Drög að frumvarpi vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfisins
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-43/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 29. febrúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 38 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 864)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. september 2024)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 19. mars 2024, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (38)
- #1Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir
Í drögum að þessu frumvarpi er talað um að einfalda þetta kerfi. Þá spyr ég á móti. Fyrir HVERN er verið að einfalda þetta? Eftir lestur á þessu fyrirbæri er mér ómögulegt að sjá þá einföldun til handa þeim sem þurfa á þessu kerfi að halda. Þvert á móti er verið að auka það flækjustig sem snýr að fólkinu sjálfu. Hver er þessi einföldun gagnvart þeim sem NEYÐAST til að nýta sér þetta kefi?
- #2Sveinn Elías Hansson
Hér er talað um ATVINNUTEKJUR, en í núverandi kerfi teljast greiðslur frá lífeyrissjóðum ekki til atvinnutekna og hámark sem má hafa frá þeim er um 35 þús á mánuði áður en skerðing hefst. Greiðslur frá lífeyrissjóði eru að sjálfsögðu ekkert annað en atvinnutekjur, og af þeim er meira að segja greiddur tekjuskattur.Ef fólk getur unnið eitthvað þá má það hafa um 200 þús á mánuði, án skerðinga. Stendur til að breyta þessu og jafna kjör þessa fólks, eða skal halda áfram þessari mismunun ?
- #3Jón Frímann Jónsson
Það er vafasamt að hverfa frá því örorkumatskerfi sem er núna í notkun. Þar sem það er nógu erfitt eins og það er. "Hlutaörorkulífeyrir" er fáránlegt hugtak, þar sem fólk er annaðhvort á örorku eða ekki, hvort sem að örorkan er 10% eða 75% örorka. Það eru ekki allir með eins örorku og þetta nýja kerfi gæti gert þeim sem eru með einhverfu af einhverri gerðinni lífið erfitt. Auk fólks sem er með sjúkdóma sem sjást ekki utan á því en veldur því miklum ama og vandræðum í daglegu lífi. "Nýr örorkulífeyrir" er undarlegt hugtak. Það er þó nauðsynlegt að sameina inn í örorkugreiðslur heimilisuppbót o… Lesa alla
Það er vafasamt að hverfa frá því örorkumatskerfi sem er núna í notkun. Þar sem það er nógu erfitt eins og það er. "Hlutaörorkulífeyrir" er fáránlegt hugtak, þar sem fólk er annaðhvort á örorku eða ekki, hvort sem að örorkan er 10% eða 75% örorka. Það eru ekki allir með eins örorku og þetta nýja kerfi gæti gert þeim sem eru með einhverfu af einhverri gerðinni lífið erfitt. Auk fólks sem er með sjúkdóma sem sjást ekki utan á því en veldur því miklum ama og vandræðum í daglegu lífi. "Nýr örorkulífeyrir" er undarlegt hugtak. Það er þó nauðsynlegt að sameina inn í örorkugreiðslur heimilisuppbót og framfærsluuppbót inn í örorkugreiðsluna til þess að jafna réttindi þeirra sem eru í sambúð og búa utan Íslands, auk þess að hækka tekjur þeirra. Það hefur verið á síðustu árum verið að reyna að koma í gegn kerfi á Íslandi sem hefur verið kallað starfsgetumatskerfi og mér sýnist að það sé verið að gera það hérna, hlutir eru bara kallaðir örðum nöfnum. Í þeim ríkjum þar sem slíkt kerfi hefur verið tekið upp hefur niðurstaðan alltaf verið meiri fátækt, erfiðara fyrir fólk að komast á örorku og líf fólks með alvarlega sjúkdóma almennt gert erfiðara, ásamt því að flækjustigið er aukið til muna. Auk þess sem að kerfið er í raun hannað til þess að spara ríkinu fjármuni og halda fólki af örorkubótum og úr félagslega öryggisnetinu. Það er ekki nefnt í þessari greinargerð sem er hérna skrifuð með frumvarpinu um hvaða hugtak er verið að nota frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni (á ensku). Það ýtir undir grunsemdir að hérna sé verið að nota ekkert annað en starfsgetumat eins og ég nefndi ofar. Öryrkjar eru þeir hópur fólks sem getur oftast minnst varið sig í þessum málaflokki og tekjur þeirra sæta oft niðurskurði hjá íslenska ríkinu að tilefnislausu. Í staðinn fyrir að hækka skatta á þá sem geta borgað, þá hafa íslenskir stjórnmálaflokkar valið það að skera niður í velferðarþjónustu. Að breyta kerfum til þess að gera fólki erfiðara að komast á örorku er ekki eitthvað sem almenningur á Íslandi ætti að samþykkja. Enda geta allir orðið öryrkjar, hvort sem er vegna sjúkdóma eða slysa sem gerast án fyrirvara. Þetta frumvarp þarf að endurskrifa eða falla frá því að mestu leiti. Þó eins og ég nefni að ofan, nauðsynlegt að sameina greiðslur heimilisuppbótar og framfærsluppbótar inn í eina örorkugreiðslu til þess að jafna stöðu öryrkja og koma þannig í veg fyrir algjöra fátækt þeirra sem fá hvoruga af þessum greiðslum.
