Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-48/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða (kaup og sala þjónustu á milli landa og kílómetragjald)

Að skýra betur tiltekin ákvæði í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.

Í skattframkvæmd hafa komið upp ýmis álitamál varðandi gildissvið 10. tölul. 12. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 sem ástæða er til að bregðast við. Nauðsynlegt þykir að skýra betur efni ákvæðisins þegar þjónusta er seld til atvinnufyrirtækja, sem hvorki hafa heimilisfesti hér á landi né stunda hér atvinnustarfsemi frá fastri starfsstöð, þannig að ákvæðið samræmist betur meginstefi fjarlægðarreglunnar (e. destination principle) og leiði til aukins skýrleika og skilvirkni í skattframkvæmd. Frumvarp um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða var samþykkt á Alþingi í desember sl. og varð að lögum nr. 101/2023. Lögin tóku gildi 1. janúar sl. Í ljós hefur komið að þörf er á að skýra betur tiltekin ákvæði í lögunum, t.a.m. þau ákvæði er varða leiðréttingarheimildir og bifreiðar sem skráðar eru erlendis. Einnig mun vera tekið til skoðunar hvort rétt sé að styrkja enn frekar viðurlagaákvæði laganna.

S-48/2024· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. feb. 2024 – 28. feb. 2024· 4 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða (kaup og sala þjónustu á milli landa og kílómetragjald)

Að skýra betur tiltekin ákvæði í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-48/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 917)
Niðurstöður samráðs (21. mars 2024)

Alls bárust fjórar umsagnir. Verða þær teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps eftir því sem við á.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-48/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða (kaup og sala þjónustu á milli landa og kílómetragjald) · Alviti