Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-16/2024 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi (meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa)

Áformað er að innleiða tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa með breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

Tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa kveður á um rýni sem viðhöfð skal þegar EES-ríki telja koma til álita að lögvernda ný störf eða þegar gildandi regluverk er endurskoðað. Mælt er fyrir um meðalhófskönnun sem beita verði þegar fram koma tillögur um nýjar lögverndaðar starfsgreinar eða ef ráðist er í endurskoðun eldri krafna. Skal þá rýna skilyrðin fyrir aðgengi að störfum og hvort gætt sé meðalhófs við ákvarðanir þar um, þær miðist við eðli starfs og hvort litið sé til almannahagsmuna. Þá er mikilvægt að kröfur gangi ekki lengra en þörf er á og séu til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Enn fremur að athugað sé hvort ná megi sömu markmiðum með öðrum aðgerðum. Innleiðing gerðarinnar fer fram með breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, nr. 26/2010. Þá er áformað að setja reglugerðarheimild svo tryggja megi að rýni í samræmi við tilskipunina fari fram, svo sem með leiðbeiningum á innri vef Stjórnarráðsins um verklag við vinnslu stjórnarfrumvarpa í þeim tilvikum sem þau fela í sér tillögu um lögverndun starfa sem ekki hafa notið lögverndunar fyrr.

S-16/2024· Áform um lagasetningu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. jan. 2024 – 12. feb. 2024· 1 umsögn

Áform um breytingar á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi (meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa)

Áformað er að innleiða tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa með breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-16/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 232)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. nóvember 2024)

Drög að frumvarpi kynnt í Samráðsgátt Stjórnvalda 10. maí 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-16/2024: Áform um breytingar á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi (meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa) · Alviti