- #4Valgeir Matthías Pálsson
Þokkalegt frumvarp en ég tel að það sé ekki verið að tala um nýja hluti í þessu máli eða þ.e. það er ekki verið að umbylta þessu kerfi nema kannski á þann veg að setja Starfsgetumatið inn sem einhverskonar mótvægi við annað. Ég tel að starfsgetumat sem slíkt sé ekki að fara að breyta versuleika öryrkja íslenskra neitt. Það sem mér findist að ætti að koma út úr þessu frumvarpi er það að einfalda kerfið. Gera það skilvirkara og hætta þessum "hegningum" eða "refsingum" sem er svo ríkt í gamla örorkumats kerfinu. Eins og kerfið er í dag að þá máttu vinna þér inn 200.000 en það sem eftir stendur… Lesa alla
Þokkalegt frumvarp en ég tel að það sé ekki verið að tala um nýja hluti í þessu máli eða þ.e. það er ekki verið að umbylta þessu kerfi nema kannski á þann veg að setja Starfsgetumatið inn sem einhverskonar mótvægi við annað. Ég tel að starfsgetumat sem slíkt sé ekki að fara að breyta versuleika öryrkja íslenskra neitt. Það sem mér findist að ætti að koma út úr þessu frumvarpi er það að einfalda kerfið. Gera það skilvirkara og hætta þessum "hegningum" eða "refsingum" sem er svo ríkt í gamla örorkumats kerfinu. Eins og kerfið er í dag að þá máttu vinna þér inn 200.000 en það sem eftir stendur er sama sem ekkert. Sérstök uppfærsla til framfærslu skerðist grimmt bæturnar strax krónu á móti krónu eða krónu á móti 65 aurum. Alveg sama. Þetta hef ég fengið staðfest líka hjá starfsmanni TR sem ég tel áræðanlegar. Það er alltaf og þá segi ég ALLTAF verið að fegra allt sem tengist öryrkjum. Þetta má víst ekki kosta krónu og ég er hræddur um það að þessar tillögur starfsgetumats falli ekki í frjógvan jarðveg hjá ÖBÍ. Það er sífellt vegið að mannréttindum öryrkja á íslandi. Við eigum að lifa við reisn á hátíðarstundum en er það þannig? NEI, öryrkjar lifa við sultar mörk og þetta virðist þingheimur allur nema kannski flokkur fólksins vera sammála um. Fagurgalinn galar fyrir hverjar kosningar til þings hér á fjögurra ára fresti um að nú verði að fara að spýta í í þessum málaflokki en það er bara ekki að gerast. Kannski er viðhorf ykkar og annarra sömuleiðis í þjóðfélaginu það að öryrkjar séu afgangs stærð sem eigi bara að lifa við sult og seyru. Smælkið má eiga sig. Þetta lið er enda óferjandi og alandi. Það er staðreynd að það er brotið á mannréttindum öryrkja á íslandi og þó málin tapist í hæðstarétti að þá sýnir það sig bara að Hæstiréttur er svo viðhallur stjórnvöldum á hverjum tíma. Pólitíkin er sem sagt að hafa áhrif á dómstólana. Það er þannig eða öfugt, getur líka verið. En já. Þetta frumvarp. Stafsgetumats frumvarp D,VG,F þetta frumvarp fær ekki háa einkunn hjá mér. En nú býð ég eftir ályktun ÖBÍ! Einnig má bæta því við að til þess að gera öryrkja færa til vinnu væri heilla ráð að niðurgreiða t.d. sálfræði þjónustu fyrir þennan hóp. Ég veit um marga einstaklinga sem eru fastir vegna þess að þeir fá ekki hjálp til að fóta sig í þjóðfélaginu. Fólk er fast. Það hefur ekki aura til að leita sér endurhæfingar hvort sem það er sálfræðimeðferð eða eitthvað annað. Ég tala að eigin reynslu í þessu máli. Kerfið hendir fólki fram og til baka og ekki mun þetta ástand batna þegar flóttamenn og hælisleitendur fá hér alla þjónustu sálfræðinga og geðlækna en íslenskir öryrkjar sitja heima og velta því fyrir sér hvers vegna fæ ég ekki aðstoð eins og þetta fólk?
