Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-99/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Breyting á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi

Kveðið er á um framkvæmd meðalhófsprófunar á tillögum til breytinga á lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum um lögverndun starfs. Með breytingunni er tilskipun (ESB) 2018/958 innleidd í íslenskan rétt.

Með frumvarpsdrögunum eru leitast við að uppfylla skyldur íslenska ríkisins til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina. Markmið tilskipunarinnar er að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar takmarkanir á aðgangi að eða stundun atvinnustarfsemi og tryggja eðlilega starfsemi innri markaðarins. Samkvæmt frumvarpsdrögunum skulu stjórnvöld framkvæma meðalhófsprófun þegar ákvæðum laga eða stjórnvaldsfyrirmæla, sem takmarka aðgang að lögverndaðri starfsgrein eða iðkun hennar, er breytt eða ný ákvæði eru sett. Í fyrsta lagi skulu slík ákvæði rökstudd með vísan til almannahagsmuna og í öðru lagi skulu ákvæðin vera til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt er að og ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði. Ábyrgðin á að framkvæma meðalhófsprófun er í höndum hlutaðeigandi ráðherra hverju sinni. Skrá þarf rökstuðning fyrir því að ákvæði séu metin í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar, þau séu rökstudd sem réttlætanleg og að meðalhófs sé gætt í gagnagrunn ESB yfir lögverndaðar starfsgreinar. Þá er einnig mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja reglugerð um meðalhófsprófun, upplýsingaskipti milli aðildarríkja, kröfur um skráningu í gagnagrunn og öðrum framkvæmdaatriðum tilskipunar um meðalhófsprófun.

S-99/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2024 – 31. maí 2024· 2 umsagnir

Breyting á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi

Kveðið er á um framkvæmd meðalhófsprófunar á tillögum til breytinga á lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum um lögverndun starfs. Með breytingunni er tilskipun (ESB) 2018/958 innleidd í íslenskan rétt.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-99/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. maí 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 232)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. nóvember 2024)

Það bárust tvær umsagnir. Samtök iðnaðarins árétta að innleiðing tilskipunarinnar gefi ekki tilefni til endurskoðunar á reglum er varða löggiltar iðngreinar og benda á að endurskoðun á löggildingu iðngreina komi ekki til greina án samráðs við greinarnar sjálfar. Í umsögn Viðskiptaráðs er innleiðingu á tilskipuninni fagnað, enda sé hún liður í því að auka samkeppnishæfni og sveigjanleika íslensks atvinnulífs og draga úr hindrunum í regluverki. Umsagnirnar eru ekki þess eðlis að þær leiði til efnislegra breytinga á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-99/2024: Breyting á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi · Alviti