Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-63/2024 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030

Drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Inniheldur ferðamálastefnu og 42 skilgreindar aðgerðir til að fylgja eftir áherslum í ferðamálastefnu.

Haustið 2022 hófst vinna við uppfærslu á stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni jafnvægis á milli efnahags-, umhverfis- og samfélagslegra þátta. Í því felst að hér sé arðsöm og samkeppnishæf ferðaþjónusta sem starfi í sátt við bæði land og þjóð, að ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og að ferðaþjónustan sé þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun. Í uppfærðum stefnuramma, sem myndar grunn að ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030, eru 12 áherslur sem deilast á fjórar lykilstoðir; efnahag, samfélag, umhverfi og gesti. Í maí 2023 skipaði ferðamálaráðherra sjö starfshópa sem falið var að vinna tillögur að aðgerðum inn í aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030. Gert var ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin yrði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar á vorþingi 2024. Verkefnið í heild sinni hefur verið leitt af stýrihóp á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis og er nánari upplýsingar að finna um það á www.ferdamalastefna.is. Starfshóparnir sjö náðu utan um helstu þætti ferðaþjónustu, þ.e. sjálfbærni og orkuskipti, samkeppnishæfni og verðmætasköpun, rannsóknir og nýsköpun, uppbyggingu áfangastaða, hæfni og gæði, heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónustu og menningartengda ferðaþjónustu. Viðamikið samráð var haft við haghafa við gerð aðgerðaáætlunar frá maí 2023 til febrúar 2024, m.a. með fjölda vinnustofa og funda. Beint að þessari vinnu komu yfir 100 manns, og óbeint talsvert fleiri. Fyrstu drög að aðgerðum voru sett í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember 2023 og var unnið úr þeim athugasemdum sem þar bárust. Á grunni framangreindrar vinnu liggja nú fyrir drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Í þeim drögum koma fram 42 skilgreindar aðgerðir sem ætlað er að fylgja eftir áherslum ferðamálastefnu og þeim markmiðum sem þar koma fram. Dreifast þær á lykilstoðir ferðaþjónustu; þ.e. rannsóknir og gögn, efnahagur, samfélag, umhverfi og gestir. Frá 14. febrúar til 6. mars standa yfir opnir umræðu- og kynningarfundir um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Í framhaldi af þeim fundum verður farið yfir ábendingar sem þar berast, sem og umsagnir úr samráðsgátt. Að því loknu verður þingsályktunartillagan fullunnin og lögð fram á Alþingi í síðari hluta mars.

S-63/2024· Drög að stefnu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 28. feb. 2024 – 12. mar. 2024· 11 umsagnir

Drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030

Drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Inniheldur ferðamálastefnu og 42 skilgreindar aðgerðir til að fylgja eftir áherslum í ferðamálastefnu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-63/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 1036)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Sigríður Sigurðardóttir
    Umsögn um tillögu til þingsályktunar um Ferðamálastefnu og aðgerðaráætlun til 2030, sem lagt verður fyrir 154. Löggjafarþing 2023-2024. Í inngangsorðum (bls.1) segir: „Meginmarkmið stefnunnar er að styðja við sjálfbærni í ferðaþjónustu á öllum sviðum“. Þegar stefnumörkunin er lesin sést að megin áhersla er á umhverfis- og efnahagslega sjálfbærni en hennar þarf að gæta á fleiri sviðum. Ég vek athygli á að geti íslensk ferðaþjónusta ekki fundið leið til að varðveita (og nota) íslenska tungu er ekki um neina sjálfbærni að ræða gagnvart tungumálinu og þá um leið ekki gagnvart þjóðmenningu landsins… Lesa alla

