Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-96/2024 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030. Samkvæmt drögunum er framtíðarsýnin sú að á Íslandi verði traust og nútímaleg löggjöf á sviði neytendamála, sem stenst samanburð við nágrannalönd Íslands og stuðli að virkri neytendavitund og trausti neytenda m.a. hvað varðar reglufylgni og markaðseftirlit. Jafnframt að hér sé fagleg og skilvirk stofnanaumgjörð neytendamála, sem starfi með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Til að tryggja þessa framtíðarsýn er í drögunum sett fram aðgerðaáætlun sem unnið verði eftir til ársins 2030. Um er að ræða níu skilgreindar aðgerðir sem ná yfir uppfærslu og nútímavæðingu löggjafar á sviði neytendamála, aukna áherslu á netviðskipti og stafvæðingu, aukna neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áherslu á fjármálalæsi, sérstakar þarfir viðkvæmra hópa neytenda, aukna neytendavernd við fasteignakaup, græna umbreytingu á sviði neytendamála, styrkingu stofnanaumgjarðar neytendamála, notkun íslensku við markaðssetningu og áherslu á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að efla neytendavitund. Ráðgert er að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fram á Alþingi í maí, að loknu samráði.

S-96/2024· Drög að stefnu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 30. apr. 2024 – 14. maí 2024· 10 umsagnir

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-96/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. maí 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 221)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-96/2024: Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til 2030 · Alviti