Áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun
Kynnt eru áform um breytingu á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun með það að markmiði að tryggja ábyrga og skynsamlega nýtingu og vernd landsvæða og orkukosta á Íslandi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-79/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. apríl 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 20 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 268)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. nóvember 2025)
Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 20 umsagnir um áformin í Samráðsgátt. Í framhaldi af áformum um lagasetning var lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni) á 156. löggjafaþingi 2025 (þingskjal 300- 268. mál). Frumvarpið varð ekki að lögum.
- Áform um lagasetningu - Verndar- og orkunýtingaráætlun
- Frummat á áhrifum - Verndar og orkunýtingaráætlun
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (20)
- #1Jóhannes Bragi Gíslason
Lög þessi sem á að endur skoða ganga öllu jöfnu undir nafninu Rammaáætlun. Kostur þessara laga er að sérfræðingum er ætlað að vinna faglega að því að finna og leggja mat á bestu orkunýtingarkosti okkar flokka þá í 3 flokka nýtingar- bið- og verndarflokk. Aðal ókostur laganna hefur verið ákveðin óskilvirkni , þ. e. tillögur verkefnahóps hafa átt það til að daga uppi á Alþingi. Einnig er ákvæði um að sveitarstjórn geri stöðvað framkvæmd um 10 ár. Til að koma í veg fyrir að þetta álvæði komi óvænt í baki á verkefnastjórn og eða Alþingi þurfa aðilar að vera í viðræðum við viðkomandi sveitarfélag… Lesa alla
Lög þessi sem á að endur skoða ganga öllu jöfnu undir nafninu Rammaáætlun. Kostur þessara laga er að sérfræðingum er ætlað að vinna faglega að því að finna og leggja mat á bestu orkunýtingarkosti okkar flokka þá í 3 flokka nýtingar- bið- og verndarflokk. Aðal ókostur laganna hefur verið ákveðin óskilvirkni , þ. e. tillögur verkefnahóps hafa átt það til að daga uppi á Alþingi. Einnig er ákvæði um að sveitarstjórn geri stöðvað framkvæmd um 10 ár. Til að koma í veg fyrir að þetta álvæði komi óvænt í baki á verkefnastjórn og eða Alþingi þurfa aðilar að vera í viðræðum við viðkomandi sveitarfélag um virkjunarkost og ef það kemur fram að hún muni taka sér 10 ára frest þá muni umræddur kostur fara í biðflokk með þeirri skýringu. Ef þessi vinnubrögð væru viðhöfð og búið að fá samþykki sveitarstjórnar í ferlinu er engin hætta að valinn virkjunarkostur tefjist óvænt um 10 ár . Til að auka skilvirkni frekar má huga sér sé nýjan flokk sem mætti nefna framkvæmdaflokk sem ekki þyrfti að fjalla sérstaklega um í þinginu. Sbr. Flokk I í sambærilegum lögum í Noregi og vísað er til í athugasemdum um fumvarpið https://www.althingi.is/altext/139/s/0081.html Svo má nefna það einfalda ráð til að auka skilvirknina að Verkefnahópur hefði gott samband við alla hagaðila og leyfi þeim að koma með sýnar athugasemdir. Íí núverandi lögum um Rammaáætlun er ekki farið út í af hverju 10 ár þykir eðlilegur umþóttunartími fyrir sveitastjórn til að aðlaga sitt skipulag að virkjunarkosti. Það hlýtur að vera hægt að gera á færri árum, jafnvel þó að nýting útiloki vend svæðis. Þessi mál þurfa ekki að taka óratíma.