- #5Sigríður J Valdimarsdóttir
Ég fagna því að einfalda eigi kerfið og að það eigi að reyna að gera auðveldara fyrir þá öryrkja sem geta, að vinna, en mér finnst mikilvægt að ekki sé pressað á öryrkja að vinna bara út af því að ótilgreindum sérfræðingum (eða stjórnvöldum) finnist að þeir eigi að geta það. Að lifa sem öryrki er flókið. Þar spilast inn í allskonar tilfinningar, eins og varnarleysi og skömm, og það hjálpar aldrei þegar opinberir aðilar tala óvarlega um öryrkja eins og hefur gerst í gegnum árin. Það hjálpar heldur ekki þegar gefið er sterklega til kynna að öryrkjar séu ekki að gera nóg til að komast út á vinn… Lesa alla
Ég fagna því að einfalda eigi kerfið og að það eigi að reyna að gera auðveldara fyrir þá öryrkja sem geta, að vinna, en mér finnst mikilvægt að ekki sé pressað á öryrkja að vinna bara út af því að ótilgreindum sérfræðingum (eða stjórnvöldum) finnist að þeir eigi að geta það. Að lifa sem öryrki er flókið. Þar spilast inn í allskonar tilfinningar, eins og varnarleysi og skömm, og það hjálpar aldrei þegar opinberir aðilar tala óvarlega um öryrkja eins og hefur gerst í gegnum árin. Það hjálpar heldur ekki þegar gefið er sterklega til kynna að öryrkjar séu ekki að gera nóg til að komast út á vinnumarkað. Það eykur bara á skömmina, varnarleysið og vonleysið sem kemur upp vegna þrýstings og óraunhæfra væntinga. Það tekur langan tíma að sætta sig við að vera öryrki. Ég held að enginn sjá fyrir sér að verða öryrki þegar hann byrjar að taka þátt á vinnumarkaði. Ég, til dæmis, fór ekki í gegnum háskólanám til þess að gerast öryrki og því var mjög erfitt að kyngja því að ég væri með takmarkaða orku til vinnu. Ég er mikil reglumanneskja, hef aldrei smakkað áfengi, aldrei reykt eða tekið inn eiturlyf. Ég er svo löghlýðin að ég gef stefnuljós inn í bílastæði. Ég á foreldra sem hafa alltaf verið harðduglegir og ég var sjálf mjög metnaðarfull í námi og á þeim árum sem ég náði á vinnumarkaði. Hefði ég ekki hrunið, þá væri ég í hálaunastarfi, því strax eftir háskóla var ég komin í yfirmannsstöðu. En ég er með takmarkaða orku til vinnu og til almennra verka dagsdaglega, og það má svo lítið koma upp á til að ég hrynji aftur í algert orkuleysi. Ég var farin að gæla við þá hugmynd að prófa míkróprósentu (eins og heimilislæknirinn minn orðaði það) í vinnu, af því að synir mínir eru orðnir eldri og ég hef meiri tíma fyrir sjálfa mig. Geðlækirinn minn var byrjaður að hjálpa mér í gegnum það ferli og við vorum farin að horfa til Vinnumálastofnunnar til að sjá hvernig þetta færi fram. En svo gerðist Grindavík, sem hefur verið áfall eftir áfall, og ég hrundi aftur og hef lítið getað gert yfir daginn