæmt tilkynningu frá mennta og barnamálaráðuneytinu þann 22. febrúar 2022 (Stjórnarráðið | Samræmd könnunarpróf ekki lögð fyrir (stjornarradid.is) mun svokallaður Matsferill innihalda fjölbreytt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni fyrir grunnskólanemendur og kennara til að fylgjast með námsframvindu nemenda og bæta nám þeirra og námsárangur. Þar kemur einnig fram að markmið Matsferils er að færa námsmat nær nemendum og kennurum og að Matsferillinn þjóni sem skólaþróunarverkfæri, aðgengilegt fyrir nemendur, kennara og skóla að nota eftir þörfum. Rökin sem sett eru fram um að fella niður samræmd könnunarpróf eru að prófin hafa ekki verið tengd innritun í framhaldsskóla í nokkur ár og eru ekki talin hafa verið nýtt sem skyldi til umbóta. Vægi þeirra hefur því minnkað töluvert. Þar að auki eru vísbendingar um að samræmd könnunarpróf nái ekki að prófa nemendur í ýmsum lykilþáttum aðalnámskrár grunnskóla. Samkvæmt ofangreindu virðist umræddur Matsferill fela í sér mismunandi verkefni sem eiga að nýtast kennurum til að meta stöðu nemenda. En það virðist vera val nemenda, kennara og skóla hvaða verkefni eru nýtt og hvort þau séu nýtt. Bent er á að í rökum ráðuneytisins fyrir því að samræmd könnunarpróf eru felld niður (sjá hér fyrir ofan) að könnunarprófin hafi ekki verið nýtt sem skyldi til umbóta. Velta má fyrir sér hvort valbundin matsverkefni verði örugglega notuð af öllum kennurum og hvort meiri líkur séu á að niðurstöður þeirra verði nýtt til umbóta en samræmdu prófin voru. Einnig er augljóst að erfitt verður að fylgjast með því hvort námsmatið uppfylli það að vera áreiðanlegt, óhlutdrægt, heiðarlegt og sanngjarnt eins og aðalnámskrá kveður á um. Liður í því að námsmat sé heiðarlegt er að það sé sambærilegt þannig að nemendur viti hvar þeir standa með hliðsjón af heildinni, ekki síst fyrir þá nemendur sem vantar hvatningu til að gera betur. Í því sambandi vil ég benda á að mun lægra hlutfall íslenskra nemenda ná hæsta hæfniþrepi í PISA en Norðurlönd og OECD. (Niðurstöður PISA 2022 | Menntamálastofnun (mms.is)) Undirrituð vil benda á að í löndunum í kringum okkur eru lögð fyrir samræmd könnunarpróf í grunnskólum nema í Finnlandi. Þar eru aftur á móti fjögur valkvæð samræmd könnunarpróf við lok framhaldsskóla. Markmiðið með könnunarprófunum er í öllum löndunum svipað, þ.e. að gefa skólunum samanburðarhæfar upplýsingar um stöðu nemenda og hvernig þeim fer fram innan skólakerfisins. Einnig er upplýsingunum ætlað að aðstoða kennara til að styðja við nám nemenda og stjórnvöld til að fylgjast með skólakerfinu. Í Eistlandi þar sem nemendur standa sig eftirtektarvert vel í PISA er samræmt könnunarpróf í stærðfræði og vísindum í 4. og 7. bekk. Í Noregi eru samræmd könnunarpróf í 5., 8. og 9. bekk í lestri, reikningi og ensku. Í Svíþjóð í 3., 6. og 9. bekk í sænsku, ensku og stærðfræði. Danir eru að breyta samræmdu könnunarprófunum frá því að vera könnunarpróf í lestri, stærðfræði, ensku og eðlis-/efnafræði í samræmd könnunarpróf í lestri og stærðfræði sem tekin verða í fimm mismunandi árgöngum í grunnskóla. Í Englandi er samræmt mat við upphaf skólagöngu og síðan tvisvar samræmd könnunarpróf. Annað er við 7 ára aldur í ensku og hitt við 11 ára aldur í ensku og stærðfræði. Jafnframt er samræmt próf í margföldunartöflunni. Eins og segir í kafla 3.1 í aðalnámskrá er megintilgangur námsmats að veita leiðbeinandi upplýsingar um námið og hvernig markmiðum þess verður náð. Með námsmati er fylgst með því hvernig þeim tekst að ná almennum hæfniviðmiðum aðalnámskrár… og metið hvaða aðstoð þeir þurfa. Námsmat miðar að því að afla vitneskju um árangur skólastarfsins og hvernig einstaklingum og hópum gengur að ná settum markmiðum. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að einhver samræmd mæling fari fram innan grunnskólakerfisins á Íslandi. Það auðveldar skólayfirvöldum að veita skólum faglegan stuðning við hæfi sem er um leið ein forsenda jafnréttis til náms óháð búsetu. Björg Pétursdóttir fyrrum skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.