Áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99/1993 - Framleiðendafélög
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum nr. 99/1993 í því skyni að styrkja stöðu og samtakamátt frumframleiðenda búvöru og ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-156/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 15. september 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 505)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Skagafjörður
Á 60. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var gerð eftirfarandi bókun um mál til samráðs nr. 156/2023 - Áform um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993, framleiðendafélög. Í Skagafirði er kraftmikil búvöruframleiðsla hjá mörgum bændum sem stunda sauðfjárrækt, nautgriparækt, mjólkurframleiðslu, kornrækt og grænmetisframleiðslu svo eitthvað sé talið. Mikilvægi þessara atvinnugreina er mikið en vegna þeirra eru einnig reknar öflugar afurðastöðvar í bæði kjöti og mjólk til að vinna þessar afurðir og gera þær tilbúnar fyrir neytendur. Samkeppni um markaðinn er hins vegar hörð og þá ekki… Lesa alla
Á 60. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar var gerð eftirfarandi bókun um mál til samráðs nr. 156/2023 - Áform um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993, framleiðendafélög. Í Skagafirði er kraftmikil búvöruframleiðsla hjá mörgum bændum sem stunda sauðfjárrækt, nautgriparækt, mjólkurframleiðslu, kornrækt og grænmetisframleiðslu svo eitthvað sé talið. Mikilvægi þessara atvinnugreina er mikið en vegna þeirra eru einnig reknar öflugar afurðastöðvar í bæði kjöti og mjólk til að vinna þessar afurðir og gera þær tilbúnar fyrir neytendur. Samkeppni um markaðinn er hins vegar hörð og þá ekki síst við innfluttar landbúnaðarvörur sem leyft er að flytja til landsins í auknum mæli og þaðan sem framleiðslan býr við allt annan aðbúnað og í mörgum tilfellum minni gæðakröfur en gerðar eru hér á landi. Tölur sýna einnig að kostnaðarverð íslenskra landbúnaðarvara er oft hátt og þá ekki síst kjötvörurnar þótt hlutfall matarkörfunnar af heildarútgjöldum heimila sé lægra hér en meðaltal um 30 Evrópulanda. Þegar þessi kostnaður er greindur frekar kemur fram að mikil kostnaðaraukning verður í afurðastöðvum við slátrun, vinnslu og markaðssetningu varanna. Samkvæmt greiningum sem gerðar hafa verið virðist sá kostnaður oft ráðast af litlum möguleikum afurðastöðva til hagræðingar og samvinnu sem myndi leiða til aukinnar hagkvæmni í vinnslunni. Byggðarráð Skagafjarðar vill því fagna því að verið sé að gera þær breytingar á búvörulögum sem þarf til hægt sé að endurskipuleggja og hagræða í slátrun og kjötvinnslu. Mikilvægt er að tryggja að afurðastöðvarnar skili sem mestum verðmætum til bænda, meðal annars með aukinni fullvinnslu aukaafurða á þeirra vegum eða þriðja aðila. Aukin samvinna afurðastöðva á að lækka vinnslukostnaðinn og auka verðmætasköpunina sem kemur þá bæði bændum og neytendum til góða ásamt því að innlend framleiðsla verður samkeppnishæfari við innfluttar vörur. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #2Bændasamtök Íslands
Sjá í viðhengi umsögn Bændasamtaka Íslands.
- #3SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu
Meðfylgjandi er umsögun SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99/1993 - Framleiðendafélög
- #4Samkeppniseftirlitið
Sjá í viðhengi umsögn Samkeppniseftirlitsins.
- #5Samtök smáframleiðenda matvæla
Í viðhengi er umsögn Samtaka smáframleiðenda matvæla og Beint frá býli um áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99/1993 - Framleiðendafélög.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.