frá 10. nóvember. Ég er aftur komin í að nota þann snefil af orku sem ég hef í börnin mín til að passa að þau fái mat og samveru og væntumþykju. Allt annað er eins og að draga rútu með reipi með handaflinu einu. En það þarf ekki hamfarir við æskuheimilið til að ég detti í þetta orkuleysi; erfið samskipti við manneskju getur orsakað það, eða mikil rigning á bílrúðu eftir myrkur. Of mikil læti í búðinni eða að fjölskyldumeðlimur lendi í einhverjum erfiðleikum eða ósanngirni. Það þarf svo lítið til þess að ég missi alla mína orku, og það tekur svo langan tíma að vinna aftur upp þessa orku. Hvernig færi það ef einhver ótilgreindur sérfræðingur myndi stimpla mitt mat með "hlutaörorku" á góðum degi, og svo hryn ég tveimur vikum seinna? Er ég að þurfa að fara í langt og kvíðavaldandi ferli til að fá nýtt mat? Það að þurfa að fara í nýtt mat út af þessu nýja kerfi er alveg ofboðslega kvíðavaldandi eins og er. Ég hef áhyggjur af því að einhver ótilgreindur sérfræðingur sem ég hef aldrei áður hitt fari að meta mína starfsgetu (því við skulum bara kalla þetta frumvarp það sem það er: starfsgetumat). Örorkan sést ekki utan á mér. Ef þið ætlið að fá þetta í gegn þá fer ég fram á að minn geðlæknir, til margra ára og þekkir mín mál út í þaula, fái að meta mína starfshæfni. Minn vandi er jú flókinn og nýlega fékk ég greiningu sem útskýrir af hverju venjuleg úrræði og meðferðir eru ekki að virka fyrir mig. Nú er ég að læra að lifa með greiningunni, og það tekur tíma. En svo ég snúi mér að öðru: Hamrað er á því að það séu jöfn tækifæri í landinu og að fólk eigi að hjálpa sér sjálft (óháð því að sumir einfaldlega geta það ekki). En ég velti því fyrir mér hversu jöfn tækifærin eru. Ég á tvíbura sem verða 17 ára á árinu. Ég fæ greitt með þeim barnalífeyri sem hjálpar mér að kaupa handa þeim mat og nauðsynjar, og borga lítið húsnæði þar sem þeir hafa sitthvort herbergið. Í nýlegri umræðu komst ég að því að þegar þeir verða 18 ára, og eru enn í framhaldsskóla, þá er hægt að fá áframhaldandi barnalífeyri - svo lengi sem þeir eru ekki með "of háar tekjur." Báðir mínir strákar eru í framhaldsskólum. Annar mun líklegast fara í starfsþjálfun nú í sumar og mun því hafa einhverjar tekjur. Hinn er að safna sér pening og er því að vinna eitt kvöld í viku. Samkvæmt þessu samtali sem ég átti varðandi barnalífeyri, þá mun mitt heimili ekki fá barnalífeyri eftir að synir mínir verða 18 ára, af því að þeir eru of duglegir fyrir utan skóla. Það er ætlast til að ég hrifsi af þeim þann pening sem þeir vinna sér inn til að eiga fyrir uppihaldi á þeim og húsnæði. Hvernig eru mín börn með sömu tækifæri og börn annarra þegar þau geta ekki unnið sér inn auka pening án þess að það fari í mat og uppihald? Börn annarra hafa tækifæri til að safna sér fyrir bílprófi/bíl/tölvum/ferðum, því þeirra tekjur/bankainnistæður skerða ekki laun foreldra. Hvernig ætlið þið að taka á þessu í nýja frumvarpinu svo að börnin mín fái raunverulega jöfn tækifæri á við aðra jafnaldra? Synir mínir eiga