Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028
Aðgerðirnar eru margvíslegar og miða allar að því að börn og ungmenni verði virkir þátttakendur í íslensku menningarlífi og barnamenning stór hluti þess.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-9/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 804)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. júlí 2024)
Alls bárust 14 umsagnir frá ýmsum hagsmunahópum, félagasamtökum, sveitarfélögum o.fl og voru umsagnir jákvæðar. Sumar náðu efnislega þó út fyrir efni tillögunnar en eru þó engu að síður gagnlegar fyrir vinnu stjórnvalda á sviði barnamenningar. Meðal þess sem kom fram var mikilvægi þess að miðstöðin, verkefnin og sjóðurinn næðu til allra barna óháð búsetu, fjárhagsstöðu, fötlun o.s.frv. Meginbreytingin sem gerð var á tillögunni í kjölfar samráðs varðaði mönnun stjórna og upptalningu samstarfsaðila.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
Umsögn um eflingu samstarfs á sviði barnamenningar Undanfarin ár hefur þróunin verið sú að ólíkar stofnanir og félagasamtök sem vinna að að barnamenningu hafa tekið höndum saman og unnið að stórum og smærri samstarfsverkefnum sem nær til barna á öllu landinu. Þessi verkefni hafa bæði styrkt samtal og þróun meðal fagfólks á sviði barnamenningar og ekki síst aukið gæði, umfang og kynningu verkefnanna öllum til bóta með því að leiða saman fólk úr ólíkum áttum með mismunandi fagþekkingu. Í slíkum verkefnum koma stofnanir og félagasamtök með sitt að borði, bæði með fjármagni, starfskröftum og… Lesa alla
Umsögn um eflingu samstarfs á sviði barnamenningar Undanfarin ár hefur þróunin verið sú að ólíkar stofnanir og félagasamtök sem vinna að að barnamenningu hafa tekið höndum saman og unnið að stórum og smærri samstarfsverkefnum sem nær til barna á öllu landinu. Þessi verkefni hafa bæði styrkt samtal og þróun meðal fagfólks á sviði barnamenningar og ekki síst aukið gæði, umfang og kynningu verkefnanna öllum til bóta með því að leiða saman fólk úr ólíkum áttum með mismunandi fagþekkingu. Í slíkum verkefnum koma stofnanir og félagasamtök með sitt að borði, bæði með fjármagni, starfskröftum og þekkingu en oft þarf að sækja um fjármagn fyrir þá hluta verkefnisins sem ekki falla beint undir starfsemi stofnana eða félagasamtaka. Sem dæmi um slíkan kostnað getur verið kostnaður við gerð sameiginlegs kynningarefnis, kostnaður við veitningu verðlauna og í stærri verkefnum er það laun verkefnastjóra sem leiðir verkefnið, tengir saman fagstofnanir og heldur utan um alla ólíku þræði verkefnisins og samstarfsaðila. Dæmi um minna samstarfsverkefni er Siljan, árleg myndbandasamkeppni fyrir 5.-10. bekkinga um allt land sem unnið er í samstarfi Barnabókaseturs og Amtsbókasafnsins á Akureyri, Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar. SÖGUR - samstarf um barnamenningu er dæmi um stórt samstarfsverkefni. Þar taka höndum saman eftirtaldar menningarstofnanir: Borgarbókasafnið, Borgarleikhúsið, KrakkaRúv, Bókmenntaborgin, List fyrir alla, Menntamálastofnun og Skóla og frístunasvið Reykjavíkurborgar. Við óskum eftir því leitað verði leiða að verkefnum sem SÖGUR og Siljan geti sótt um í Barnamenningarsjóð til framtíðar og eigi ekki á hættu að fá höfnun þar sem um endurtekið verkefni er að ræða eða eingöngu menningarstofnanir. Mikilvægt er að taka fram að grasrót listamanna tekur mikinn þátt í SÖGUM og er í raun burðarás verkefnisins þar sem verið er að kynna fyrir börnum ólíkar listgreinar og listamenn og þeir eru fengnir til að stækka hugmyndir barnanna – koma þeim á svið- í bækur, í tónlist, í kvikmyndir og slík verkefni fái þannig hvatningu til aukinnar samvinnu og samtals fagfólks á sviði barnamenningar. Umsögnin er send inn fyrir hönd stjórnar Sagna og Siljunnar.
- #2Öryrkjabandalag Íslands
Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028.
