Drög að lagafrumvarpi um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík
Í frumvarpinu er lagt til að einstaklingum standi til boða að selja félagi í eigu ríkisins íbúðarhúsnæði sitt í Grindavík.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-38/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. febrúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 316 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 704)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)
Í heildina bárust 316 umsagnir en dæmi voru um að sama umsögn hafi borist í tvígang eða í þeim væri einungis tekið undir það sem fram kemur í öðrum umsögnum. Fjallað er um efni umsagna og viðbrögð við þeim í samráðskafla í greinargerð með frumvarpi sem var lagt fram á Alþingi 14. febrúar 2024.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (316)
- #1Rakel Lilja Halldórsdóttir
Ég myndi vilja færa lánið mitt á aðra eign sem eg hef í hyggju að kaupa, mun það ekki standa til boða ? Það er gríðarlega óhagstætt að taka ný lán núna !!
- #2Magnús Ingi Hannesson
Geri athugasemd við ákvæði um búsetu eigenda; Skilyrði er að eigandi hafi haft skráð lögheimili í viðkomandi eign þann 10. nóvember 2023. Þarf að breyta þannig að skilyrði yrði eigandi, börn eða foreldri eiganda séu skráð í húsnæðinu þann 10 nóvember 2023.
- #3Vignir Hrannar Vignisson
Í stað þess að notast við brunabótamat, þarsem það endurspeglar sjaldan raunvirði eignarinnar væri ekki sanngjarnara að fá nokkra matsmenn til að uppfæra fasteignamatið sem myndi þá endurspegla betur raunvirði eignarinnar. Í dag er ég með íbúð í bílskúr, 2 palla á eigninni, 1 geymslu, 1 skúr og 1 garðskála og ekkert af þessu er tekið með inn í reikninginn á virði eignarinnar, ekki frekar en hellulagða innkeyrslan hjá mér þegar ég stækkaði bílastæðið hjá mér fyrir 4árum síðan.
- #4Elma Rún Guðnadóttir
Hvað með þá einstaklinga sem skrifuðu undir kaupsamning á húsnæði 1.nóv og áttu að fá eignina afhenta 10.jan ? Við höfðum ekki tækifærið á að færa lögheimilið yfir.
- #5Elín Ingólfsdóttir
Það á að bjóða seljanda uppá þann valkost að taka með sér áhvílandi lán sem er á eigninni. Það er valkvætt í öllum fasteignaviðskiptum og á ekki að vera undanskilið í þessum fasteignaviðskiptum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.