Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-24/2024 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS2-kerfið)

Frumvarpinu verður ætlað að innleiða þann hluta tilskipunar ESB 2023/959 (breyting á ETS-tilskipun 2003/87/EB) sem fjallar um ETS2-kerfið (losun frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði).

Með frumvarpinu verður tilskipun ESB 2023/959 sem breytir tilskipun 2003/87/EB (ETS-tilskipunin) að fullu innleidd. Í tilskipun 2023/959 sem breytir ETS tilskipuninni, er í IVa kafla fjallað um nýtt hliðstætt viðskiptakerfi svokallað ETS2-kerfi sem mun ná utan um losun frá byggingum (húshitun), vegasamgöngum og smærri iðnaði. ETS2-kerfið verður rekið samhliða ETS-kerfinu en losun frá því mun áfram reiknast sem samfélagslosun sem fellur undir svokallaða beina ábyrgð ríkja samkvæmt reglugerð ESB 2018/842 um sameiginlega ábyrgð (e. Effort Sharing Regulation ESR). Losun vegna bruna á jarðaefnaeldsneyti er stærsta uppspretta losunar sem fellur undir flokk samfélagslosunar og því er brýnt að draga úr losun frá þeim flokki.

S-24/2024· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. feb. 2024 – 14. feb. 2024· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS2-kerfið)

Frumvarpinu verður ætlað að innleiða þann hluta tilskipunar ESB 2023/959 (breyting á ETS-tilskipun 2003/87/EB) sem fjallar um ETS2-kerfið (losun frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-24/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 145)
Niðurstöður samráðs (9. ágúst 2024)

Drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt stjórnvalda frá 19. febrúar 2024 til 4. mars 2024 (mál nr. S-47/2024). Hagaðilum var gert viðvart og veitt færi á að skila inn umsögn um frumvarps¬drögin. Þrjár umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: skipulags- og mannvirkja¬nefnd Ísafjarðarbæjar, Félagi atvinnurekenda og sameiginlega frá Samtökum ferðaþjónust¬unnar, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði (hér eftir samtökin). Hvað sem því líður fór frumvarpið ekki fyrir þingið vorið 2024. Frumvarpið er á þingmálaskrá á ný fyrir haustið 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-24/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS2-kerfið) · Alviti