- #3Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
Umsögn um eflingu fagþekkingar á sviði barnamenningar Mikilvægt er að stuðla að og styrkja eflingu fagþekkingar á sviði barnamenningar til að tryggja þekkingu, grósku og lifandi samtal. Bæði félagasamtök og stofnanir hafa unnið saman að ýmsum verkefnum sem hafa það að markmiði að miðla og efla fagþekkingu á sviði barnamenningar. Mýrin - alþjóðleg barnabókmenntahátíð og IBBY sem stendur að fagtímaritinu Börn og menning, styðja við bakið á fagfólki og eru mikilvægar stoðir í íslenskri barnamenningu. Hvorutveggja miðla helstu stefnum og straumum til fagfólks á sviði barnamenningar, sem… Lesa alla
Umsögn um eflingu fagþekkingar á sviði barnamenningar Mikilvægt er að stuðla að og styrkja eflingu fagþekkingar á sviði barnamenningar til að tryggja þekkingu, grósku og lifandi samtal. Bæði félagasamtök og stofnanir hafa unnið saman að ýmsum verkefnum sem hafa það að markmiði að miðla og efla fagþekkingu á sviði barnamenningar. Mýrin - alþjóðleg barnabókmenntahátíð og IBBY sem stendur að fagtímaritinu Börn og menning, styðja við bakið á fagfólki og eru mikilvægar stoðir í íslenskri barnamenningu. Hvorutveggja miðla helstu stefnum og straumum til fagfólks á sviði barnamenningar, sem eflir hugmyndavinnu og fræðslu þeirra sem sjá um að skipuleggja menningarviðburði eða vinna að menningarmiðlun fyrir börn. Þegar Mýrin og Ibby sækja um styrki og fjármagn í Barnamenningarsjóð, má ekki gleyma því hvernig fagfólk er grundvöllur þess að til er barnamenning og að henni sé haldið á lofti. Að sjálfsögðu er hugmyndin að börn skulu njóta góðs af barnamenningu, en ekki má gleyma þeim grundvallarþætti að það eru fullorðið fagfólk sem heldur heldur utan um barnamenningu, sér um að miðla bókmenntum, menningu og listum til barna, og skipuleggja menningarviðburði og dagskrá fyrir börn.
- #4Upplýsing,fél bókas/upplýsfræð
Upplýsing, fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða vill minna á mikilvægi þess að börn hafi aðgang að bókasafni í sinni heimabyggð í þessu samhengi. Víða um land er verið að draga úr starfsemi bókasafna eða sameina bókasöfn í grunnskólum við almenningsbókasöfn. Það er ekki góð leið til að auka og efla menningu barna því bókasöfnin gegna lykilhlutverki í því að efla læsi og svala forvitni og auka áhuga ungra manneskja á menningu. Þetta gera bókasöfnin með því að uppfræða þau um og veita aðgengi að öllu því sem listheimurinn hefur upp á að bjóða, í orðum, í listum, í tónlist, í samski… Lesa alla
Upplýsing, fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða vill minna á mikilvægi þess að börn hafi aðgang að bókasafni í sinni heimabyggð í þessu samhengi. Víða um land er verið að draga úr starfsemi bókasafna eða sameina bókasöfn í grunnskólum við almenningsbókasöfn. Það er ekki góð leið til að auka og efla menningu barna því bókasöfnin gegna lykilhlutverki í því að efla læsi og svala forvitni og auka áhuga ungra manneskja á menningu. Þetta gera bókasöfnin með því að uppfræða þau um og veita aðgengi að öllu því sem listheimurinn hefur upp á að bjóða, í orðum, í listum, í tónlist, í samskiptum, án þess að efnahagur fjölskyldna barnanna skipti máli. Með því að efla bókasöfnin í smærri samfélögum, auka samstarf heimila, bókasafna, skóla og tónlistarskóla um allt land er lagður grunnur að góðu menningarsamfélagi framtíðar.