    Umsögn um tillögu til þingsályktunar um Ferðamálastefnu og aðgerðaráætlun til 2030, sem lagt verður fyrir 154. Löggjafarþing 2023-2024. Í inngangsorðum (bls.1) segir: „Meginmarkmið stefnunnar er að styðja við sjálfbærni í ferðaþjónustu á öllum sviðum“. Þegar stefnumörkunin er lesin sést að megin áhersla er á umhverfis- og efnahagslega sjálfbærni en hennar þarf að gæta á fleiri sviðum. Ég vek athygli á að geti íslensk ferðaþjónusta ekki fundið leið til að varðveita (og nota) íslenska tungu er ekki um neina sjálfbærni að ræða gagnvart tungumálinu og þá um leið ekki gagnvart þjóðmenningu landsins. Þar með er sá ásetningurinn með stefnumótuninni, að vera „leiðandi í sjálfbærri þróun“, ekki fyrir hendi. Í kafla C um samfélag segir í C.1 (bls. 11) að innleiða eigi: „hvata til þess að auka áherslu á sanngildi og sérstöðu íslenskrar menningar í ferðaþjónustu á Íslandi“. Þetta er lykilatriði og þarfnast góðs samstarfs á milli fræðasamfélags og ferðaþjónustuaðila. Dæmi eru um að „disneyvæðing“ íslenskrar ferðaþjónustu sé svo langt gengin að fólk sé hætt að skipta sér af hvort sagan er sett fram á réttmætan hátt og hún jafnvel fölsuð s.s. þegar talað er um víkingabardaga á 13. öld. Í C.4 (bls.12) segir að vinna eigi „greiningu á ábyrgð umsjónaraðila áfangastaða með tilliti til náttúruverndar, þjónustu, gæða og öryggis gesta og hvort þurfi að auka kröfur til umsjónaraðila til að efla þessa þætti“. Hér mætti bæta við að ábyrgur umsjónaraðili fyrir áfangastað verði að leggja fram málstefnu sem styður íslenska tungu. Í greinargerð um kafla C.1 (bls.36) um aukna áherslu á sanngildi og sérstöðu íslenskrar menningar segir m.a.: „Sýnileiki og notkun íslenskrar tungu er sömuleiðis órjúfanlegur þáttur upplifunar um sanngildi“. Þarna ætti fremur að segja að sýnileiki og notkun íslenskrar tungu séu forsenda upplifunar um sanngildi gagnvart sögu og náttúru landsins. Þá segir einnig að íslenska eigi „í vök að verjast gagnvart vaxandi notkun ensku á öllum sviðum; í töluðu sem skrifuðu máli, merkingum og annarri miðlun“. Tillaga um viðbrögð við stöðunni er „að stuðlað verði að auknum sýni- og heyranleika íslenskrar tungu í breiðri samvinnu og samráði við lykilaðila í ferðaþjónustu“. Betur færi að gera ráð fyrir að verði ábyrgum aðilum í ferðaþjónustu ekki skylt að leggja fram málstefnu að þá sé það skylda ferðamálayfirvalda að marka málstefnu fyrir alla ferðaþjónustuna, eða að markaðssvæði landsins marki málstefnu hvert fyrir sig. Í þingsályktunartillögunni er hvergi rætt um málstefnu fyrir ferðaþjónustuna gagnvart íslenskri tungu eða notkun tungumálsins s.s. notkun íslenskra örnefna og nýsmíði örnefna (s.s. á ensku), ensk nöfn ferðaþjónustufyrirtækja eða íslenskunotkun á skiltum og um leiðbeiningar og vegvísa sem snerta jafnt ferðir eða athafnir innlendra og erlendra gesta. Ég fagna framsettum áherslum um að vekja eigi athygli á sérstöðu tungumálsins þótt mitt álit sé að um það þurfi að kveða fastar að orði. Um leið og ég fagna áherslum á auknar rannsóknir í greininni leyfi ég mér að benda á tvær útkomnar rannsóknarskýrslur sem fjalla um stöðu íslensku í ferðaþjónustunni. Önnur er Staða málstefnu í stoðkerfi ferðaþjónustunnar. Skiptir hún máli? þar sem fram kemur áhuga- og andvaraleysi skipulags-, umsjónar- og eftirlitsaðila gagnvart stöðu íslensku yfirleitt. Hin er Nöfn fyrirtækja í íslenskri ferðaþjónustu þar sem vel kemur fram hvernig íslensk heiti víkja fyrir væntingum um (ímyndaða) betri markaðsmöguleika með ensk heiti.

  • #2Þorleifur Þór Jónsson

    Umsögn Cruise Iceland

  • #3Stefán Hjaltalín Vilbergsson

    Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka er hjálögð.

  • #4Markaðsstofa Suðurlands ses.

    Umsögn Markaðsstofa landshlutanna

  • #5Fræðslumiðstöð atvinnulífs ehf.

    Umsögn Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-63/2024: Drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 · Alviti