- #2Erla Björk Þorgeirsdóttir
Sem fyrrverandi fulltrúi Orkustofnunar í tengslum við framkvæmd rammaáætlunar hef ég nokkuð góða innsýn inn í störf verkefnisstjórnar. Það hefði að mínu mati verið eðlilegt og nauðsynlegt að mat allra faghópa væri byggt á fyrirfram ákveðnum forsendum en það var ekki gert. Þá á ég við að hver faghópur fyrir sig hefði áður en sest væri niður við flokkun búið til lista yfir þau atriði sem máli skipta og einkunnaskala í tengslum við þessi atriði. Á grundvelli slíks lista og einkunnagjafar hvers virkjanakosts fyrir hvert atriði hefði ferlið verið einfaldara og gagnsærra. Eins og matið hefur farið… Lesa alla
Sem fyrrverandi fulltrúi Orkustofnunar í tengslum við framkvæmd rammaáætlunar hef ég nokkuð góða innsýn inn í störf verkefnisstjórnar. Það hefði að mínu mati verið eðlilegt og nauðsynlegt að mat allra faghópa væri byggt á fyrirfram ákveðnum forsendum en það var ekki gert. Þá á ég við að hver faghópur fyrir sig hefði áður en sest væri niður við flokkun búið til lista yfir þau atriði sem máli skipta og einkunnaskala í tengslum við þessi atriði. Á grundvelli slíks lista og einkunnagjafar hvers virkjanakosts fyrir hvert atriði hefði ferlið verið einfaldara og gagnsærra. Eins og matið hefur farið fram hefur það að stórum hluta verið afar huglægt og gæti það verið fróðlegt fyrir hópinn sem ætlar að endurskoða þetta ferli að kalla eftir gögnum á bak við röðun virkjanakosta. Annað er það sem Orkustofnun benti á í upphafi að það þyrfti að vega orkuöryggismál inn í ferlið en það var aldrei gert og því sitjum við í þeirri stöðu sem við erum í í dag og brennum dísel í gríð og erg.
- #3Guðmundur Hafsteinsson
Sendi þetta þar sem ég óttast að breytingar á rammalögum verði náttúrinni í óhag. Þetta er mál sem þarf mikla umræðu meðal landsmanna ekki aðeins þings og ráðherra.
- #4Fljótsdalshreppur
Efni: Umsögn Fljótsdalshrepps um áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Þann 11. mars 2024 voru birt til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Svo sem þar kemur fram eru helstu markmið sem stefnt er að með fyrirhugaðri lagasetningu að skapa frekara traust á því ferli sem rammaáætlun er og reyna eins og unnt er að auka sátt um einstaka virkjunarkosti og forsendur fyrir því að ráðist verði í nýtingu og vernd þeirra auk þess að breytt ferli stuðli að markmiðum um orkuöryggi, orkusjálfstæði og sjálfbærni í takt við… Lesa alla
Efni: Umsögn Fljótsdalshrepps um áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Þann 11. mars 2024 voru birt til samráðs áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Svo sem þar kemur fram eru helstu markmið sem stefnt er að með fyrirhugaðri lagasetningu að skapa frekara traust á því ferli sem rammaáætlun er og reyna eins og unnt er að auka sátt um einstaka virkjunarkosti og forsendur fyrir því að ráðist verði í nýtingu og vernd þeirra auk þess að breytt ferli stuðli að markmiðum um orkuöryggi, orkusjálfstæði og sjálfbærni í takt við orkustefnu Íslands. Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps tekur undir þessi markmið en bendir jafnframt á mikilvægi þess að fyrirhugaðar breytingar auki skilvirkni og skýri skilmerkilega hlutverk þeirra sem koma að málsmeðferð rammaáætlunar. Fljótdalshreppur leggur áherslu á eftirfarandi atriði við breytingu á lögum nr. 48/2011: • Að endanlegt skipulagsvald um verkefni sem heyra undir lögin verði hjá því sveitarfélagi (eða sveitarfélögum) þar sem uppbygging mannvirkja og starfsemi til orkuvinnslu er fyrirhuguð þannig að tryggt verði að slík uppbygging og starfsemi fari ekki fram í andstöðu við vilja meirihluta íbúa í nærumhverfi hennar. • Að sveitarfélög og/eða landshlutasamtök þeirra eigi fulltrúa í verkefnisstjórn sem flokki og raði virkjunar- og verndarkostum í upphafi málsmeðferðar rammaáætlunar. Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps væntir þess að fá tækifæri til að skila inn umsögn við þinglega meðferð hins boðaða frumvarps. Virðingarfyllst, f.h. Fljótsdalshrepps, _____________________________________ Helgi Gíslason sveitarstjóri
- #5Ása Valdís Árnadóttir
Hér í viðhengi má finna umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga. Fyrir hönd samtakanna Ása Valdís formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.