- #5Sigrún Klara Hannesdóttir
Umsögn frá Félagi um barnabókasafn Allir sem hafa áhuga á barnamenningu, skilja mikilvægi hennar og vilja veg barnamenningar sem mestan. Þess vegna hljótum við að að undrast að sjálf bókaþjóðin skuli ekki hafa komið sér upp sérstöku safni barnabóka á íslensku. Það sama gildir um frummyndir myndlýsinga úr íslenskum barnabókum sem eru fyrstu tengingar barna við myndlist. Hvorki handrit né frummyndir eiga sér neinn sérstakan samastað. Félag um barnabókasafn var stofnað síðasta vetrardag, 21. apríl 2021 og er tilgangur félagsins samkvæmt stofnfundargerð: a. Að safna öllum íslenskum ba… Lesa alla
Umsögn frá Félagi um barnabókasafn Allir sem hafa áhuga á barnamenningu, skilja mikilvægi hennar og vilja veg barnamenningar sem mestan. Þess vegna hljótum við að að undrast að sjálf bókaþjóðin skuli ekki hafa komið sér upp sérstöku safni barnabóka á íslensku. Það sama gildir um frummyndir myndlýsinga úr íslenskum barnabókum sem eru fyrstu tengingar barna við myndlist. Hvorki handrit né frummyndir eiga sér neinn sérstakan samastað. Félag um barnabókasafn var stofnað síðasta vetrardag, 21. apríl 2021 og er tilgangur félagsins samkvæmt stofnfundargerð: a. Að safna öllum íslenskum barnabókum, frumsömdum og þýddum, auk tímarita fyrir börn. b. Stunda rannsóknir á útgáfu barnabóka á Íslandi c. Vera í samstarfi við alþjóðleg félagasamtök á sama sviði d. Efla veg og vanda barnabókarinnar á Íslandi Félagið hefur allt frá stofnun þaulsafnað og skráð gamlar og nýjar barnabækur og stefnir að því að koma upp heildarsafni yfir íslenskar barna- og unglingabækur, en áætlað er að um sé að ræða 10.000 titla bóka fyrir utan tímarit og annað form lesefnis. Stjórn Félags um barnabókasafn fagnar framkominni tillögu til þingsályktunar um eflingu barnamenningar. Með þessari umsögn viljum við koma á framfæri nokkrum viðbótum sem við teljum að muni geta gert þessa aðgerðaáætlun markvissari og gagnlegri. Viðbæturnar tengjast viðkomandi köflum: FRAMTÍÐARSÝN, MARKMIÐ OG ÁHERSLUR. Til viðbótar við þá þætti sem tilgreindir eru viljum við bæta við tveimur þáttum sem eru mjög veigamiklir í eflingu barnamenningar. Annars vegar er það læsi og hins vegar barnabækur. LÆSI: Menningarlæsi er mikilvægt í uppeldi barna, en grunnurinn að hvers kyns notkunar menningararfsins er almennt læsi, lesskilningur og áhugi á lestri. Því teljum við að hér þurfi að leggja áherslu á eflingu læsis fyrir öll börn. BARNABÆKUR: Grunnurinn að menningarlæsi er að hafa aðgang að lesefni. Því teljum við að styðja þurfi við útgáfu, söfnun og aðgengi hvers konar að barnabókaútgáfu landsins. Barnabækur þurfa því að vera hluti af barnamenningu og eflingu hennar. AÐGERÐARÁÆTLUN FYRIR ÁRIN 2024-2028 Hér viljum við bæta við einkum þætti til að styðja við ofangreinda framtíðarsýn og markmið. D. Barnabókasafn, sem varðveiti allar íslenskar barnabækur, verði aðgengilegt fyrir fræðimenn, kennara, rithöfunda, myndlistarmenn, háskólanema og alla þá sem vinna við rannsóknir, listsköpun og miðlun til barna. Barnabókasafnið sem er í uppbyggingu er hugsað fyrir fræðimenn, kennara og alla þá er miðla menningararfinum til barna og unglinga. Það ætti því að vera hluti af aðgerðaráætlun um eflingu barnamenningar. A. Stefnumótun, stjórnsýsla og framkvæmd verkefna á sviði menningar og listsköpunar barna- og ungmenna. A.1 Samráðsvettvangur um menningu og listsköpun barna og ungmenna Hér finnst okkur vanta að í samráðsvettvangi um menningar- og listsköpun barna séu höfundar, bæði höfundar texta og mynda sem ætluð eru fyrir börn. Til þess að samþætting geti orði að sem mestu gagni þurfa þeir sem framleiða efni líka að eiga hlutdeild í þessu samráði. Dæmi um samstarfsaðila sem hér ætti að bæta við eru t.d. SÍUNG, félag barna- og unglingabókahöfunda og FYRIRMYND sem er félag myndhöfunda innan FÍT. A.2 Miðstöð barnamenningar Að okkar mati ætti Félag um barnabókasafn að vera sjálfsagður samstarfsaðili við Miðstöð um barnamenningu og eiga fulltrúa í stjórn miðstöðvarinnar. Umsögnin er send inn af stjórn Félags um barnabókasafn, en hana skipa: María Hjálmtýsdóttir, formaður Helga Halldórsdóttir, ritari Sigrún Klara Hannesdóttir, gjaldkeri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.