Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-85/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna (ábyrgðarmenn og námsstyrkir)

Með frumvarpinu er lögð til rýmkun á skilyrðum fyrir veitingu námsstyrkja, breytingar á fjármögnun Menntasjóðsins og lagt til að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu.

Með frumvarpi þessu er brugðist við helstu annmörkum gildandi laga um Menntasjóð námsmanna sem fram hafa komið á síðastliðnum árum og ábendingar eru m.a. um í skýrslu um Menntasjóðinn sem ráðherra lagði fram í desember síðastliðnum (þskj. 765, 577. mál 154. löggjafarþings). Frumvarpinu er ekki ætlað að fela í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum en með því er brugðist við aðkallandi athugasemdum sem ráðast þarf í áður en kemur til heildarendurskoðunar á lögunum. Helstu þættir frumvarpsins eru eftirfarandi: -Í fyrsta lagi er lagt til að rýmka heimildir varðandi námsframvindu í tengslum við námsstyrki með 30% niðurfellingu lána við námslok. Breytingarnar rýmka skilyrði fyrir námsstyrkjum þannig að námsmenn geti áunnið sér styrk vegna eininga af tveimur námsleiðum í stað einnar áður; nemendur sem hefja nám í einni grein geta skipt yfir í annað nám en notið réttinda til námsstyrks í fyrra náminu samhliða nýja náminu -Í öðru lagi er í frumvarpinu fjallað um hvernig fjármögnun Menntasjóðsins skuli háttað og lögð til sú breyting að í stað heimildar er Menntasjóðnum skylt að fjármagna lán til lánþega eingöngu með lánum frá Endurlánum ríkissjóðs þannig að útlán endurspegli fjármögnunarkjör sjóðsins að viðbættu föstu vaxtaálagi Menntasjóðs ásamt því að lagt er til að heimildarákvæði um greiðslur inn á lán frá Endurlánum ríkissjóðs án viðbótarkostnaðar með samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins falli brott en þess í stað mælt með því að sá ráðherra sem fer með lánsfjármál og lántökur fyrir hönd ríkissjóðs setji reglugerð um nánari útfærslu á þeim ákvæðum sem gilda um lánsfjármögnun Menntasjóðs. -Í þriðja lagi er ábyrgðarmannakerfi lána úr Lánasjóði íslenskra námsmanna samkvæmt eldri lögum og lána úr Menntasjóði fellt niður að fullu. Eftir breytinguna verður í engum tilvikum kallað eftir því að lánþegar afli ábyrgða hjá þriðja aðila og þær ábyrgðir sem til staðar eru samkvæmt eldri og gildandi lögum falli niður.

S-85/2024· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. mar. 2024 – 21. mar. 2024· 5 umsagnir

Breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna (ábyrgðarmenn og námsstyrkir)

Með frumvarpinu er lögð til rýmkun á skilyrðum fyrir veitingu námsstyrkja, breytingar á fjármögnun Menntasjóðsins og lagt til að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-85/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 935)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. júlí 2026)

Frumvarpið varð að lögum á 154. löggjafarþingi Alþingis, lög nr. 89/2024

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-85/2024: Breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna (ábyrgðarmenn og námsstyrkir) · Alviti