ekki að þurfa að vinna með framhaldsskóla til að eiga fyrir mat. Eða eiga þeir að sleppa því alveg að vinna til að tryggja að heimilið fái barnalífeyri til að kaupa mat og borga rafmagn? Það á ekki að refsa ungu fólki fyrir dugnað. Og það á ekki að refsa öryrkjum fyrir að eiga börn sem hafa drifkraft í að vinna með námi! Ég hefði haldið að slíkum dugnaði yrði fangað í stað þess að honum sé refsað! Ég fer fram á að greiddur verði út barnalífeyrir vegna öryrkja með ungt fólk í námi, óháð tekjum/fjármagnstekjum ungmennanna. Og svo verðið þið að passa að taka algerlega úr sambandi tekjur (þ.m.t. fjármagnstekjur) barna öryrkja, í sambandi við útreikning á örorkulífeyri. Það er grimmt að ætlast sé til að öryrkjar sparki unga fólkinu sínu af heimilinu til að lögheimilið skerði ekki örorkulífeyrinn (t.d. heimilisuppbót). Hvar eru jöfn tækifærin þegar börn annarra mega vera á heimilum foreldra sinna til þrítugs, en börn örkyrkja neyðast til að flytja út um tvítugt, eða jafnvel fyrr út af tekjutenginum? Þetta er svo grimmt kerfi í dag að mér fallast hendur... Það er allt gert til að gera öryrkjum erfitt fyrir - og þetta er fólk sem hefur ekki orku í að standa í stappi við kerfið! Þetta er fólk sem hefur ekki orku til að komast að því hvaða réttindi það hefur því að það er enginn sem grípur fólkið þegar það er metið til örorku. Fólk stendur bara uppi og þarf að finna upp hjólið. Í staðin er gengið út frá því að öryrkjar séu að svindla á kerfinu. Hinn almenni öryrki er ekki að því, en okkur er öllum refsað af því einhverntíman hefur einhver svindlað. Þetta er eins og að stinga öllum alþingismönnum í fangelsi fyrir það að einn þeirra braut lög! Ég vona að nýtt kerfi verði betra, en það má aldrei vera þannig að tilgangurinn sé að gera veiku fólki erfiðara fyrir að fá örorkugreiningu, eða að ýta á veikt fólk að koma sér út á vinnumarkað áður en það er tilbúið til þess. Treystið læknum viðkomandi einstaklinga til að gera matið; ekki leggja það á okkur að sitja á stól fyrir framan ókunnuga einstaklinga sem eiga að meta hversu mikið við getum unnið eftir eitt eða tvö samtöl. Það er aldrei að fara að enda vel og á bara eftir að keyra öryrkja dýpra í veikindi vegna kvíða og álags og skömm. Svona til samantektar: - Ekki þrýsta á veikt fólk til að fara að vinna ef það er ekki tilbúið til þess. - Ekki láta ókunnuga um starfsgetumatið; leyfið læknum hvers og eins að gera það. - Veitið börnum örkyrkja raunveruleg jöfn tækifæri á við jafnaldra með því að borga barnalífeyri, óháð tekjum námsmanna. - Takið úr sambandi alla tekjutengingu barna öryrkja við öryrkjann, þ.á.m. fjármagnstekjur. Þá meina ég líka uppkominna barna sem eru enn í námi. - Þegar talað er um örorkulífeyri, vinsamlegast hættið að taka heimilisuppbót og annað út fyrir svigann til að skerða. - Öryrkjar eru eins mismunandi og þeir eru margir. Ein lausn hentar ekki öllum. Ekki þvinga alla í sama mótið, því það er aldrei að fara að enda vel.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.